Fréttatíminn - 04.06.2016, Blaðsíða 54
…ferðir
kynningar
14 | amk… LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2016
Unnið í samstarfi við
gistihúsið Við Fjörðinn
Hjónin Sigríður Helgadóttir og Friðfinnur Sigurðsson, betur þekkt sem Sirrý og Finni, reka gistihúsið Við
Fjörðinn á Þingeyri við Dýrafjörð
og hafa gert síðan árið 2000. „Við
opnuðum fyrst árið 2000 og höfum
stöðugt verið að bæta okkur síðan.
Hjá okkur er góð aðstaða fyrir bæði
hópa og einstaklinga, við erum með
átta herbergi og þrjár íbúðir og ein
íbúðin er sérútbúin fyrir hreyfihaml-
aða,“ segir Sirrý en gistihúsið Við
Fjörðinn er opið yfir sumartímann
og eftir samkomulagi yfir veturinn.
„Herbergin í gistihúsinu eru
rúmgóð og hægt er að leigja her-
bergi með baði eða með aðgangi
að sameiginlegu baðherbergi. Eins
bjóðum við upp á morgunmat og
er hann borinn fram í garðskál-
anum okkar úti í garði. Aðgangur
að interneti er í húsinu, boltaá-
skriftin er klár fyrir þá sem hafa
áhuga á fótbolta,“ segir Sirrý og
hlær við.
Nóg af bílastæðum er í kring-
um gistihúsið en Sirrý segist oft
á tíðum fá spurningar um það
hvort hægt sé að leggja bílum
hjá þeim. „Örstutt er svo frá
gistihúsinu í sundlaugina, bara
nokkur hundruð metrar. Á Þing-
eyri er einnig hægt að fara út að
borða á þremur stöðum og fimm
kílómetrar eru frá okkur á golf-
völlinn í Meðaldal, sem er einn
flottasti golfvöllur landsins. Ekki
má svo gleyma að Ísafjörður er
í 45 mínútna fjarlægð og þar er
auðvitað margt að sjá.“
Það verður enginn svikinn
af því að heimsækja Vestfirði
Við Fjörðinn er huggulegt og vel staðsett gistihús á Þingeyri við Dýrafjörð
Gistihúsið er vel staðsett og með góðri aðstöðu fyrir bæði einstaklinga og hópa.
Sigríður Helgadóttir, annar eigandi
gistihússins Við Fjörðinn.
Hornstrandir eru einn fal-legasti staður landsins og margar dásamlegar gönguleiðir sem staður-
inn býður upp á.
1. Sæból – Látrar í Aðalvík
Gengið er inn með fjörunni og um
lítinn klettabás þar sem þarf að
sæta sjávarföllum fyrir Hvarfnúp
og síðan áfram fyrir Mannafjall
og að Látrum. Vaða þarf tvær ár á
leiðinni (4 klukkustundir)
2. Hesteyri – Látrar í Aðalvík -
um Hesteyrarskarð
Leiðin liggur um göngustíg frá
Hesteyri og upp í Hesteyrar-
skarð en þar tekur við vörðuð leið
fram á efstu drög Stakkadals.
Stakkadalsós þarf að vaða rétt
neðan Stakkadalsvatns. Þaðan er
skammur gangur að Látrum (3-4
klukkustundir)
3. Hlöðuvík – Hornvík – um
Atlaskarð
Frá Hlöðuvík liggur leiðin upp
gönguslóða í brattri hlíð í innan-
verðum Skálakambi. Þar tekur
við vörðuð leið ofan Hælavíkur
og í Atlaskarð (327 metrar). Úr
skarðinu er gengið niður í Rekavík
og áfram í bröttum hliðarsneiðingi
fyrir Kollinn að Höfn í Hornvík
(4-5 klukkustundir)
4. Veiðileysufjörður
– Hornvík – um Hafnarskarð
Úr botni Veiðileysufjarðar er far-
ið um Hafnarskarð (519 metr-
ar). Fáar vörður eru á leiðinni
upp í skarðið en vel er varðað
úr skarðinu niður í Hornvík (4-5
klukkustundir)
5. Hrafnsfjörður – Furufjörður
– um Skorarheiði
Leiðin liggur úr botni
Hrafnsfjarðar um lága heiði,
Skorarheiði (200 metrar), í
Furufjörð. Hún liggur að hluta til
á stíg en einnig eru vörður austan
megin (3 klukkustundir)
Gönguleiðir um Hornstrandir
Ótrúleg fegurð Hornstrandir eru einn fallegasti staður landsins og þótt víðar væri leitað.