Fréttatíminn - 04.06.2016, Síða 14
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri:
Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Einu sinni þekkti ég kött sem komst nærri því að lifa sjálf-an sig. En hann náði því þó ekki. Fjörgamall var hann
orðinn tannlaus og nærri blindur.
Hann var krepptur af gigt og næst-
um hárlaus en ekki alveg því honum
tókst að skilja eftir sig gráa hárflóka
eins og minnisvarða í stólum og sóf-
um, þar sem hann hafði búið um
sig, svo ekki sé minnst á stöku polla
hér og þar.
Hann hafði áður verið konung-
ur hverfisins, rauður og úfinn, stór
eins og hundur og grimmur þegar
honum fannst að sér vegið. Allir
aðrir húskettir báru óttablandna
virðingu fyrir honum og viku
ósjálfrátt úr vegi þegar hann gekk
sína vanabundnu eftirlitsgöngu
um hverfið. Hann þurfti aldrei að
reisa burstir til að þeir kiknuðu í
hnjáliðunum. Það var nóg að vita
af honum.
Þegar ellin náði honum að lokum
hélt hann uppteknum hætti en með
erfiðismunum. Hann svaf mestallan
sólarhringinn og nærðist nær ein-
göngu á fljótandi fæðu. Þegar kom
að eftirlitsgöngunni, rétti hann úr
stirðum limunum svo það brakaði
og brast í honum, hvessti hálfblind-
um augum fram fyrir sig og arkaði
af stað. Ef hann sá ketti skjótast um
setti hann upp kryppu með sárs-
aukafullum herkjum, bretti upp á
efri vörina og lét skína í tannlausan
góminn.
Þetta hafði áhrif en bara um
skamma hríð.
Það fóru að dúkka upp kett-
ir í garðinum hans, á girðingunni
sem hann hafði áður stjórnað, þeir
ráku jafnvel ljóta hausana inn um
þvottahúsgluggann þar sem matar-
skálarnar hans stóðu. Ef kettir gætu
hlegið, þá hefði allt hverfið ómað af
hlátrasköllum (þeir komast nærri
því) og ef kettir gætu grátið, þá
hefðum við heyrt háværar grátstun-
ur þegar hann komst að því að þetta
var búið og lagði sig niður og dó.
En þetta voru bara kettir.
Ef þetta hefði verið íslenska þjóð-
in, þá hefði þetta kannski tekist hjá
honum, miklu, miklu lengur. Kettir
eru nefnilega sjaldnast kvíðasjúk-
lingar. Þeir eru mjög hreinir og
beinir.
Við manneskjurnar hefðum sjálf-
sagt lagst á Facebook og bölsótast
og muldrað og tuldrað yfir því að nú
væri hann enn og aftur að rölta um
hverfið, eins og kóngur. Með djöful-
legum klækjabrögðum ætlaði hann
að leggja það undir sig og það tæk-
ist sjálfsagt.
Látum hann ekki villa um fyrir
okkur með þessum tannlausa gómi,
hefðum við hvíslað að hvert öðru,
hann er betur tenntur en við höld-
um, og þessi blindu augu sjá í gegn-
um holt og hæðir. Við hefðum lagt
undir þennan ótta okkar heilu dag-
blöðin og útvarpsþættina og nötrað
af kvíða fyrir því að þurfa að lúta
þessari skelfingu.
Kvöld eftir kvöld hefðum við setið
við tölvurnar lauguð draugalegri
birtu af skjánum og skipst á ógur-
legum sögum af þessu fyrirbæri í
fortíðinni. Og eins og eiturlyfja-
sjúklingar, sem þurfa sífellt stærri
skammt, hefði það þrífeflst í með-
förum okkar, fengið horn og klaufir
og jafnvel spúð eldi.
Og þökk sé okkur, hefði það feng-
ið langt og auðugt framhaldslíf.
En það er sælt að eiga sameig-
inlegan óvin. Meira að segja litlu
börnin færu að suða í ömmu sinni
að segja sögur af þessum ógurlega
kóngi, þau myndu fyllast angist sem
umbreytist í sæluhroll þegar þau
muna að þau eru bara að hanga í
pilsunum á ömmu og vondi kóngur-
inn kemst ekki úr sjónvarpinu, út-
varpinu eða blöðunum. Eða hvað?
En þetta voru bara kettir.
Ég veit ekki af hverju þessi saga af
kettinum kom upp í hugann þegar
ég hlustaði á útvarpið í bílnum á
leið í vinnuna á föstudagsmorgun.
Auðvitað á hún ekkert erindi við
aðra.
Þetta voru bara kettir.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
BARA
KETTIR
14 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
SUNNUDAGS
LAMBALÆRI
SUNNUDAGSSTEIKIN
SVÍKUR EKKI!
HÆGELDAÐ LAMBALÆRI
MEÐ RÓSMARÍN OG HVÍTLAUK
Sykurbrúnaðar kartöflur
„Crispy“ kartöfluteningar
með rósmarín og hvítlauk
Heimalagað rauðkál
Pönnusteiktir blandaðir sveppir
Ofnbakaðar gulrætur
Grænar baunir með myntu
Maís
Bjór- hollandaisesósa
Sveppasósa
2.900 kr. á mann
Aðeins framreitt fyrir allt borðið.
með öllu tilheyrandi
ALLA SUNNUDAGA
FRÁ 12–14.30