Fréttatíminn - 04.06.2016, Síða 44
mál og hélt að þegar ég yrði full-
orðin þyrfti ég að fara í „alvöru
vinnu“. Ég hafði ekki hugmynd
um það hvað það er sjúklega mikil
vinna að starfa við listsköpun,“
segir Salóme sem var á þriðja ári
í lögfræði þegar hún venti sínu
kvæði í kross og sótti um inngöngu
í leiklistardeild Listaháskólans.
„Ég kom ekki auga á það fyrr
en ég var komin inn í skólann að
ég var búin að vera stanslaust í
leiklist frá því ég var í grunnskóla.
Sumarstörfin mín og allt það sem
ég gerði eftir skóla var mjög leik-
listarmiðað.“
Greip lögfræðina
Salóme stóð sig alltaf vel í skóla og
vildi halda því áfram. Hún vildi
gera foreldra sína stolta, fá góðar
einkunnir og verða góður og gild-
ur þjóðfélagsþegn. Læra eitthvað
virðulegt. Hugmyndin um leik-
listina sem nám eða starfsvettvang
var henni mjög fjarlæg.
Ýmsir höfðu gert sér í hugarlund
að ég færi á náttúrufræðibraut
í MR og yrði jafnvel læknir, en í
staðinn fór ég á málabraut í MH
og hafði því engan grundvöll til
að fara í læknisfræði. Vali mínu til
varnar benti ég á að ég gæti alveg
lært eitthvað „flott“ þrátt fyrir að
vera ekki með aukastærðfræði
í farteskinu. Lögfræðin var það
fyrsta sem ég greip sem eitthvert
„alvöru“ sem ég gæti gert, þrátt
fyrir að hafa farið á málabraut.
Raunveruleg ástæða var hins vegar
sú að mér þóttu tungumál frábær
og ég fór í MH út af leiklistinni.“
Þegar Salóme lítur til baka þá
finnst henni eins og undirmeðvit-
undin hafi stöðugt verið að stýra
henni í átt að leiklistinni á sama
tíma og hún á yfirborðinu reyndi
að streitast á móti. „Ég var að
reyna að skrifa einhverja yfirsögu
þar sem ég yrði ábyrgur og flottur
fullorðinn einstaklingur,“ útskýrir
hún.
Hryggbrotnaði í sirkus
Salóme hafði starfað með Sirkus
Íslands meðfram lögfræðinni og
fékk þar góða útrás. „Það hent-
aði mér vel að vera flippskunkur á
kvöldin, en sökum þess hve ég var
óábyrg og fljótfær, og ekki í viðeig-
andi öryggisbúnaði, þá hrygg-
brotnaði ég – braut tvo hryggjarliði
– og mátti ekki mæta á æfingar.
Svo ég varð að finna mér eitthvað
annað að gera á kvöldin og þannig
endaði ég í Stúdentaleikhúsinu.“
Fljótlega fór Stúdentaleikhús-
ið að ganga fyrir hjá Salóme og
námið sat á hakanum. „Til að gera
langa sögu stutta þá stóð ég mig
illa í lögfræðinni. Þó ég hafi verið
duglegur námsmaður þegar ég var
yngri þá gat ég ekki setið og lesið
þegar ég var komin í háskólann.
Það er svo mikill dugnaður í þess-
um krökkum. Ég man eftir því að
hafa horft kringum mig í lesstof-
unni og velti því fyrir mér hvort ég
væri virkilega sú eina sem væri að
þykjast lesa,“ segir hún og skellir
upp úr.
Varð fljótt óhamingjusöm
Á þriðja árinu í lögfræðinni tók
Salóme ákvörðun um að taka sér
tak. Hún fékk undanþágu til að
taka fleiri einingar á önninni en
leyfilegt var og ætlaði að einbeita
sé alfarið að náminu. Setti sjálfa
sig í leiklistarbann. „Ég var ekki
lengi að verða mjög óhamingju-
söm. Og ég man varla eftir því
hvernig ég tók svo loksins U-beygj-
una. Allt í einu var ég bara mætt í
inntökuprófin í LHÍ og sem betur
fer tóku þeir mig inn. Það er stund-
um eins og ég fari í „blackout“ og
taki þá þær ákvarðanir sem beina
mér í þá átt að gera mig hamingju-
sama.“
Salóme þóttist þó alltaf ætla
að klára prófin í lögfræðinni og
gekk lengi vel með bók í refsirétti
í töskunni sinni. Sumum félögum
hennar í lögfræðinni þótti þetta
undarleg ákvörðun. „Þau skildu
ekki af hverju ég var að hætta í
geggjuðu fagi þar sem ég var að
díla við alvöru hluti, til að leika
hund í leikfimitíma á Sölvhóls-
götu,“ segir Salóme sem fann þó
fljótt að leikaranámið snerist um
svo miklu meira en fíflalæti. „Þótt
það sé að sjálfsögðu líka mjög mik-
ilvægt að vera góður í að fíflast,“
bætir hún við.
Margfalt meira álag
„Þegar ég var í lögfræðinni þá leið
mér eins og ég væri í seigfljótandi
umhverfi að bíða eftir því að tím-
inn liði. Það var bara suð í hausn-
um á mér. En um leið og ég byrjaði
í Listaháskólanum var ég að frá
morgni til kvölds. Ég átti bágt með
að trúa því, en ég var skyndilega
komin í margfalt meira námsálag
en hafði verið í lögfræðinni. Þá
meina ég ekki að það sé erfiðara
að vera í leiklist en lögfræði, ég
held að munurinn hafi að stóru
leyti legið í því að ég var loksins að
vinna vinnuna. Auðvitað er ekki til
neitt nám eða starf sem er eintóm
hamingja og gleði. Það eru alltaf
einhver leiðinleg verkefni, en mað-
ur bara klárar þau. Aðeins þannig
getur maður haldið áfram að njóta
verkefnanna sem næra mann.”
Fór í bann Salóme setti sjálfa sig í leiklistarbann til að sinna lögfræðinni betur en varð fljótt
mjög óhamingjusöm. Hún hafði valið rangt.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Þetta er búið að vera mikið stuð og mikil áskorun, að þreifa fyrir mér í tónlistinni,“ segir Salóme Gunnarsdóttir,
leikkona og meðlimur í hljóm-
sveitinni Pocket Disco, sem kom
fram á sjónarsviðið fyrr á árinu og
hefur gefið út tvö lög ásamt tveim-
ur gjörólíkum tónlistarmyndbönd-
um. Salóme viðurkennir reyndar
að hún sé ekki vel að sér í tækni-
legum hliðum tónsmíðanna, en
það kemur ekki að sök. „Ég er
heppin að hafa frábæran hljóm-
sveitarfélaga í honum Steindóri
Grétari og svo reynsluboltann
Viktor Orra sem pródúserar lögin
okkar frá Berlín.”
Sagði bara já
En hvernig kom það til að Salóme
ákvað að reyna fyrir sér í tón-
listinni? „Steindór spurði mig
hvort ég vildi vera með sér í hljóm-
sveit og ég sagði bara já. Ég þekkti
hann ekkert á þeim tíma, en hann
langaði mikið að starta tónlistar-
verkefni og sameiginleg vinkona
okkar, Margrét Erla Maack, sagðist
viss um að við tvö gætum mynd-
að dúndurdúett. Margrét stakk
líka upp á nafninu, ég kýs að kalla
hana guðmóður Pocket Disco.”
Með umboðsmenn í London
Undanfarin ár hefur Salóme hins-
vegar fyrst og fremst starfað sem
leikkona, bæði á sviði og fyrir
framan myndavélar. Þá er hún
meðlimur í spunahópnum Improv
Ísland sem hefur verið með viku-
legar sýningar í Þjóðleikhúskjallar-
anum í vetur.
„Ég er búin að vera með um-
boðsmenn í London í eitt ár og hef
fengið nokkur verkefni í gegnum
þá. Meðal annars hlutverk í leik-
ritinu Fuck the Polar Bears í Bush
Theatre í vetur sem var frábær
reynsla,“ segir Salóme sem hefur
flogið ansi oft á milli Íslands og
Bretlands síðustu vikur, en hún er
búsett á Íslandi. „Mér finnst mik-
ilvægt að taka það fram að það eru
mörg verkefni sem ég fæ ekki. Ég
fæ iðulega sendar prufusenur og
handrit fyrir erlend verkefni sem
ég þarf svo að vinna og senda frá
mér á stuttum tíma. Ég lít eigin-
lega á þetta sem ókeypis fjarnám.“
Hrædd við öryggi
Salóme kann ágætlega að meta
þetta fyrirkomulag og óvissuna
sem fylgir. „Sumir þurfa að hafa
öryggi, en ég verð hálf hrædd við
tilhugsunina um of mikið öryggi
og að vita hvernig framtíð mín
verður næsta árið. Ég fæ bara inn-
ilokunarkennd. Það er eflaust eitt-
hvað sem ég þarf að vinna í,“ segir
hún og hlær. „Ég er að gera handa-
hófskennda hluti og einhvern
veginn gengur það upp. Ég vona
bara að ég sé ekki að valda fólki
óþægindum með þessari hegðun.“
Sá leiklistina sem áhugamál
Salóme hefur þó ekki alltaf verið á
þessum stað. Það stefndi í að hún
fetaði allt aðra og hefðbundnari
braut í lífinu. „Ég fattaði ekki að
það væri hægt að vinna við þetta.
Ég sá leiklistina bara sem áhuga-
Tekur stundum
ákvarðanir í „blackouti“
Salóme Gunnarsdóttir ætlaði alltaf að verða góður og gildur þjóðfélagsþegn þegar hún yrði stór.
Hún lærði lögfræði í þrjú ár áður en hún gafst upp fyrir leiklistargyðjunni sem fylgdi henni hvert fótspor.
…viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2016
Það hentaði mér vel að vera
flippskunkur á kvöldin, en
sökum þess hve ég var óábyrg og
fljótfær, og ekki í viðeigandi ör-
yggisbúnaði, þá hryggbrotnaði ég
– braut tvo hryggjarliði – og mátti
ekki mæta á æfingar.