Fréttatíminn - 29.07.2016, Síða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 29. júlí 2016
Skötuselsmáli líklega áfrýjað til Hæstaréttar
Dómsmál Fyrrverandi þing-
menn VG og Samfylkingar
takast á um skötusel fyrir
dómi
„Ég á frekar von á því að mál
inu verði áfrýjað, en endanleg
ákvörðun liggur ekki fyrir,” seg
ir Lúðvík Bergvinsson hér
aðsdómslögmaður og sækj
andi í skötuselsmálinu sem
höfðað var gegn ríkinu vegna
ákvörðunar Jóns Bjarnasonar
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.
Ríkið vann mál sem var höfðað
vegna svokallaðra skötuselslaga
árið 2010.
Með skötuselslögunum var veitt
heimild til að veiða skötusel um
80 prósent um fram ráðgjöf Haf
rann sókna stofn un ar og að viðbót
arkvóta yrði út hlutað gegn gjaldi.
Lögmaður sækjenda er enginn
annar en Lúðvík Bergvinsson fyrr
verandi þingmaður Samfylkingar
innar.
Útgerðarfélagið Glófaxi í Vest
mannaeyjum stefndi íslenska
ríkinu og krafðist þess að viður
kennt yrði að það bæri skaðabóta
ábyrgð á tjóni sem útgerðarfélag
ið hefði orðið fyrir
vegna úthlutunar
á af laheimildum.
Dómurinn taldi ósann
að að útgerðin hefði orðið
fyrir tjóni og dæmdi ríkinu
í vil. Þá var útgerðin dæmd til
að greiða 900 þúsund krónur í
málskostnað.
Jón Bjarnason fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra segir að
ákvörðun um sérstaka úthlutun á
veiðiheimildum í skötusel hafi ver
ið afar brýnt mál á þessum tíma.
Það sé ánægjulegt að héraðsdómur
hafi komist að svo afdráttarlausri
niðurstöðu í þessu máli.
„Þarna var um geðþóttaákvörðun
sjávarútvegsráðherra að ræða,” seg
ir Lúðvík Bergvinsson. „Það var
verið að færa aflaheimildir i kjör
dæmi ráðherrans vegna þess að grá
sleppukarlar höfðu fengið skötusel
í netið. Þetta hafði sáralítið með
gjaldtöku að gera. Þá komu upp
sjónarmið um að breyta þessu með
almennum aðgerðum en ekki sér
tækum.” segir hann. | þká
Lúðvík Bergvinsson
segist frekar eiga
von á því að málinu
verði áfrýjað.
Jón Bjarnason er
ánægður með niður-
stöðuna
Verslun Verslunarmanna-
helgin er mikill álagspunktur
fyrir verslunarfólk. Fjarðar-
kaup er eitt fárra fyrirtækja
sem loka verslun sinni alla
helgina. Formaður VR segir
mikið álag á verslunarfólki,
ekki síst vegna ferðamanna-
straumsins.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
„Við reynum bara að ganga fram
með góðu fordæmi,“ segir Gísli
Þór Sigurbergsson, verðlagsstjóri
Fjarðarkaups í Hafnarfirði, en versl
unin lokar búðinni alla helgina í til
efni af frídegi verslunarmanna sem
er jafnframt orðin ein af þyngstu
helgunum þegar kemur að þjónustu.
Andrés Magnússon, fram
kvæmdastjóri Verslunar og þjón
ustu segir það óhjákvæmilegt að
þjónustuaðilar séu með opið um
þessa mestu og stærstu ferðamanna
helgi ársins. Annað væri óeðlilegt.
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR,
segir það hafa komið til umræðu
að færa frídag verslunarmanna, en
sú umræða hafi ekki leitt til niður
stöðu.
Gísli Þór birti mynd á Facebook á
dögunum, en sú mynd hefur birst á
vef þeirra síðustu ár. Þar má sjá Gísla
standa fyrir framan skilti við verslun
Fjarðarkaups þar sem tilkynnt er að
lokað verður alla helgina. Nokkuð
sem er sjaldgæf sjón á síðustu árum
þar sem mikil áhersla hefur verið á
aukin opnunartíma verslana í sam
félaginu.
„Við höfum alltaf lokað um versl
unarmannahelgina, og raunar alla
rauða daga ársins,“ útskýrir Gísli
sem segir þetta grundvallarreglu
hjá fyrirtækinu. Gísli segir það líka
grundvallaratriði til þess að halda
í gott starfsfólk. „En með fullri
virðingu fyrir ungu fólki, sem er
oft mjög góðir starfskraftar, þá hef
ég verið með reynslumikið og gott
starfsfólk mjög lengi sem er mik
ilvægt,“ útskýrir Gísli. Verslunin,
sem er rótgróin í Hafnarfirði, hefur
skilað góðum tekjum síðustu ár, en
verslunin skilaði hagnaði upp á 150
milljónir árið 2011.
Gísli segir að vaktavinna með til
heyrandi álagi á starfsfólk verslana
sé ekki heillandi til lengdar. „Mað
ur veltir því fyrir sér hvort það sé
kannski einhver millivegur sem við
mættum skoða.“
Andrés Magnússon, fram
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, segir að flestar búðir
loki á mánudeginum, sem er frídag
ur verslunarmanna. „Það er kannski
helst bensínstöðvar og slíkir þjón
ustuaðilar sem eru með opið þann
daginn,“ bætir hann við. Andrés seg
ir að það verði að horfast í augu við
að þetta sé mesta ferðamannahelgi
ársins, „og slíkt kallar á mikla þjón
ustu,“ segir hann.
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður
VR, segir að það hafi komið til um
ræðu annað slagið að færa frídag
verslunarmana, en það mál hafi þó
aldrei verið til lykta leitt.
„Nú er almennt meira álag á versl
unarmönnum út af ferðamönnum,“
segir Ólafía og bætir við að ungt fólk
grípi oft tækifærið til þess að vinna
á þessum dögum, enda vel borgað
ar vaktir.
Ferðamenn í opinberri
heimsókn hjá forseta
Nokkrir ferðamenn sem komu við
á Bessastöðum fyrir skömmu fengu
betri móttökur en venja
er til þegar um bú
staði þjóðhöfðingja
er að ræða. Þar var
veislu á vegum for
setans nýlokið og
umsjónarmaður
hússins hafði verið
beðinn um að fara
með nokkra gesti í
skoðunarferð um
húsið. Hann gerði það
en dyrnar stóðu hálf
opnar á meðan. Þegar
líða fór á heimsókn
ina varð hann var við
að talsvert fjölgaði í
hópnum og svo fór að
þótt tíu manns hefði verið boðið að
skoða húsið, skilaði umsjónarmað
urinn af sér fjörutíu áheyr
endum þegar yfir lauk.
Leiðsögumaður ferða
hóps sem hafði komið
með rútu til að skoða
kirkjuna, varð nokk
uð kindarlegur þegar
hann fékk orð í eyra
eftir uppákomuna
en ferðamennirnir
voru alsælir. | þká
„Við höfum alltaf lokað
um verslunarmanna-
helgina, og raunar alla
rauða daga ársins.“
Verslunarmenn upplifa
mikið álag um helgina
Umsjónarmaðurinn lagði
af stað með 10 ferðamenn
en skilaði af sér 44.
Mynd | Rut
Gísli Þór Sigurbergsson við skiltið góða. Hann hvetur fólk til þess að versla
tímanlega.
www.husgagnahollin.is
558 1100
Þú finnur útsölubæklinginn
á www.husgagnahollin.is Reykjavík, Akureyri og Ísafirði www.husgagnahollin.is
ÚTSALA
Sumar
afsláttur
60%Allt að
CLEVELAND
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga. Ljós- og dökkgrátt slitsterkt áklæði. Stærð: 231 × 140 × 81 cm 89.990 kr. 119.990 kr.
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
30%
ÖLL SMÁVARA
FRÁ IVV
SALLY
Hægindastóll PU-leður
Litir: Brandy, brúnn
og svartur.
29.990 kr. 39.980 kr.
AFSLÁTTUR
25%
KIRUNA
U-sófi. Hægri eða vinstri tunga. Dökkgrátt
slitsterkt áklæði. Stærð: 301 × 200 × 78 cm
179.990 kr. 239.990 kr.
AFSLÁTTUR
25%
NEPTUN
Borðstofustóll.
Eik og krómlappir.
10.990 kr. 14.990 kr.
AFSLÁTTUR
26%
ÚTSALA
Sumar