Fréttatíminn - 29.07.2016, Side 32
Hinrik
„Já, ég er bara að fara að
vera í Reykjavík og ekki
mikið fleira. Við Kári för-
um örugglega á fótbolta-
æfingu og síðan erum
við sko í Pokémon
Go. Við verðum ör-
ugglega hérna á
Laugaveginum en
það eru fullt af
Pokémonum
hér!“
Guðrún
„Ég ætla að heim-
sækja bestu vini
mína tvo á Ak-
ureyri, fer með
strætó þangað
og fæ síðan far
heim. Það er
svo yndislegt
fyrir norðan
- tært og
fallegt.“
Paul
„Fjölskyldan mín
verður í Stykkis-
hólmi en ég verð á
Flúðum að selja vör-
ur frá Kenía. Ég fór
þangað fyrir tveim-
ur árum og það var
frábært. Við seldum
mikið af dóti en
allur ágóði af
sölunni renn-
ur til skóla í
heimabæ mín-
um í Kenía.“
32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 29. júlí 2016
Sigraðist á
hræðslunni
í fyrsta þætti
Gerir þáttaröð um samband mannsins við dýr
Þáttaröðin Örkin mun hefja göngu sína á RÚV í haust en um er að ræða nýja þáttaröð um samband mannsins við dýr - allt frá
skordýrum til sela. Kolbrún Vaka
sér um dagskrárgerð og safnar nú
fyndnum dýravídeóum frá fólki.
„Myndböndum í líkingu við Amer-
icas Funniest Home Videos. Þau eru
svo stórkostlega fyndin.“
Hún segir aðaláhersluna lagða á
hið sérstaka samband mannfólksins
við dýr og hefur því safnað sögum
með einkennast af gleði, ást, sorg
og hræðslu. Í einum þætti fjallar
Kolbrún um samband sjálfrar sín
við fugla en hún var einu sinni mjög
hrædd við fugla. „Þátturinn byrjar
á því að ég fer í fuglafóbíumeðferð.
Ég fór sem sagt til sálfræðings í hug-
ræna atferlismeðferð til að losna við
hræðslu mína við fugla. Vissi að það
væri sniðugt að læknast af hræðsl-
unni áður en ég færi að hitta hænur
og páfagauka.“
Kolbrún leyfði tökumanni þátt-
anna að vera fluga á vegg með-
an hún var í meðferðinni hjá sál-
fræðingnum. „Þetta byrjaði á
viðtali við sálfræðinginn um hvern-
ig svona hræðsla virkaði - sérstak-
lega í tengslum við kvíða. Þegar
maður hittir dýrið spennist maður
einhvern veginn upp og fer frá því.
Sálfræðingurinn ráðlagði mér hins
vegar að standa kyrr og það end-
aði á því að ég fór í dýrabúð fulla af
fuglum, sveitt og skíthrædd.
Það tók mig rúma tvo tíma allt í
allt að koma þar inn og leyfa dýr-
inu að sitja á öxlinni minni. Ég byrj-
aði að nálgast búrin hægt og rólega
og endaði síðan með stóran páfa-
gauk á öxlinni. Á meðan voru sál-
fræðingurinn og maðurinn sem átti
dýrabúðina mér við hlið og hann
sagði mér alls kyns staðreyndir um
fugla: hve margar fjaðrir þeir hefðu
og svoleiðis. Ég tengdi þannig meira
við dýrið og fannst það fallegt.“
Áður en Kolbrún vissi af hafði sat
risavaxinn páfagaukur á öxl henn-
ar.
Og sigraðistu á hræðslunni?
„Já, ég er hætt að spennast upp
þegar ég hitti fugla. Get núna labb-
að framhjá tjörninni og svona.
Hefði ekki gert það áður. Sonur
minn fjögurra ára er líka orðinn
mikill fuglaáhugamaður og þetta
kemur sér því allt saman vel. Þetta
er mun hentugra svona,“ segir hún.
Að lokum minnir hún á að fólk
geti hlaðið inn sniðugum dýra-
myndböndum á vefsíðu þáttarins
www.ruv.is/thaettir/orkin. „Ef þau
eiga erindi við almenning þá er um
að gera að hlaða þeim inn á síðuna.
Myndböndin verða síðan sýnd í
þáttunum í haust.“ | bg
Kolbrún Vaka sér um dagskrárgerð og safnar nú fyndnum dýravídeóum frá fólki.
„Þátturinn byrjar á því
að ég fer í fuglafóbíu-
meðferð. Ég fór sem
sagt til sálfræðings í
hugræna atferlis-
meðferð til að losna
við hræðslu mína við
fugla.“
Á nýjasta yfirliti yfir stjörnugjöf
notenda IMDB má sjá að karlar
hafa gefið myndinni Ghostbusters
að meðaltali 4,7 stig, en konur 7,9.
Myndin fær því í heildina 5,4 stjörn-
ur.
Mestur er munurinn á stjörnugjöf
fólks undir 18 ára, en munurinn
minnkar eftir því sem notend-
ur síðunnar eldast.
Ef til vill má stimpla
þennan mikla
mun á þá stað-
reynd að konur
leika öll aðalhlut-
verk myndarinnar,
en eins og sjá má þegar
stigagjöfin er skoðuð var
stór hluti einkunna sem karl-
ar gáfu myndinni gefinn áður en
myndin kom í kvikmyndahús.
Þetta bendir til þess að munurinn
á alvöru áliti kynjanna á myndinni
sé minni en sýnist og svokölluðum
karlkyns internettröllum sé um
slæma útreið myndarinnar hjá körl-
um að kenna.
Þessu til stuðnings má
nefna að sýnishorn
myndarinnar fékk miklu
fleiri „dislikes“ en já-
kvæð „like“, og voru
ljótar athugasemd-
ir við sýnishornið á
YouTube nærri alltaf
tengdar kyni drauga-
veiðaranna fjögurra.
Ghostbusters er nú í sýn-
ingu hér á landi, en hún hefur verið
lofuð fyrir að ýta ekki undir staðal-
myndir kynjanna, heldur þvert á
móti sýna sterkar, klárar og fyndn-
ar konur eins og þær eru.
Konurnar hrifnari af Ghostbusters
Því eldri, því minni kynjamunur
4,6
8,2
5,4
8,1
4,7
7,7
4,8
6,8
Karlmenn undir 18
Konur undir 18
Karlar 18-29
Konur 18-29
Karlar 30-44
Konur 30-44
Karlar 45+
Konur 45+
Hvert er planið um verslunarmannahelgina?
Sandra
„Ég verð annað hvort
í göngu í Kerlingar-
fjöllum eða í bænum.
Ef ég verð í bænum
ætla ég bara að
njóta lífsins, fara í
sund í góða veðr-
inu og fleira.“
Kári
„Ég er annað hvort
að fara til Vest-
mannaeyja eða vera
heima. Það er miklu
líklegra að við
verðum bara
heima samt.
Ég og fjöl-
skyldan.“
Vala
Ég ætla að vinna alla
helgina en ég er að
vinna á Kleppi. Verð
þar í góðum gír og við
munum örugglega
grilla eða eitthvað
skemmtilegt svona í
anda helgarinnar.