Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 29.07.2016, Qupperneq 38

Fréttatíminn - 29.07.2016, Qupperneq 38
Active Liver virkar fyrir mig Fita er ekki bara bundin við maga, rass og læri. Hún getur einnig sest innan í líffærin, þar á meðal lifrina. Kynning í samstarfi við Icecare Jóna Hjálmarsdóttir hef-ur notað Active Liver í nokkra mánuði með góð-um árangri. „Ég ákvað að prófa Active Liver eftir að ég sá að það er úr náttúrulegum efnum og ég hef fulla trú á að náttúru- efnin í vörunni stuðli að eðlilegri lifrarstarfsemi. Ég er sjúkraliði að mennt og er meðvituð um líkams- starfsemina og veit að fita getur safnast á lifrina, þess vegna vildi ég prófa.“ Fékk fljótlega aukna orku Hún segist hafa fundið fljótt mun á sér. „Ég fékk fljótlega aukna orku og mér finnst auðveldara að halda mér í réttri þyngd, enda inniheldur Active Liver kólín sem stuðlar að eðlilegum fituefna- skiptum. Ég er í vinnu þar sem ég þarf að vera mikið á ferðinni, ég er í góðu formi og hef trú á að Active Liver virki fyrir mig. Einnig finn ég mikinn mun á húðinni á mér, hún ljómar meira og er mýkri. Ég er mjög ánægð með árangur- inn og mæli með Active Liver fyrir fólk sem hugsar um að halda meltingunni góðri,“ segir Jóna. Starfsemi lifrarinnar hefur mikið að segja um líkamlegt heilbrigði og hefur lifrin mikla þýðingu fyrir efnaskiptin. Það geta verið margar ástæður fyrir því að fita safnast upp í lifrinni. Það getur verið vegna áfeng- isneyslu en það getur einnig verið vandamál hjá fólki í yfirþyngd. Þreyta og þróttleysi geta verið merki um að mikið álag sé á lifr- inni. Nýtur þú lífsins of mikið? Þegar lífinu er lifað til fulls er auðvelt að finna fyrir því og það sést á fólki. Dagsdaglega leiðir fólk almennt ekki hugann að lifr- inni. Hún gegnir þó mikilvægu hlutverki varð- andi efnaskipti og niðurbrot á fitu. Of mikið af kolvetnum, of mikið áfengi og feitur matur valda of miklu álagi á starfsemi lifrarinnar og gallsins. „Matur sem neytt er nú á dögum inniheld- ur meira af kol- vetnum en matur sem forfeður okkar neyttu. Við erum ekki vön þeim. Of stór skammtur af kolvetnum miðað við prótein gerir lifrinni erfitt að viðhalda eðlilegum efnaskiptum og niðurbroti á fitu. Sem betur fer eru það ekki einungis prótein sem geta örvað lifrarstarfsemina,“ útskýrir Ólöf Rún Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri hjá IceCare. Leyndarmálið um Active Liver Active Liver inniheldur náttúru- legu jurtirnar túrmerik og svartan pipar. Einnig ætiþistil og mjólk- urþistil sem er þekktir fyrir að stuðla að eðlilegri starfsemi lifrarinnar og gallsins. Einnig inniheldur Active Liver kólín sem stuðlar að eðlilegum fitefnaskipt- um, viðheldur eðlilegri starfsemi lifrarinnar og stuðlar að eðlileg- um efnaskiptum að því er varðar amínosýruna hómósystein. Lindsay Lohan slítur trúlofun sinni Lindsay Lohan reifst við unnusta sinn, Egor Tarabasov, um síðustu helgi og segir að hann hafi tekið hana hálstaki. Hún hringdi á lögregluna og samkvæmt slúðurmiðlum eru þau búin að slíta trúlofuninni. Tveimur dögum seinna var Lindsay mætt í frí til Sardiníu í Ítalíu, ásamt tveimur vinum. Hún var mikið í símanum, reykti sígarettur og baðaði sig í sólinni. Hún gekk um bæinn og kíkti í búð- ir. Lindsay birti mynd af sér á Instagram þar sem hún þakkaði aðdáendum sínum fyrir stuðninginn og sagði að henni liði bara ágætlega. Jennifer Lopes hélt tvær afmælisveislur Jennifer Lopez hélt upp á 47 ára afmælið sitt síð- astliðinn föstudag í Las Vegas. Í því afmæli voru margar stjörnur, þar á meðal Kim Kardashian og Maria Menounos. Hún lét sér þó ekki nægja að hafa eina afmælisveislu heldur hélt hún aðra veislu á sunnudagskvöldinu. Þar mættu stjörnur eins og Cristiano Ronaldo, rappararnir Fabolous, Fat Joe og French Montana. Calvin Harris var líka í afmælinu en hann var að hætta með Taylor Swift fyrir stuttu síð- an. Jennifer leit auðvitað óaðfinnanlega út að vanda og kærastinn hennar, Casper Smart, var að sjálf- sögðu viðstaddur. Ariana Grande hætt með kærastanum Ariana Grande er hætt með Ricky Alvarez. Þau hafa verið saman í rúmt ár en hann er dansari hjá henni. Ariana setti inn mikið af „tvítum“ um helgina þar sem hún gaf þetta í skyn, en hefur samt eytt sumum „tvítunum“ út aftur. Ariana hefur áður talað um hvað það sé erfitt að kynnast mönn- um en hún segir að strákar þori síður að tala við hana eftir að hún varð fræg. Hún sagði líka á sama tíma: „Það er gaman að vera með einhverjum sem gerir þig hamingjusama, en það er líka gott að vera hamingjusamur einn.“ Hætt við að hætta saman Blac Chyna og Rob Kardashian hættu saman með látum í byrjun þessarar viku. Rob eyddi út öll- um myndum af Blac sem hann var með inni á Instagram reikning sínum, en daginn eftir voru þau byrjuð saman aftur. Blac Chyna gengur með barn þeirra Rob og hefur skartað krúttlegri bumbu seinustu vikur. Á þriðjudag sást til hennar í lúgunni á Taco Bell í Los Angeles, þar sem hún fékk sér sterkan mexíkanskan mat á silfurlitaða Range Rovernum sínum. Það fór ekkert á milli mála að Blac var komin með trúlofunarhringinn aftur svo það virðist allt vera í lukkunnar velstandi enn á ný hjá þeim skötuhjúum. Mýrarboltinn á Ísafirði Ís á Erpsstöðum Kjaftæði er rjómaís framleiddur á býlinu Erpsstöðum. Hann fæst í alls kyns bragðtegundum og frábært að stoppa þar til að brjóta upp langan akstur til Vestfjarða. Sundlaugin í Heydal í Mjóafirði Á leiðinni á Ísafjörð, þegar keyrt í er í gegnum Mjóafjörð, má finna Heydal. Þar innst í firðinum er hótel þar sem er gott að setjast í kaffisopa og kræsingar. Í gömlu gróðurhúsi rétt við hótelið er falleg laug og heitur steinapottur sem vert er að heimsækja á leið á Mýrarboltann. Gamla Bakaríið á Ísafirði Eitt elsta bakarí landsins stendur alltaf fyrir sínu. Bestu kleinurnar og ástarpungarnir. Neistaflug Neskaupsstað Brauðstangir í Söluskálanum á Egilsstöðum Ef það er eitthvað sem bæjarbúar á Egilsstöðum geta sammælst um þá eru það gæði brauðstanganna í Söluskálanum. Tilvalinn kvöldmatur fyrir Neistaflug eða nesti á leiðinni í bæinn aftur. Óbyggðasetrið í Fljótsdal Á safninu fá gestir að upplifa Ísland á 19. öld. Boðið er upp á að gista í baðstofu, smakka reykt kjöt beint úr reykkofanum, draga sig yfir Jökulsá á kláfi og þar er fólki gefin innsýn í gamlan tíðaranda á Íslandi. Sushi á Seyðisfirði Dálítið úr leið, en vel þess virði. Eitt besta sushi landsins fæst á Hótel Öldu í fallega bænum Seyðisfirði sem er ávallt skemmtilegt að heimsækja. Íslensku sumarleikarnir á Akureyri Silva hráfæði Í hjarta Eyjafjarðarsveitar býður veitingastaðurinn Silva upp á grænmetis- og hráfæðirétti. Nýpressaðir safar, engiferskot, kaffi, te og hráfæðikökur og eftirréttir. Kaffi í Fnjóskadal Í gamla barnaskólanum á Skógum má finna Ugluna kaffihús. Í fallegu umhverfi býður vinalegt starfsfólk upp á heimabakað brauð, pönnukökur og hrákökur. Te úr dalnum, uppáhellt kaffi og heitt súkkulaði að gömlum og góðum sið. Menningarflóra Í Hafnarstræti númer 90 er verslunin Flóra sem vert er að heimsækja. Flóra býður upp á sérvalda muni úr íslenskri og þýskri menningar flóru. Áherslan er á áframnýtingu, endurnýtingu og nýja muni sem eru framleiddir í heimaframleiðslu eða hjá litlum framleiðendum. Síldarævintýri á Siglufirði Bjór á Segull 67 Í Brugghúsinu á Siglufirði má finna fjölbreytta og bragðgóða bjóra. Barinn er staðsettur í gamalli fiskverksmiðju og er hönnunin einstaklega vel heppnuð. Með útsýni yfir hafið og fjallgarðinn eru fáir staðir betri til að fá sér einn kaldan. Heitt bað í Grettislaug Það er klukkustundar akstur frá Siglufirði í heitu laugina Grettislaug. Umvafinn náttúru og fjarri byggð er þessi staður fullkominn til að slappa af. Kaffi á Dalvík Kaffihúsið og barinn Gísli, Eiríkur og Helgi býður upp á dýrindis veigar í notalegri stemningu. Heimagerðar vöfflur, kökur og kræsingar. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum Ribsafari um eyjuna Ribsafari eru sérbúnir hraðskreiðir bátar. Við Landeyjahöfn eru farnar nokkrar ferðir á dag í kringum eyjuna að skoða helli, náttúru og fuglalíf. Lambaborgari á Slippnum 140 grömm af kjöti með beikoni, sveppum, tómötum, salati og bernaise-sósu. Borið fram með himneskum frönskum og hvítlauksmajónesi. Kjötsúpuvagninn Það er fátt betra en kjötsúpa á stundu milli stríða. Þriggja daga hátíðarhöld geta tekið sinn toll en þá er kjötsúpuvagninn skammt undan til að hlaða batteríin. Innipúkinn í Reykjavík Frosinn cappuccino Te og kaffi í Aðalstræti framreiðir kaldan, eða frosinn, cappuccino sem enginn má láta framhjá sér fara. Þá sérstaklega á sólríkum dögum í 101. Krás götumatarmarkaður Í Fógetagarðinum verður Krás götumatarmarkaður hverja helgi það sem eftir lifir sumars, iðandi af lífi og góðmeti. Lifandi tónlist og dásamlegur matur í góðri stemningu. Dansað með Beyoncé Í Kramhúsinu á laugardaginn klukkan 17.00 er opinn Beyoncé danstími til styrktar Stígamótum. Það kostar 2.000 krónur inn og rennur allur ágóðinn til Stígamóta. Stoppaðu á réttu stöðunum Besti ísinn, sundlaug, brauðstangir og bjórinn á leiðinni á hátíðarnar um verslunarmannahelgina. Þetta snýst ekki bara um áfangastaðinn heldur líka ferðalagið …fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2016 Sjúkraliði Jóna Hjálmarsdóttir

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.