Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 04.06.2016, Qupperneq 8

Fréttatíminn - 04.06.2016, Qupperneq 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016 Gjaldeyrir.is er tímasparnaður fyrir alla Pantaðu ferðagjaldeyrinn á gjaldeyrir.is og gríptu hann með þér í nýja útibúinu okkar á Keflavíkurflugvelli á leið út í heim. Viðskiptavinir allra banka geta nýtt sér þessa þjónustu. Það verður ekki mikið þægilegra. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA –  1 6 - 1 2 6 8 að leika eitthvert leikrit, það komi af því að því líði vel í kristnu samfélagi. Þau séu hinsvegar stund- um viðkvæm fyrir því að aðrir viti að þau sæki kirkju, það komi fyr- ir að samlandar þeirra ráðist á þau eða þau verði fyrir aðkasti vegna trúskiptanna. Hann segir að trúskiptin geti haft alvarleg áhrif verði fólk sent til baka til heimalanda sinna. Þetta sé því mjög stór ákvörðun. Ef fólk er sent til baka til Írans eða Afganistan geti þetta varðað dauðarefsingu. Fyrir fólk frá Írak eða öðrum múslimalöndum geti þetta þýtt talsverða erfiðleika eða vandræði. Miði til Evrópu En líta flóttamennirnir á trúskipt- in sem aðgöngumiða að betra lífi? Mohammed Reza Moghadam er 27 ára Kúrdi frá Íran sem fékk nýlega Kristni og Íslam eru ekki svo ólík trúarbrögð „Það er svo gott og einfalt að vera kristinn,“ seg- ir Sabah, einn þeirra fyrrverandi múslima sem hafa snúist til kristni hér á landi. Hann er 35 ára Íraki sem Útlendingastofnun lét flytja nauðugan til Noregs klukk- an fimm á þriðjudagsmorgun. „Kristni og íslam eru ekki svo ólík trúarbrögð, munur- inn er minni en margir halda. En kristna samfélagið er svo fallegt og ekki jafn herskátt og í íslam,“ segir hann. Sabah var í íraska hernum og vann þar við bílavið- gerðir. Hann vann líka fyrir mannréttindasamtök við að afla upplýsinga um spillingu í stjórnkerfinu og vegna þess lenti hann upp á kant við lögreglusveitir sem réð- ust inn á heimili hans og höfðu í hótunum við hann og konu hans. Konan hans fór aftur til fjölskyldu sinnar en hann flúði til Noregs. Í Noregi dvaldi hann í mót- tökumiðstöð fyrir flóttamenn, fyrst í Trysil og síðan í Hönefoss, og hitti fáa eða enga Norðmenn. „Ég var í tvo mánuði í Noregi. Mér leið ekki vel, það voru mjög margir saman og óþrifalegt, sérstaklega í Hönefoss. Ég var veikur fyrstu dagana í Noregi en enginn læknir kom til mín.“ Hann sagðist vera afar sorgmæddur yfir flutn- ingunum, enda líkaði honum vel á Íslandi en hér dvaldi hann í rúma 6 mánuði. „Norðmenn líta svo á að það sé í lagi með ástandið í Suður Írak og senda mig sjálfsagt til baka þangað. Ég er bara að biðja um að geta verið öruggur. Í dag veit ég ekkert um framtíðina, ég er bara leiður og sorgmæddur.“ Abbas, 25 ára fyrrverandi hermaður og vélvirki frá Írak, sem var fluttur með sömu vél til Noregs á þriðju- dag hefur líka skipt um trú. Hann segist hafa flúið und- an vopnuðum öryggissveitum stjórnvalda sem vildu að hann gengi til liðs við þær. Hann flúði til Noregs þar sem hann var í tvo og hálfan mánuð áður en hann fór til Íslands. „Ég er mjög hræddur við framtíðina,“ segir hann en ekkert blasir við nema ferð aftur til Íraks þar sem óöryggið tekur við. dvalarleyfi á Íslandi en hann var á flótta frá heimalandinu í tólf ár, þar af átta ár í Noregi, þar sem líf hans var meira og minna bak við luktar dyr, enda var hann pappírs- laus og réttlaus í landinu og gat því ekki haldið áfram með líf sitt. Hann segist hafa átt erfiða daga í Noregi en ástandið hafi þó versnað mik- ið síðustu árin enda mikil ásókn flóttamanna þangað. Hann snerist til kristni hér á landi en hann segist trúa á vestræn gildi. „Á Íslandi er gott og fallegt samfélag fólks. Það eru svo margir hlutir sem hafa far- ið á versta veg í íslam. Ég vil bara segja að það sé fallegra að vera kristinn,“ segir hann. Toshiki Toma og Rezhik, sem fékk nýlega dvalarleyfi hér á landi. Hann hefur ver- ið um tólf ár á flótta, lengst af í Noregi, en snerist til kristni hér á landi og hefur verið virkur í safnaðarstarfi í Laugarneskirkju. Abbas og Sabah voru báðir handteknir og sendir til Noregs á þriðjudag. Þeir snerust til kristni hér á landi undir hand- leiðslu Toshikis Toma.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.