Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 04.06.2016, Qupperneq 42

Fréttatíminn - 04.06.2016, Qupperneq 42
Hlegið og grátið í Háskólabíói Það ríkti mikil eftirvænting í Háskólabíói á fimmtudagskvöld þegar myndin Jökullinn logar var forsýnd fyrir fullum sal. Myndin fjallar um leið íslenska lands- liðsins á Evrópumeistaramótið í knattspyrnu sem hefst í næstu viku. Sölvi Tryggvason, höfundur og framleiðandi myndarinnar, ávarpaði gesti áður en sýningin hófst og þakkaði meðal annars foreldrum sínum fyrir góðan stuðning. Myndin virtist leggjast vel í fólk, en það var bæði hlegið og grátið í salnum, enda mikið um broslegar uppá- komur og hjartnæm augnablik sem fest voru á filmu. Hluti landsliðshópsins lét sig ekki vanta, en í salnum voru með- al annar Gylfi Þór Sigurðsson, Jó- hann Berg Guðmundsson, Hannes Þór Halldórsson og landsliðsfyrir- liðinn sjálfur, Aron Einar Gunnars- son. Sölvi kallaði þá Gylfa Þór og Jóhann Berg upp á svið og lét þá taka þátt í smá sprelli þar sem þeir spörkuð bolta á milli sín og svo út í sal. Bað Sölvi bíógesti um að reyna að festa spörkin á filmu og birta á samfélagsmiðlum með kassamerk- inu #jökullinnlogar. Eigandi bestu myndarinnar myndi svo fá bolta í verðlaun. Kristín Ólafsdóttir, eiginkona Björgólfs Thors Björgólfssonar, er meðframleiðandi myndarinnar og var hún að sjálfsögðu mætt til að taka á móti bíógestum. Eigin- maðurinn var ekki langt undan, gekk á milli fólks og blandaði geði. Þarna var, að sjálfsögðu, mætt öll knattspyrnuelítan og öflugustu knattspyrnuáhugamenn lands- menn, ásamt fylgifiskum. Eftir myndina var svo blásið til frumsýningarteitis á barnum á hinu nýopnaða hosteli, Oddsson í JL-hús- inu, þar sem skálað var í freyðivíni undir ljúfum djasstónum. Jessica Alba var strákastelpa Jessica Alba var í viðtali í Instyle á dögunum og segir hún frá því þar að hún hafi verið mikil stráka- stelpa í uppvextinum. Hún eyddi miklum tíma með bræðrum sínum og spilaði fótbolta. Það var ekki fyrr hún fór að vera þekkt fyrir að leika að hún fór að klæða sig upp. Það var svo árið 2001 sem hún var í efsta sæti á Maxinm ś Hot 100 listanum. Fyrir þann tíma var hún mikið í víðum buxum og toppum og hettupeysum og segir hún sjálf að þessi klæðnaður hafi verið andstæðan við kynþokkafullt. Rob Kardashian og Blac Chyna með sinn eigin þátt E! News hefur staðfest að Rob Kardashian og Blac Chyna ætli sér að vera með sinn eigin raunveruleikaþátt, sem hefur verið kallaður Rob & Chyna. Eins og flestir vita eru fjölskyldumeðlim- ir Rob með einn vinsælasta raunveruleika- þátt í heimi og samkvæmt mörgum slúð- urmiðlum ytra, eru Kardashian og Jenner systur misánægðar með þessa samkeppni. Fyrst var áformað að Rob og Chyna myndu koma fram í þættinum Keeping Up With The Kardashians, en Blac var ekki sátt við þá upphæð sem hún átti að fá fyrir það svo hún hafnaði því. Sharon og Ozzy ekki að skilja í alvöru Skilnaður rokkarans Ozzy Osbourne og eiginkonu hans til rúmlega 30 ára, Sharon Osbourne, hefur vakið mikla athygli upp á síðkastið. Nú hefur Steven Machat, fyrrum umboðsmaður Ozzy, stigið fram og vill meina að þessi skilnaður sé ekki alvöru skilnaður. Hann vill meina að hjónakornin séu einfald- lega að vekja á sér athygli vegna komandi tónleikaferðar Ozzy, Black Sabbath tour. Í viðtali við slúðurmiðilinn RadarOnline segir Steven: „Ég myndi þora að veðja peningum á það að þetta er fjölmiðlabragð. Sharon myndi ekki hika við að beita svona brögðum til að vekja athygli á þeim.“ Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Allir á þessari mynd eru betri íþróttaf-réttamenn en ég. Það er ekki af því ég er kona, heldur af því ég hef bara sex mánaða reynslu af því að starfa sem íþróttafréttamaður, á meðan þeir hafa verið þarna í mörg ár,“ segir Svava Kristín Grét- arsdóttir sem gegndi starfi íþrótta- fréttamanns á 365 á síðasta ári og vísar þar í auglýsingu frá fyrirtæk- inu sem gekk eins eldur í sinu um netheima í vikunni. Á henni eru 12 karlmenn og þeir sagðir starfa á öflugustu íþróttadeild landins. 6 ára í viðtali hjá Gaupa „Auðvitað hefði verið gaman að sjá konu á þessari mynd, en akkúrat núna er bara ekki kona í 100 pró- sent starfi þarna,“ heldur Svava áfram. Hún er sannfærð um að ástæðan fyrir því að svo fáar konur starfi sem íþróttamenn hérlendis sé ekki sú að það sé ekki vilji til þess að ráða konur á íþróttadeildirnar. „Ég á karlkyns vini á svipuðum aldri og ég sem hafa sótt um starf á íþróttadeildinni en ekki feng- ið. Þeir vilja einfaldlega fólk með reynslu. Ég man eftir því þegar ég var sex ára þá tók Gaupi (Guðjón Guðmundsson) viðtal við mig á Pæjumótinu. Eðlilega veit hann meira um íþróttir en ég, hann hef- ur miklu meiri reynslu. Ég held að þetta sé miklu meira spurning um að það er stöðugur niðurskurð- ur hjá fjölmiðlafyrirtækjunum í landinu og því erfitt að hleypa reynslulausu fólki að. Auðvit- að er það svo alveg umræða sem má taka, hvort megi ekki fara að skipta út og yngja upp.“ Hrósað af þjálfara Sjálf brennur Svava fyrir því að starfa sem íþróttafréttamaður. „Ég er búin að sækja um. Um leið og samningurinn minn rann út í fyrra þá sótti ég um aftur og líka fyrir sumarið. Ég þrái að komast þarna inn aftur. Þetta er skemmti- legasta starf sem ég hef unnið. Ég þarf þá bara að berjast við þessa karla,“ segir hún kímin. Svava, sem hefur mikinn áhuga á íþróttum og fylgist vel með, viðurkennir að hún hafi verið töluvert stressuð þegar kom að því að taka fyrsta alvöru viðtalið við þjálfara í Pepsídeild karla í fót- bolta. „Ég fór að ímynda mér að hann héldi að hann væri að fara að tala við einhverja litla stelpu sem vissi ekki neitt um fótbolta. En það var bara eitthvað sem ég bjó til og var aldrei til staðar. Ég frétti það svo eftir viðtalið að þessi þjálfari talaði um hvað hann hafi verið ánægður með mig, bjóst ekki við því hversu ágeng ég var, enda gaf ég honum ekkert eftir.“ Ekki bara sæta stelpan Svava segist aldrei hafa upplif- að vanvirðingu í sinn garð innan íþróttaheimsins eða frá kollegum. Það hafi frekar verið hinn almenni borgari sem virtist telja að hún væri bara sæta stelpan sem fengi fréttirnar skrifaðar og læsi þær upp. „Mér fannst frábært að finna virðinguna sem ég fékk frá íþrótta- mönnum og þjálfurum á landinu, sérstaklega frá strákunum í Pepsí- deildinni sem fólk heldur að gagn- rýnin sé að koma mest frá.“ Ég þarf bara að berjast við þessa karla Svava Kristín starfaði sem íþróttafréttamaður á 365 um nokkura mánaða skeið og upplifði aldrei vanvirðingu í sinn garð. Hún telur að fjölmiðlafyrirtækin vilji ráða konur en það sé oft erfitt vegna reynsluleysis Skemmtilegt Svava Kristín segir íþróttafréttamannsstarfið það skemmtilegasta sem hún hefur unnið og þráir að komast aftur í bransann. Mynd | Hari Kvikmynd Sölva Tryggvasonar, Jökullinn logar, féll feiknarvel í kramið hjá bíógestum á heiðursforsýningu í Háskólabíói …fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2016 Ég þrái að komast þarna inn aftur. Þetta er skemmti- legasta starf sem ég hef unnið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.