Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 04.06.2016, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 04.06.2016, Blaðsíða 18
Nafn Elizu Reid var ekki mikið þekkt fyrir nokkrum vikum en eftir að maður hennar, Guðni Th. Jóhann- esson, fór í forsetaframboð hefur heldur betur orðið breyting á því. Eliza er skyndilega komin í kastljós fjölmiðla og almennings og allir vilja vita hver þessi kona er. Hún segist þó ekki hafa í hyggju að breyta sér eða því sem skipti sig máli þótt hún verði forsetafrú. Friðrika Benónýsdóttir ritstjorn@frettatiminn.is Það er hægara sagt en gert fyrir Elizu Reid að finna tíma til að setjast niður yfir kaffibolla og spjalla við blaðamann. Kosningabatteríið sér um að skipuleggja stundaskrá hennar og oft veit hún ekki einu sinni sjálf hvernig dags- planið á morgun lítur út. Loks tekst þó að finna lausan klukkutíma og við hittumst í Kvosinni eldsnemma morguns, með þeim fyrirmælum kosningskrifstofunnar að við- talið megi alls ekki taka meira en klukkutíma. Eliza hlær þegar hún er spurð hvort það sé ekki erfitt að lifa undir slíkum aga og segir að það sé fínt, hún þurfi þá ekkert að hugsa um skipulagninguna sjálf, til tilbreytingar. Eliza hefur búið á Íslandi í þrett- án ár, flutti hingað 2003 og gekk í hjónaband í júlí 2004, en hún og Guðni höfðu kynnst árið 1998 þegar þau stunduðu bæði nám í nú- tímasögu á meistarastigi í Oxford. Spurð hver Eliza Reid sé, hver sé hennar bakgrunnur og saga, hugs- ar hún sig um augnablik en byrjar síðan að stikla á stóru í ævisögunni: „Ég er fædd í Ottawa í Kanada, af skoskum ættum. Mamma er húsmóðir og pabbi er kennari, ég á tvo yngri bræður. Við bjuggum í Ottawa þangað til ég var tíu ára en þá fluttum við út í sveit um 40 kíló- metrum frá miðbænum í Ottawa. Pabbi var auðvitað ennþá að vinna í borginni þannig að við vorum ekki með búskap, en við vorum samt með nokkrar kindur og hæn- ur og endur. Þegar ég var átján kláraði ég stúdentsprófið og flutti til Toronto þar sem ég tók BA-gráðu í alþjóðasamskiptum við háskól- ann. Eftir það langaði mig í smá ævintýri og fá að sjá meira af heim- inum og ákvað að fara eitthvert út fyrir Kanada í mastersnám. Ég fékk inngöngu í háskólann í Ox- ford, maður segir ekki nei við því, og flutti því til Bretlands þar sem ég bjó þangað til ég flutti alfarin til Íslands.“ Tók örlögin í eigin hendur Í Oxford biðu örlögin Elizu í líki þrítugs manns frá Íslandi sem hún viðurkennir að hafa verið dálítið skotin í í laumi. „Mér fannst Guðni klár og skemmtilegur – og sætur auðvitað – og þegar róðrarfélagið hélt uppboð á stefnumótum við strákana í róðrarteyminu sem fór þannig fram að þeir sem áhuga höfðu á slíku stefnumóti skrif- uðu nöfnin sín á miða og settu í Feministi og engin tískudrós Guðni flutti til Íslands í maí 2003 en Eliza var ekki tilbúin til að fara strax og ákvað að fara í ferðalag áður en hún hæfi nýtt líf. Hún tók Síberíulestina og ferðaðist um Austur-Evrópu og Asíu í hundrað daga áður en hún axlaði sín skinn og flutti alfarin til nýja heimalandsins. 18 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.