Fréttatíminn - 29.07.2016, Page 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 29. júlí 2016
Vaktabætur „Ég fékk 500
þúsund í vaxtabætur árið
2015 en ekkert núna,” segir
Þorgerður Erlingsdóttir, 51
árs kona, sem hefur verið ein-
stæð móðir tveggja barna, frá
árinu 2001. „Það má segja að
ég sé að greiða leiðréttinguna
sjálf.”
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Mig hafði ekki órað fyrir því að
þetta yrði svona mikil skerðing, að
vaxtabæturnar færu úr 500.000
krónum niður í ekki neitt, auk þess
sem barnabætur myndu lækka um
helming, þar sem eldri dóttir mín
sem er í menntaskóla yrði átján
ára,” segir Þorgerður Erlingsdótt-
ir. Hún keypti fjögurra herbergja
blokkaríbúð árið 2004, á 90 pró-
senta láni. Íbúðina keypti hún á
13 milljónir en hún skuldar rúma
21 milljón í húsnæðislán í dag. „Ég
gæti ekki náð endum saman ef ég
hefði ekki stuðning frá mömmu
minni.”
Þorgerður skuldaði 23,5 milljón-
ir árið 2014 og fékk 500 þúsund í
vaxtabætur árið 2015. Sama ár var
Einstæð móðir í austurborginni missir hálfa milljón á ári í vaxtabætur
Staða mín verri eftir leiðréttinguna
fasteignamat íbúðarinnar hækkað
úr 25 í rúmar 28 milljónir. Þá fékk
hún 2.000.000 í leiðréttingu.
Samtals hefur hrein eign í íbúð
hennar hækkað um tæpar 6 milljón-
ir. „Hærra fasteignamat nýtist mér
ekki nema ég sé að kaupa eða selja.
Og maður borðar ekki þessa leið-
réttingu, greiðslubyrðin af húsnæð-
islánunum lækkaði fyrst um 6.000
krónur en er nú komin í sömu upp-
hæð. Minn veruleiki hefur því ekki
breyst nema til hins verra. Núna
get ég ekki notað vaxtabæturnar
til að greiða niður skammtímalán-
in, svo sem yfirdrátt og kortalán.
Oftast á ég ekki nema 30 þúsund
afgangs af laununum mínum til að
kaupa mat og bensín á bílinn. Ég hef
oftar en einu sinni þurft að leita til
mæðrastyrksnefndar,” segir hún.
„Þegar ég fór að gera skattaskýr-
sluna mína og fékk bráðabirgða-
útreikning, fékk ég algert áfall,”
segir Þorgerður. Hún segist hafa
hringt oftar en einu sinni í skatt-
inn og fengið mismunandi svör,
til dæmis að þeir sem hefðu feng-
ið leiðréttingu Sigmundar Davíðs,
hefðu afsalað sér vaxtabótunum.
„Það hafði nú algjörlega farið fram
Jafnmargar konur og karlar hjá Viðreisn
Óli Stef orðaður við framboð
Þessi leiðrétting var algert frat frá upphafi, segir Þorgerður Erlingsdóttir. Mynd | Rut
Stjórnmál Formaður yfir-
kjörstjórnar Viðreisnar
segir að passað verði upp á
kynjahlutföllin í efstu sæt-
um framboðsins. Upp-
stillingarnefndir eru að
störfum en rætt er við
frambjóðendur þessa
dagana og vikurnar.
Gríðarlega margir sýna efstu
sætum áhuga hjá Viðreisn,
enda sýna kannanir fram á
mikinn stuðning. Meðal þeirra
sem eru orðaðir við framboð
eru Ólafur Stefánsson hand-
boltakappi.
Viðreisn ætlar að passa upp
á kynjahlutföllin í efstu sætum
framboðsins. Jórunn Frímanns-
dóttir formaður yfirkjörstjórn-
ar segir fyrirkomulag fléttulista
eiga að tryggja hlutfall kynjanna
eins og kveðið sé á um í reglum um
uppstillingu sem er nýbúið að sam-
þykkja. „Við ætlum líka að huga að
jafnræði á öðrum sviðum svo sem
varðandi aldur. Markmiðið er að
frambjóðendur Viðreisnar hafi
breiða skírskotun í
samfélaginu. Hún
segir að gríðarmikill
áhugi sé á því að kom-
ast á framboðslista en
uppstillingarnefndir
hafa tíma fram í lok
ágúst til að stilla upp á
lista: „Þetta er auðvitað
lúxusvandamál en það er
alveg ljóst að það geta
ekki allir verið í fyrsta
eða öðru sæti.” | þká
Viðskipti Enn hefur ekki ver-
ið greitt fyrir bókaverslunina
Mál og menningu þrátt fyrir
að þrír mánuðir séu liðnir frá
því að kaupsamningur var
gerður um kaupin.
Ójóst er með kaup Björns Inga
Hrafnssonar og viðskiptafélaga
á bókabúð Máls og menningar
við Laugaveginn en Fréttatíminn
greindi frá því í maí síðastliðnum að
hann hygðist kaupa rekstur verslun-
arinnar. Þá var starfsfólki tilkynnt
um fyrirætlanir Björns Inga og fé-
laga, en sjálfur fór hann fyrir hópi
fjárfesta.
Samkvæmt heimildum Fréttatím-
ans hefur hópurinn ekki enn greitt
fyrir búðina þrátt fyrir að um þrír
mánuðir séu liðnir síðan samkomu-
lag náðist um söluna. Þegar Frétta-
tíminn hafði samband við Björn Inga
sagðist hann ekki vilja tjá sig um
viðskipti sem væri ekki lokið. Hann
bætti þó við að það væri fullur vilji til
þess að fjárfesta í bókabúðinni forn-
frægu sem stendur við Laugaveg 18.
Að hans sögn stendur áreiðan-
leikakönnun yfir og vonast hann til
þess að kaupsamningurinn gangi
eftir í næstu viku.
Það er Arndís B. Sigurðardóttir
sem á og rekur bókabúðina. Hún
rak einnig Iðu við Lækjargötu, en
hún seldi verslunina til Birgis Þórs
Bieltvedt sem hyggst opna þar Hard
Rock veitingastað. Arndís sagðist
ekki geta tjáð sig um málið að svo
komnu máli.
Rekstur Máls og menningar lenti
í töluverðum vandræðum skömmu
eftir hrun, en verslunin varð gjald-
þrota árið 2011. Arndís hefur rek-
ið búðina síðustu ár og nú síðast
keypti Mál og menning kaffihúsið
þar sem Súfistinn var með aðstöðu.
Heitir það kaffihús nú Rúblan og er
nefnt eftir viðurnefni sem húsið fékk
skömmu eftir að það var byggt upp
úr miðri síðustu öld. | vg
Óvissa um kaupin á Máli og menningu
Eitthvað
virðist salan
á rekstri
bókarbúðar
Máls og
menningar
ganga hægt
fyrir sig.
„Ríkisstjórn ríka fólksins” lækkar bætur
Vaxtabætur hafa lækkað mikið frá 2013, þar af um 25 prósent frá
árinu 2015. Þá fækkaði þeim sem fá þær um 21 prósent. Sömuleiðis
fækkar þeim sem fá barnabætur greiddar. Í fjármálaáætlun fjár-
málaráðherra til næstu fimm ára er áætlað að draga enn meira úr
barnabótum og vaxtabótum. Eygló Harðardóttir félagsmálaráð-
herra segir að slík forgangsröðun fjármálaráðuneytisins hafi verið
ástæða þess að hún setti alvarlega fyrirvara við þessa áætlun þegar
hún var samþykkt í ríkisstjórn.
Oddný Harðardóttir formaður Samfylkingarinnar segir hins
vegar að ríkisstjórn ríka fólksins sé stýrt með alls konar fyrirvörum
síðustu lífdagana. Það sé ekki trúverðugt eða merki um stefnufestu
og vönduð vinnubrögð.
hjá mér. Það er ljóst að þessi leið-
rétting var algert frat frá upphafi
til enda og kemur verst við þá sem
hafa minnst milli handanna. Með
því að taka vaxtabætur af fullt af
fólki í mínum sporum er hægt að
borga hana upp og vel það. Ég er
að greiða leiðréttinguna sjálf með
þessari skerðingu og hún gæti orðið
til þess að ég missti húsnæðið mitt,
ef ég hefði ekki stuðning móður
minnar.”
Jórunn Frímannsdóttir segir
mikilvægt að frambjóðendur hafi
breiða skírskotun. Mynd | Rut
2015 2016
Launatekjur 4.850.479 4.970.879 2,5%
á mánuði 404.207 414.240 2,5%
Tekjuskattur -96.633 -99.589 3,1%
á ári -1.159.596 -1.195.068 3,1%
Barnabætur 507.817 230.115 -54,7%
Vaxtabætur 500.000 0 -100,0%
Nettóskattur -151.779 -964.953 535,8%
Ráðstöfunartekjur 4.698.700 4.005.926 -14,7%
á mánuði 391.558 333.827 -14,7%
Vantar í budduna -57.731
Ef 2 börn 2015 2016
Launatekjur 4.929.957 4.970.879 0,8%
á mánuði 410.830 414.240 0,8%
Tekjuskattur -98.216 -99.589 1,4%
á ári -1.178.597 -1.195.068 1,4%
Barnabætur 516.138 520.238 0,8%
Vaxtabætur 508.193 0 -100,0%
Nettóskattur -154.266 -674.830 337,4%
Ráðstöfunartekjur 4.775.691 4.296.049 -10,0%
á mánuði 397.974 358.004 -10,0%
Vantar í budduna -39.970
Heimilisbókhald Þorgerðar árin 2015 og 2016
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla