Fréttatíminn - 04.06.2016, Page 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016
Súld, sjólítið, gráð – orðin
sem lýsa veðrinu heilla
Kristínu Bogadóttur ljós-
myndara. Hún hefur nú
opnað netta ljósmyndasýn-
ingu í Þjóðminjasafninu með
myndum af veðri og sjólagi.
„Mér finnst veðurfréttir heillandi,
hvernig maður ferðast kringum
landið þegar maður hlustar á veðr-
ið,“ segir Kristín Bogadóttir. Þetta
kann að virka gamaldags, en mér
finnst þær svo skemmtilegar.“
Tungumálið í kringum veður er
ríkulegt en sem ljósmyndari þarf
Kristín að fylgjast vel með veðrinu.
„Mér finnst að við ættum að vera
duglegri að reyna að lesa umhverfi
okkar. Ég hafði lengi tekið myndir
af sjónum en það var Trausti Jóns-
son veðurfræðingur sem sagði mér
að ég væri í raun að tala um „sjólag“
og nú væri það aðeins á átta stöðum
Bolungarvík,
austnorðaustan 7,
skýjað, dálítill sjór,
hiti við frostmark.
Hvernig lítur „dálítill sjór“ út?
Marsibil Erlendsdóttur, veðurathug-
unarkona á Dalatanga. Marsibil tekur
veðrið á þriggja tíma fresti allan sól-
arhringinn. „Maður er alltaf að pæla
í veðrinu,“ sagði Marsibil við Kristínu
Bogadóttur.
Mánárbakki,
austnorðaustan 8,
alskýjað, sjólítið,
hiti 7 stig.
Myndir | Hari
Mér væri sama þó ég byggi í kústa-skáp svo lengi sem ég hefði sæmilega stúdíó-aðstöðu,“ segir 24
ára Kristófer Páll Viðarsson sem
býr í einstaklingsíbúð á Stúdenta-
görðunum. Í háskólanum sæk-
ir hann listfræði með ritlist sem
aukagrein og ver frítíma sínum í að
semja tónlist undir nafninu Aska
og skrifa ljóðabækur.
„Ég ætla ekki að skafa utan af
því, ég er með verst staðsettu
íbúðina á stúdentagörðunum,“
segir Kristófer og vísar í aðkomu
íbúðarinnar sem er staðsett við
ruslagámana. „Aðkoman er mjög
subbuleg og fyrir utan svalirnar
má fylgjast með ruslinu hrannast
upp í hverri viku. Fyrir utan það er
ég mjög sáttur hérna og þakklátur
fyrir að fá íbúð á hagstæðu verði.“
Kristófer er fæddur og uppalinn
á Akureyri og flutti til Reykjavíkur
í nám fyrir nokkrum árum, sam-
ferða vini sínum. „Félagi minn er
búinn að flytja fjórum sinum síðan
og er á stöðugu vappi á leigumark-
aðinum. Ég vil ekki hugsa um það
hvernig mínum högum væri hátt-
að hefði ég ekki þessa aðstöðu.
Sæki ég um meistaranám fæ ég að
halda þessari íbúð í þrjú ár í við-
bót, ég er hæstánægður með það.“
Húsgögn íbúðarinnar er sam-
tínsla þess sem Kristófer hefur
fundið og fengið gefins. Sjálfur
er hann ódýr í rekstri og byggist
fæðan á múslí, ávöxtum og kaffi
„Félagi minn keypti sófann í Góða
hirðinum og gaf mér hann síðan,
annað skrifborðið fiskaði ég af
haugunum og hitt hefur fylgt mér
alla tíð.“ Dýrmætasta djásnið eru
stúdíóhornið á skrifborðinu með
hljóðgervli og öðrum búnaði sem
Kristófer nýtir til að semja tónlist,
sem gengur prýðisvel að eigin
sögn. „Ég seldi tæplega helming
af vínylplötunum mínum til að
fjármagna græjurnar. Ég hætti að
drekka og einblíni alfarið á tón-
listina þessa dagana.“
Helsta áskorun Kristófers þessa
dagana er að vakna fyrr. „Ég vil
nýta daginn betur og semja tón-
list á morgnana. Ég vakna oftast
ekki fyrr en klukkan tvö og fer í
vinnuna stuttu síðar.“ Í nánu sam-
býli Stúdentagarðanna þýðir ekki
að spila tónlist fram eftir kvöldi.
„Einu samskipti mín við ná-
grannana eru hávaðakvartanir svo
ég get ekki unnið fram eftir.“
En í hverju liggja áherslurnar að
gera stúdentagarð að heimili? „Það
skiptir mig mestu máli að fá að
vera í friði. Ég hafði miklar áhyggj-
ur af því að lenda á kollega íbúð-
um þar sem nokkrir deila eldhúsi,
ég hefði ekki höndlað það. Hér
er góður friður þar til um helgar,
þetta er partíblokkin.“
Fleiri myndir á
frettatiminn.is
Stúdentagarðarnir #5
„Ég ætla ekki að skafa
utan af því, ég er með
verst staðsettu íbúðina
á Stúdentagörðunum.“
„Sama þó ég byggi
í kústaskáp“
Kristófer Páll Viðarsson er fimmti viðmælandi í myndaröðinni Stúdenta-
garðarnir. Hann er feginn að vera laus við hrellingar leigumarkaðarins og
segist glaður búa smátt svo lengi sem það sé friður til að semja tónlist.
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Kristófer gaf út plötuna Grátónar undir nafninu Aska og ljóðabókina Feigðarórar
í seríu Meðgönguljóða sem er uppseld í dag.
Kristófer nældi sér í ódýr húsgögn í Góða hirðinum og á haugunum. Hann
segir engu máli skipta hvernig hann býr svo lengi sem hann hafi stúdíó.
veðurathugunarmenn sem fylgdust
með því.“
AIRWEIGHT TITANIUM UMGJÖRÐ
og létt harðplast gler með glampa-, rispu- og móðuvörn.
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
Nær eða fjær styrkleiki
19.950 kr.
Fullt verð: 53.700 kr
Margskipt gler og umgjörð
59.900 kr.
Fullt verð: 109.100 kr
Öll glerin koma með rispu-,
glampa- og móðuvörn.
Evolis frönsku verðlauna-
glerin frá BBGR eru með
tvöfalda yfirborðsslípun sem
færir þau í nýja vídd.