Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 04.06.2016, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 04.06.2016, Blaðsíða 6
landi sem tóku kristna trú á öðrum stöðum á Íslandi, en ég hef skírt 16 manns, 15 fullorðna og 1 barn, síð- an í fyrrasumar. Þá eru um 10 aðrir hjá mér í skírnarfræðslu. Þeir eru frá Afganistan, Írak og öðrum Mið- austurlöndum eða Norður Afríku, en ég get ekki verið nákvæmari af ótta við að samlandar þeirra ráð- ist á þá.“ Toshiki segir að ástæðan fyrir trúskiptunum sé mismunandi og einstaklingsbundin, sumir hafi haft trúarlegan bakgrunn en aðrir ekki. Það sé þó algengt að þeir hafi fengið alveg nóg af íslam í heima- löndum sínum vegna átaka og seg- ist hafa fengið nóg af því að fólk sé jafnvel drepið í nafni trúarinnar. „Fyrir fólkið sem sækist eftir trú- skiptum er kristnin oftar en ekki tákn fyrir nýjan heim, nýtt líf og nýja von. Ástæðan sé þó sjaldan mjög einföld heldur verki margir þættir saman. „Þannig er kristn- in í augum sumra eins og miði til Evrópu en aðrir vilja raunveru- lega breyta einhverju í lífi sínu,“ segir Toshiki. „Sumir eru haldnir þeim misskilningi að kristnitaka geti greitt fyrir hælisumsókn en ég útskýri fyrir þeim að þannig sé það ekki. Það er þó engu að síður staðreynd að víða í Evrópu er sterk andúð gegn múslimum og það er því ekki útilokað að kristnitaka geti haft einhver áhrif.“ Þetta er síður en svo einsdæmi, í Þýskalandi er þetta þekkt fyrir- bæri, þar aðstoðar kirkjan flótta- menn með fæði og húsaskjól, sem ýtir undir samskipti kristinna og múslima. Hér er því ekki þannig farið en engu að síður hafa sum- ir prestar innan þjóðkirkjunnar haft faðminn opinn fyrir fólk sem sækist eftir alþjóðlegri vernd hér á landi og fjölskyldur þeirra sem oft búa við mikla einangrun í sam- félaginu. Ekki að leika í leikriti Margt fólk sækir bænastund- ir saman tvisvar í viku, bæði í Laugarneskirkju og Hjallakirkju í Kópavogi. Bænastundirnar fara fram á ensku, en þótt sum þeirra tali enga ensku, hjálpast þau að og þýða hvert fyrir annað. Nokkur sækja einnig íslenskar messur. Toshiki segir að sem vanur prestur geti hann fullyrt að fólkið sé ekki Myndir | Hari 6 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016 Hópur hælisleitenda hefur snúist til kristni undir handleiðslu Tos- hiki. Þeir segjast hafa heillast af kristninni þar sem hún sé frið- samari trúarbrögð og leiði til betri lífshátta. Sjálfur segir Toshiki að þeim finnist sem íslamskir lifnað- arhættir séu of herskáir en útilokar ekki að þeir líti á trúskiptin sem aðgöngumiða að betra lífi. Fjórtán snerust til kristni „Ég veit ekki um múslima hér á KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI SPÖNGINNI, GRAFARVOGI Claudio Lopes - Gas olino - Laura M 50% afsláttur Jil Sander umgjarð ir frá: 17.500 kr. Fullt verð: 35.000 kr 50% afsláttur Hópur hælisleitenda hefur snúist frá íslam til kristni Laugarneskirkja, klukkan er þrjú á þriðjudegi. Á þriðja tug karla og tvær konur frá Miðausturlöndum sitja í bænahring undir hand- leiðslu Toshiki Toma, prests innflytjenda í Reykjavík, og Kristínar Þórunnar Tóm- asdóttur, sóknarprests í Laugarneskirkju. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Íslam tekur öll völd af einstaklingum Tahseen, dvelur í Arnarholti á Kjal- arnesi, en verður fluttur nauðugur til Noregs á miðvikudag. Hann segir að íslam taki öll völd af einstakling- um. Hann er núna í skírnarfræðslu undir handleiðslu Toshiki. „Ég vil ráða hvernig manneskja ég er, í ís- lam eru allar ákvarðanir teknar fyrir þig og þú hefur mjög takmörkuð mannréttindi. Ég er ekki túristi, ég er á flótta og hef lifað mjög hættu- legu lífi. Ég gerði þau mistök að skilja eftir fingraförin mín í Noregi og verð því sendur þangað aftur. En af hverju má ég ekki ráða því hvar ég vil vera.“ Sumir eru haldnir þeim misskilningi að kristnitaka geti greitt fyr- ir hælisumsókn en ég út- skýri fyrir þeim að þannig sé það ekki. Það er þó engu að síður staðreynd að víða í Evrópu er sterk andúð gegn múslimum og það er því ekki útilokað að kristnitaka geti haft einhver áhrif Toshiki Toma Bænahringur í Laugarneskirkju. Þar var fjöldi manns sam- ankominn sem hefur skipt um trú eða ætlar að gera það. Ekki vildu þó allir vera á mynd. Ég vil ráða hvernig manneskja ég er, segir Tahseen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.