Fréttatíminn - 29.07.2016, Side 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 29. júlí 2016
Brandywine
Konungur
tómatanna í
Brennholti. Í
fullkomnu jafn-
vægi, hæfilega
súr og sætur.
Goldmedal
Dísætur. Ferskju-
og ananaskeimur. Yellow brandywine
Melónukenndur og frískandi.
Kaki
Mildur tómatur með
alveg sérstakan keim.
Cœur de bœuf rosé
Dökkur og djúpur tómatur.
Fræin, eins og í Kaki , komu
frá bónda á markaði í París.
Cœur de bœuf
Sætur og extra
safaríkur höfðingi.
Nokkur ættardjásn úr heita húsinu í Brennholti
ir var þá fullt af vínvið sem pabbi
hafði komið sér upp. Ég hringdi í
ýmsa myndlistarvini mína og bauð
þeim að koma og taka vínvið og nýta
til víngerðar. Það stóð ekki á við-
brögðum. Sjálfur hafði ég ekki áhuga
á því að brugga og vildi þess í stað
snúa mér að grænmetinu, að því sem
ég kunni.“
„Mig langaði að fá góðar afurðir
eins og ég þekkti úr æsku minni. Ég
hafði saknað þess alveg svakalega.
Við fórum því strax að rækta alls kon-
ar afbrigði af salati. Við vorum með
sextán mismunandi afbrigði þegar
mest var. Undanfarin sex ár höf-
um við verið að selja salat, einkum í
veitingastaði.“
Skilaboð um tómata
Í Brennholti í dag er tómatræktun
Tómasar í raun tvíþætt. „Annars
vegar eru þetta svokölluð ættardjásn
(e. heirlooms). Það eru súper bragð-
góðir tómatar sem að þurfa mik-
inn hita og við ræktum í upphituðu
gróðurhúsi. Nafnið kemur til af því
að fjölskyldur hafa varðveitt afbrigð-
in mann fram að manni. Hins vegar
ræktum við rússnesk kuldaþolin af-
brigði í óupphituðum bogahúsum.
Ástæðan fyrir þeirri ræktun er lík-
lega nokkuð persónulegri.“
Fyrir nokkrum árum veiktist
Tómas, fékk alvarlegt krabbamein og
var vart hugað líf. Baráttan hafðist og
Tómas segist í framhaldi af því hafa
þurft að finna tilgang í lífinu, svör við
því af hverju honum væri ætlað að
halda áfram.
„Ég einfaldlega spurði tilveruna:
„Hvað á ég að gera?“ Þá stóð ekki á
svari, það kom eiginlega bara strax
til baka: „Þú átt að rækta tómata
úti, á Íslandi.“ Þess vegna lagðist ég
í könnun á kuldaþolnum og þrjósk-
um rússneskum afbrigðum af tómöt-
um, afbrigðum sem vilja lifa af,“ segir
Tómas.
Eftir nokkurt grúsk fann Tómas
mann í Minsk í Hvíta-Rússlandi sem
útvegaði honum tólf kuldaþolin
tómataafbrigði. Undir litlum burstum
í Brennholti dafna þessar harðgerðu
plöntur ágætlega, þrátt fyrir nætur-
kulda snemma sumars. Tilraunirn-
ar halda áfram og síberísku afbrigðin
skipta nú orðið tugum.
Tómaturinn er stórmerkilegt fyr-
irbæri, í grunninn upprunnin frá Az-
tekum í Mexíkó en aðlögunarhæfni
tómatplöntunnar er ótrúleg sem aftur
hefur aukið á fjölbreytni tómatanna.
Tómas segir afbrigðin á heimsvísu
vera að minnsta kosti fimm þús-
und talsins. „Fjölbreytnin er geysi-
leg. Það eru til allar stærðir og gerð-
ir, allir litir og brögð og í samtökum
áhugafólks um tómataræktun er fólk
um allan heim sem er annt um þessa
fjölbreytni. Netið dugar vel til að hafa
samskipti sín á milli, miðla reynslu
og svo deilir fólk fræjum afbrigðanna
milli heimshluta.“
Miklir möguleikar í moldinni
Tómas er á því að þessi harðgerðu
tómataafbrigði séu tilvalin fyrir ís-
lenskt garðyrkjufólk. Nóg sé að slá
upp litlum óupphituðum húsum fyr-
ir ræktunina. „Fólk á alls ekki að vera
feimið við það að gera tilraunir með
tómata. Þetta er svo gefandi. Við eig-
um að gera miklu meiri kröfur til þess
grænmetis sem við borðum og það
grænmeti sem þú ræktar sjálfur verð-
ur alltaf það besta.“
Tómas segir að fólk megi alls ekki
vera hrætt við moldina því að þaðan
sé öll okkar næring. „Við þurfum að
teygja okkur aftur til baka og velta
fyrir okkur matvælagerð upp á nýtt.
Tengjast moldinni. Hver einstakling-
ur getur ræktað grænmeti ef hann á
bara smá bleðil af jörð þar sem sólar
nýtur, líka hér á Íslandi.“
Fyrir Tómas Ponzi eru tilraunir
með ný afbrigði tómata mikill skóli og
árangurinn lætur ekki á sér standa.
„Maður þarf svo lítið að hjálpa nátt-
úrunni, það er nóg að vinna aðeins
með henni. Hér á Íslandi eigum við
að hugsa um gæði matvæla og gæði
alls sem við gerum, frekar en að ein-
blína alltaf bara á magn, gróða og
stærðina,“ segir Tómas Ponzi innan
um fallegu og fjölbreyttu tómatana
sína í Brennholti í Mosfellsdal.
Kirsuberjatómatarnir í Brennholti eru
fjölbreyttir bæði í lit og í bragði.
„Við þurfum að teygja
okkur aftur til baka og
velta fyrir okkur matvæla-
gerð upp á nýtt. Tengjast
moldinni.“
Léttar, lágværar og fyrirferðalitlar
rafstöðvar fyrir sumarbústaðinn,
ferðavagninn og húsbílinn.
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is