Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 04.06.2016, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 04.06.2016, Blaðsíða 24
Það er Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari sem skipuleggur allt saman á Reykjavík Midsummer Music, eins og undanfarin ár. Hann safnar frábærum hópi listamanna í kringum sig úr ýmsum áttum. Einn þeirra er Kristinn Sigmundsson ba- ssasöngvari sem flýgur um heiminn og syngur í óperum og á tónleikum, sem aldrei fyrr. Kristinn var nýlentur úr ver- kefni í Cincinnati þegar Frétta- tíminn gekk með honum undir húsvegg til að ræða um það sem framundan er hjá honum á hátíð- inni í Hörpu. „Mitt er aðallega að syngja þarna í tveimur frábærum ljóðaflokkum, An die ferne Gelibte eftir Beethoven, þar sem sungið er til ástarinnar í fjarska, og ljóðflokki Mahlers, Söngvum förusveinsins.“ Kristinn, sem syngur fleira á hátíð- inni, segir flokkana tvo og reyndar allt sem hann fær að syngja á hátíð- inni magnaða tónlist. Kristinn Sigmundsson ferðast um heiminn til að syngja. Stundum snýst tónlistin um ferðalög. Hinn frjálsi förusveinn Reykjavík Midsummer Music er forvitnileg tónlist- arhátíð sem fer fram í Hörpu um það bil þegar sól er hæst á lofti í júnímánuði, dagana 16. - 19. júní. Þema hátíðar- innar að þessu sinni er „hinn frjálsi förusveinn“ sem er rómantísk hugmynd og nær langt út fyrir bara göngu- ferðir og ferðalög. Guðni Tómasson gudni@frettabladid.is Innra ferðalagið Kristinn segir að hugmyndin um ferðalagið sé fyrirferðarmik- il í ljóðasöng rómantíska tímans. „Þetta eru ekki bara einfaldir labb- itúrar,“ útskýrir Kristinn. „Þetta snýst fyrst og fremst um að túlka lífið sjálft eða innri átök sálarinn- ar. Rómantíkin hefur verið uppfull af þessu. Ferðalagið er álitið þrosk- andi en er líka lýsing á innra lífi.“ Þeir Kristinn og Víkingur Heið- ar hafa áður starfað saman að ljóðaflokknum Vetrarferðinni eft- ir Schubert, sem þeir fluttu tvíveg- is í Eldborg og gáfu út á hljóð- og mynddiski um árið, með þeim ár- angri að þeir hlutu Íslensku tónlist- arverðlaunin fyrir. „Í allri þessari tónlist er einhver harmur sem mað- ur verður að koma til skila. Ástar- sorgin vofir yfir en það birtir til inn á milli. Þetta er mjög mannlegt allt saman og það heyrist í tónlistinni.“ Hversu frjáls er förusveininn? Kristinn Sigmundsson f lýgur um veröldina til að syngja en er kannski ekki heldur alveg frjáls eins og fuglinn. Við taka ný og ný verkefni sem bókuð eru með löng- um fyrirvara og samstarf við lista- menn af ýmsu sauðahúsi. Á ferðum sínum fylgist Kristinn líka vel með landsmálunum hér heima. „Maður er ekki frjáls undan því,“ segir hann og setur í brýrnar. „Venjulega er alveg óskaplega gott að vera í burtu frá öllu kjaftæðinu hérna, sem er oft svo smátt. Ég þarf ekki að nefna nein dæmi, það get- ur hver og einn tínt þau til í hug- anum. Þá get ég bara einbeitt mér að mínu starfi og tónlistinni. Svo kemur fyrir að það er afskaplega vont að vera í burtu. Til dæmis var ég í París þegar hrunið gekk yfir. Þá var óskaplega erfitt að vera í burtu og að vera Íslendingur í útlöndum. Á svoleiðis stundum er alveg svaka- legt að vera í burtu.“ Þessa tilfinningu upplifði Krist- inn síðan aftur um daginn þegar Panamaskjölin settu Ísland aft- ur í brennidepil heimspressunn- ar. Hann var þá staddur í Dallas. „Einn morguninn kom ég fram í hótellobbí og þar voru fjórar forsíð- ur borgarblaðanna með Sigmund Davíð Gunnlaugsson á forsíðunni. Það jaðraði við að maður færi að svara því til að maður væri frá Fær- eyjum, eða eitthvað slíkt. Þá vissu allir hvar Ísland var, fólk sem hafði ruglað því við Írland nokkrum dög- um áður. Fólki fannst þetta fyndið, en mér ekkert sérstaklega. Þetta er auðvitað hluti af manni, landið og þjóðin og þeir sem að fólkið manns kaus til að vera fulltrúar þess. Þá líður manni ekkert alltof vel með það. Þetta er ferlega skrítin tilf- inning. Svo þegar það bætist við þessi mýta um að við séum búin að hreinsa hér allt upp eftir hrun og fangelsa alla bankaskúrkana og þeir séu allir bara í einangrun, þá á maður fá svör. Það er semsagt fínt að vera frjáls frá þessu á með- an ástandið hér er svona nokkurn veginn eðlilegt, en þegar allt snýst við þá getur verið óþægilegt að vera í burtu.“ Gott samstarf Kristinn hlakkar til að stíga á svið á Reykjavík Midsummer music um miðjan mánuðinn. Hann segir að þeir Víkingur Heiðar nái vel saman. „Samstarfið er mjög frjótt. Víking- ur tekur engu sem sjálfsögðum hlut og spyr sjálfan sig og mig spurn- inga um tónlistina á öllum stigum vinnunnar. Það finnst mér svolítið gaman, það er alltaf allt undir. Sér- staklega fyrir mann eins og mig, sem er kominn á þennan aldur, þá eiga hlutirnir til að „setjast“ dálítið mikið. Maður verður vanur því að gera hlutina dálítið eins við endur- tekningu. Þá er alltaf hollt að taka eitt skref til baka og athuga hvort það sé hægt að fara með tónlistina í aðrar áttir en maður hefur áður gert.“ Sólin hækkar enn á lofti, ferða- lagið heldur áfram. Venjulega er alveg óskaplega gott að vera í burtu frá öllu kjaftæðinu hérna, sem er oft svo smátt. Reykjavík Midsummer Music í Hörpu 16-18. júní Mynd | Hari 24 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016 MARGSKIPT GLER og SELESTE UMGJÖRÐ 49.900 kr! Fullt verð: 95.800 kr KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.