Fréttatíminn - 29.07.2016, Qupperneq 40
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Ætli þetta hafi ekki verið tveir til þrír fermetrar af gólf-plássi í geymslu-rými bílskúrsins
sem við nýttum til þess að smíða
fyrstu borðin. Við unnum okkur
upp í loft og út á bílaplan. Stund-
um var maður búinn að olíusparsla
sig út í horn og dúsaði þar á meðan
plöturnar þornuðu.“
Þannig lýsa þau Guðrún Agla og
Hafsteinn Helgi fyrstu mánuðum fyr-
irtækisins Happie Furniture. Saman
láta þau draumaborð sérhvers kúnna
verða að veruleika þar sem sköpunar-
gleðin ræður ríkjum.
Matjurtakassar upphafið
Guðrún Agla stundar nám í arki-
tektúr og hefur yfirumsjón með
hönnun ásamt Hafsteini sem er fram-
kvæmdakrafturinn á bakvið Happie
Furniture. Það er síðan engin önn-
ur en Dís, átta mánaða dóttir unga
parsins, sem er forstjóri fyrirtækisins.
„Á vorin hef ég smíðað matjurakassa
og fundið heimili fyrir þá í gegnum
Facebook. Þannig varð ég kunnug-
ur mætti samfélagsmiðla,“ útskýrir
Hafsteinn. „Við smíðuðum okk-
ur eldhúsborð og þegar gest-
ir komu í heimsókn fékk
borðið mikla athygli
og enduðu gestirnir
gjarnan á því að taka
borðið með sér heim.
Við smíðuðum svo nýtt
og það var aftur sama
sagan. Þá sáum við að
það væri mögulega eitt-
hvað í þessu.“
Taka einn dag í einu
Á skömmum tíma hafði bílskúrinn
sprungið utan af rekstrinum. Þeim
stóð til boða að færa verkstæðið og
deila húsnæði með Artic Surfers úti
á Granda. Hafsteinn segir þau hafa
hugsað málið vel. „Við vildum gæta
þess að fara ekki of geyst af stað og
fara fram úr sjálfum okkur. Við vilj-
um stækka með fyrirtækinu og mik-
il eftirspurn er aðeins lúxusvanda-
mál.“ Guðrún Agla er sammála. „Það
er ákveðinn sjarmi yfir því að taka
bara einn dag í einu, njóta þess að
smíða hvert borð fyrir sig og kynnast
skemmtilegu fólki um leið. Við erum
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Lítil fjölskylda Hafsteinn og Guðrún Agla stofnendur Happie Furniture ásamt dóttur sinni Dís. Myndir | Rut
Hófst allt í tveimur
fermetrum bílskúrsins
Hafsteinn og Guðrún Agla stofnuðu Happie Furniture þegar gestir fóru að bjóða í sérsmíðaða eldhúsborðið þeirra.
Á einu ári flutti verkstæðið úr litlum bílskúr í húsnæði úti á Granda. Það er ekki aðeins reksturinn sem stækkar heldur
fjölskyldan líka og byggja þau draumahúsið sitt við Hafravatn.
mjög þakklát og þykir yndislegt að
geta unnið við það sem við elskum
að gera.“
Ástríða Hafsteins hefur alltaf ver-
ið að smíða. „Alveg frá því hann var
krakki,“ segir Guðrún Agla sem hef-
ur mikla trú á sínum manni. „Hann
hefur alltaf verið ákveðinn í að geta
lært nýja hluti og verið óhræddur við
að prófa sig áfram.“ Haffi segist nýta
sér tækni nútímans og visku annarra.
„Ég nýti mér Youtube, Google og
ímyndunaraflið. Síðan er alltaf hægt
að fara í næstu byggingarvöruverslun
og tala við þann sem hefur unnið þar
lengst, sá kann öll trikkin í bókinni.“
Byggja draumahúsið
Um þessar mundir er litla fjöl-
skyldan að byggja sér hús
við Hafravatn, í Bláberja-
brekkum eins og þau
kalla það. „Það er allt
morandi í bláberj-
um núna,“ segir Haf-
steinn. „Um leið og Dís
fæddist fórum við að
hugsa um hvernig heim-
ili og minningar við vilj-
um skapa fyrir hana. Þegar
við hugsum um æskuna þá kemur
náttúran upp í hugann, sumarið, úti-
legur og berjamór. Í okkar huga eru
það mikil forréttindi að vera í góðri
tengingu við náttúruna og alast upp
á svona stað hlýtur að hafa ekkert
nema jákvæð áhrif.“
Fjölskyldan ætlar að gefa sér tíma
í að byggja húsið og innrétta sam-
kvæmt Guðrúnu Öglu. „Við ætlum
að smíða húsgögnin sjálf. Við erum
með sófa og stóla á teikniborðinu en
við höfum ekki haft undan í rekstrin-
um að smíða fyrir okkur sjálf. Við
ætlum að gefa okkur tíma til að þróa
nýjar vörur og njóta þessa að vera
fjölskylda í Bláberjabrekkunum.“
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2016
Við vildum gæta
þess að fara ekki
of geyst af stað og fara
fram úr sjálfum okkur.
Við viljum stækka með
fyrirtækinu og mikil
eftirspurn er aðeins
lúxusvandamál.
Ég nýti
mér Youtube,
Google og
ímyndunarafli
ð.