Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 04.06.2016, Page 48

Fréttatíminn - 04.06.2016, Page 48
Laus við fótaóeirð Melissa Dream-töflurnar fá þig til að slaka á, stuðla að eðlilegum svefni og þú vaknar endurnærð/ur. Þetta er ekki lyf heldur náttúruleg vítamín og jurtir Kynning í samstarfi við Icecare Svefn skiptir miklu máli. Við búum í hröðu og eril-sömu samfélagi sem veldur því að svefntruflanir eru gríðarlega algengar. Ef þú færð ekki nægan svefn geturðu fengið bauga undir augun, húðin orðið föl og einnig getur það valdið þyngdaraukningu þar sem þú eyk- ur framleiðslu á hormónum sem kalla fram hungurtilfinningu. Laus við fótaóeirð Sigríður Helgadóttir fór að nota Melissa Dream þegar hún var búin að eiga nokkrar andvökunætur vegna fótaóeirðar sem truflaði svefn hennar. „Fótaóeirðin var mjög óþægileg og hélt fyrir mér vöku en ég er ekki vön að vera andvaka. Ég fór að leita mér ráða, þá sá ég reynslusögur í blöðun- um um Melissa Dream. Ég fór að lesa mér til um vöruna og ákvað að prófa, því það sakaði ekki að reyna.“ Sigríður tekur tvær töflur klukkutíma fyrir svefn þegar henni finnst hún þurfa á því að halda. „Þá næ ég að sofna fljótlega og svo finn ég ekki fyrir þess- um fótapirringi. Það sem mér finnst líka æðislegt við þess- ar töflur er að þær eru náttúrulegar og hafa engin eftirköst þegar maður vaknar. Ég þarf ekki að taka þær á hverju kvöldi en mér finnst ég ná að slaka svo vel á þegar ég tek þær. Ég er mjög ánægð með Melissa Dream og ég mæli með því fyrir alla”. Skaðlegt fyrir líkamann Svefnleysi veldur því að líkaminn endurnýjar sig hægar, sem getur veikt ónæmiskerfið. Í raun getur svefnleysi verið mjög skaðlegt fyrir líkamann. Það er ekki óalgengt að vinir og samstarfs- menn hafi áhyggjur af þér. Svefnleysi er svo skaðlegt fyrir fólk að það er viður- kennt sem áhrifarík pyntingaraðferð. Til þess að stuðla að eðlilegri svefni og vakna endurnærðari ættir þú að prófa Melissa Dream-töflurnar. Sítrónu- -melis-töflurnar viðhalda góðum og endurnærandi svefni. Sofðu betur með Melissa Dream Í gegnum aldirnar hefur sítrónumelis (lemon balm), melissa officinalis, verið vinsæl meðal grasalækna. Þaðan dregur varan nafn sitt, Melissa Dream. Þessar vísindalegu samsettu náttúruvör- ur eru hannaðar til að aðstoða þig við að sofa betur og vakna endur- nærð/ur og innihalda ekki efni sem hafa sljóvgandi áhrif. Sítrónumel- is taflan inniheldur náttúrulegu amínó sýruna L-theanine, sem hjálpar til við slökun auk alhliða B-vítamína, sem stuðla að eðlilegri taugastarfsemi. Auk þess inniheld- ur taflan mikið af magnesíum, sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og dregur þar með úr óþægindum í fótum og handleggjum og bætir svefn. „Það geta allir tekið þátt“ Margrét skipuleggur Berserkjarhlaup í Skálafelli. Tók sjálf þátt í fjalla- hindranahlaupi í útlöndum og heillaðist af hugmyndinni Hindranir Um er að ræða sjö kílómetra langt hlaup og tólf hindranir á leiðinni. Hugmyndina fékk Margrét eftir að hafa tekið þátt í Spartan Race. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Þú þarft ekki að vera íþróttamanneskja til að taka þátt. Ég er til dæm-is bara venjuleg 26 ára kona, sem á tvö börn og vinn á leikskóla. Ég er ekkert alltaf í ræktinni,“ segir Margrét Bjarna- dóttir, einn skipuleggjanda hins svokallaða Berserkjarhlaups sem fer fram í Skálafelli þann 23. júlí næstkomandi. Val um aðferðir Um er að ræða 7 kílómetra langt fjallahlaup með tólf hindrunum sem hannaðar eru með venjulegt fólk í huga, að sögn Margrétar. Mismunandi útfærslur eru á hverri hindrun og fólk velur þá aðferð sem hentar getu og formi. Þetta er í fyrsta skipti sem Berserkjarhlaup- ið er haldið en það er sett upp að erlendri fyrirmynd leðju- og hindr- anahlaupa á borð við Mud Runner og Spartan Race „Þrautirnar geta verið erfiðar. Ein þrautin er til dæmis að færa sandpoka frá einum stað yfir á ann- an og fólk getur valið mismunandi þyngd á pokunum. Allt frá þremur kílóum upp í fimmtán. Og ef það er þraut sem einhver getur ekki, eins og til dæmis að hífa sig upp kaðal, þá verður í boði að gera aðrar æf- ingu í staðinn,“ útskýrir Margrét. Víkingaþema Hún hefur sjálf tekið þátt í Spartan Race og heillaðist af hlaupaform- inu. „Þetta er hugmynd sem mig langaði að koma með til Íslands og ég veit að Íslendingar vilja taka þátt í svona hlaupum. Ég veit um þó nokkra sem hafa farið út og tekið þátt í sambærilegum hlaupum.“ Hugmynd Margrétar er að hafa víkingaþema í hlaupinu, að þátttak- endur komi víkingablóðinu í sér á hreyfingu og geri forfeðurna stolta. „Við erum búin að vera að kynna okkur víkingatímann aðeins. Erum til dæmis búin að fara á Landnáms- setrið í Borgarnesi og lesa ýms- ar víkingasögur. Við viljum hafa einhverjar þrautirnar í þeim anda. Ég sjálf er búin að hugsa um þetta í langan tíma og langaði að koma þessu af stað.“ Ekki gleyma baki og maga Tímataka verður í hlaupinu en fólk þarf þó ekki að ná í mark innan ákveðins tímaramma. „Fólk get- ur verið eins lengi og það þarf að klára. Þegar ég tók þátt í hlaupinu úti var ég einn og hálfan tíma að fara í gegnum brautina þó hún væri bara fimm kílómetrar. Venjulega hleypur maður þá lengd á um hálf- tíma. Mér finnst bara mikilvægt að fólk viti að það geta allir tekið þátt, nema kannski þeir sem eiga við stoðkerfisvandamál að stríða og sjúklingar.“ En fyrir þá sem hafa áhuga á hlaupinu, hvernig er best að undir- búa sig? „Það er gott að æfa sig að hlaupa utanvega, vera svolítið í þúf- um og fara upp og niður brekkur. Þá er gott að gera alhliða æfingar, ekki gleyma maga- og bakæfingum. Það munar miklu að vera sterkur á því svæði, það verður allt auð- veldara.“ Hægt er að nálgast frekari upplýs- ingar um Berserkjarhlaupið á heima- síðunni: berserkjarhlaup.com og á facebook-síðunni Berserkjarhlaup. Verð áður 249.900 199.920 Planet Pro Focus Planet hjóin eru sérstaklega viðhaldsfrí, töff, þægileg, hraðskreið og skemmtileg bæjarhjól. Það hægt er að setja á þau bretti, standara, bögglabera og nagladekk. Það er búið glussa diskabremsum, innbyggðum 8 gíra Shimano alfine gírbúnaði og endingargóðri carbon reim sem endist 10 x lengur en hefðbundin keðja. Þannig losnar maður við að þurfa að smyrja skítuga og ryðgaða keðju á samgönguhjólinu sem er í stöðugri notkun. Vönduð Þýsk hönnun og verkvit færir manni úrvals hjól á góðu verði. AFSLÁTTUR ÞÝSKT GÆÐAHJÓL Á FRÁBÆRU VERÐI Götuhjól Dalshrauni 13 Hafnarfjörður 565 2292 hjolasprettur@hjolasprettur.is hjolasprettur.is Fatnaður Pumpur Fatnaður Pumpur Hjálmar Hjálmar Fatnaður Pumpur Hjálmar 3.-15. NÓVEMBER 2016 BANGKOK - HUA HIN THAILAND Hér er þitt austurlenska ævintýri. 8 nætur á Hua Hin og 3 nætur í Bangkok. NÁNAR Á UU.IS Innifalið er flug, gisting, skattar, íslenskfararstjórn, taska og handfarangur. FRÁBÆRT KYNNINGARVERÐ 298.900 KR. Mynd | Shutterstock …heilsa 8 | amk… LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.