Fréttatíminn - 30.09.2016, Blaðsíða 56
280cm
98cm
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Fax feni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug.
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vöru dagleg
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11- 6
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum pp nýjar vörur daglega
KJÓLAR
KR 2.990
JAKKI
KR 5.000
HERMANNA
BUXUR
KR 4.900
SKÓR
KR 9.990
FULL BÚÐ AF HAUSTVÖRUM
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2016
Fyrst var ég
bara í líkams-
rækt og ætlaði að
verða þjálfari en svo
þróaðist áhuginn
meira í átt að heilsu-
eflingu. Ég lærði að
það eru margir aðrir
þættir sem skipta
meira máli en að
hamast í ræktinni
tvisvar á dag. Ég
byrjaði nefnilega
sjálf þar.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is.
Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Stundum er þetta rosa-lega gaman, eitthvað sem ég hef mikinn áhuga á og tala og tala, en stundum hef ég
minni áhuga á efninu. Þrátt fyrir
það reyni ég alltaf að standa við
loforð mín um að taka eitthvað
fyrir. Það er nefnilega rosaleg
vinna sem fer í margar umfjallan-
ir, sérstaklega þær sem fjalla um
innihaldslýsingar á vörum, þá fer
ég í hvert einasta efni,“ segir Anna
Þorsteinsdóttir íþróttafræðingur
sem heldur úti „snappinu“ Engar
öfgar þar sem hún fjallar um
heilsutengd málefni og heilbrigt
matarræði á upplýstan og fræð-
andi hátt.
Eins og nafnið gefur til kynna er
Anna lítið fyrir öfgar af neinu tagi.
„Snappið heitir Engar öfgar því
það er engin þörf á öfgum. Ég er
sjálf búin að missa átta kíló síðan
í janúar, bara með því að hreyfa
mig reglulega og borða þokkalega
hollan mat. Svo leyfi ég mér ýmis-
legt í hófi.“
Skapa þörf fyrir óþarfa
Anna segir margt hafa breyst til
hins verra á síðustu árum, þegar
kemur að umræðu um hreyfingu
og heilbrigðan lífsstíl. „Það er
búið að eyðileggja orðið lífsstíls-
breyting. Það eru komin lífsstíls-
breytingarnámskeið sem eru sex
vikur. Hvað er það? Maður breytir
ekki um lífsstíl á svo skömmum
tíma. Ef maður ætlar að taka sig
á, borða hollar og hreyfa sig, þá
virðist maður þurfa að kaupa kort
í ræktinni, ræktarföt, prótein, skó
og allt hitt. En þetta á ekki að vera
svona. Þetta er það sem markaðs-
setning fyrirtækja og sumir lífs-
stílsbloggarar eru skapa þörf fyrir.
Þegar maður getur í raun bara far-
ið í úlpuna sína og út í göngutúr.“
Anna bendir á að það sé mun
skynsamlegra að byrja á því að
fara út að ganga reglulega í þrjár til
fjórar vikur og ef fólk endist í því,
þá getur það íhugað að kaupa sér
líkamsræktarkort. „Þetta er meðal
þess sem ég er að reyna að sýna
fólki á snapchat.“
Anna starfar í dag sem íþrótta-
kennari, en hún er íþróttafræðing-
ur að mennt með meistaragráðu
í heilsuþjálfun og kennslu frá Há-
skólanum í Reykjavík. Þá er hún
lærður endurhæfingarþjálfari og
með ýmis önnur réttindi. Hún ætti
því að vita hvað hún syngur þegar
kemur að heilsu og heilbrigð-
um lífsstíl.
Hún er einstæð móðir og á eins
og hálfs árs gamlan son. Áður en
hann kom í heiminn starfaði hún
meira við þjálfun og kennslu í lík-
amsrækt, en íþróttakennarastarfið
býður upp á heppilegri vinnutíma.
Henni finnst líka gaman að spreyta
sig á nýjum vettvangi.
Er bara týpan sem hún er
En hvað kom til að hún ákvað að
deila þekkingu sinni á snapchat?
„Ég er bara þannig gerð að ég
vil hjálpa öllum. Í gegnum mína
þjálfun hef ég alltaf verið að gefa
ráð. Fólk sem var ekki einu sinni
í tímum hjá mér eða einkaþjálfun
var farið að biðja mig um ráð. Ég
er alltaf að grúska í hinu og þessu
og mig langaði að koma upplýs-
ingum til allra, þannig allir gætu
séð þetta og nýtt sér. Það eru svo
margir sem hafa ekki efni á ráð-
gjöf eða einkaþjálfun og enn aðrir
sem fatta ekki að hverju þarf að
huga, eins og hvað markaðssetn-
ing fyrirtækja skiptir miklu máli,“
segir Anna og á þar við hvernig
vörur eru auglýstar, sérstaklega
vörur sem kynntar eru sem heilsu-
vörur. En hún hefur mikinn áhuga
á slíkri markaðssetningu og ræðir
hana mikið á snapchat. „Í mörgum
tilfellum er um að ræða kolranga
og falska markaðssetningu, sem
á ekki við nein rök að styðjast. Ég
var alltaf að ræða þetta maður á
mann og alltaf að tönnlast á sömu
hlutunum aftur og aftur.“
Fyrir einu og hálfu ári hvarfl-
aði að henni sú hugmynd að koma
þessum upplýsingum frá sér á
snapchat, en það var eitthvað sem
stoppaði hana. „Ég sá allar þessar
glansmyndir á snapchat og hugs-
aði með mér að ég gæti ekki verið
þessi týpa. Alltaf stífmáluð, alltaf
ógeðslega hreint hjá mér og barnið
mitt alltaf þægt. En svo hugsaði ég
„Það er búið að eyðileggja
orðið lífsstílsbreyting“
Anna heldur úti fræðandi snapchat-reikningi þar sem hún talar um heilsutengd málefni og markaðssetningu á heilsu-
vörum, sem hún telur oft villandi og jafnvel falska. Anna er á móti öllum öfgum þegar kemur að líkamsrækt og sýnir
fram á að hægt sé að ná árangri án þess að hamast í ræktinni tvisvar á dag.
hvað þá á samfélagsmiðlum. Ég er
manneskjan sem segi: „Við verð-
um þá bara að vera sammála um
að vera ósammála.“ Ef fólki finnst
ég agaleg vitlaus og líkar ekki við
það sem ég segi, þá er því velkom-
ið að hætta að fylgjast með mér.
Ég er ekki fullkomin og veit að ég
hef sagt vitlausa hluti, en ég viður-
kenni mistök mín.“
Fyrirtækin sem selja eða flytja
inn vörurnar sem hún ræðir um
hafa hins vegar aldrei sett sig
í samband við hana. „Ég held
að fæstir þori það. Ég gagnrýni
nefnilega það sem er að. Og ef þau
myndu gefa mér vöru þá myndi ég
aldrei lofa hana ef mér líkaði hún
ekki. Ég get gefið mitt heiðarlega
álit, en ég mun aldrei ljúga upp í
opið geðið á fylgjendum mínum.“
Ætlaði í fitness en sá ljósið
Anna, sem er uppalin í Grundarf-
irði, hafði ekkert sérstakan áhuga
á íþróttum og heilsu þegar hún var
barn en prófaði sig áfram í ýmsum
íþróttagreinum. Áhuginn á lýð-
heilsu og heilsueflingu kviknaði af
alvöru þegar hún var í íþróttalýð-
háskóla í Danmörku.
„Fyrst var ég bara í líkams-
rækt og ætlaði að verða þjálfari
en svo þróaðist áhuginn meira í
átt að heilsueflingu. Ég lærði að
það eru margir aðrir þættir sem
skipta meira máli en að hamast í
ræktinni tvisvar á dag. Ég byrjaði
nefnilega sjálf þar,“ segir Anna en
hún ætlaði heldur betur að taka
ræktina með trompi og stefndi
á að keppa í fitness. „Ég byrjaði
í ræktinni tvisvar á dag, borðaði
bara kjúkling og brokkolí. En eftir
því sem ég fór lengra í náminu þá
áttaði ég mig á því að það er ekki
leiðin að bættri heilsu. Svona á
ekki að gera þetta. Þetta er hvorki
heilbrigt né sniðugt til lengri tíma.
Með því er maður að svelta lík-
amann og ofæfa. Þetta getur haft
varanleg á áhrif á mann. Þetta
virkar fyrir örfáa en það eru þeir
sem við sjáum, enda eru þeir mest
áberandi. Fyrir langflesta er þetta
ekki málið.“
Fer í bakinu við mikla streitu
Anna þarf líka að passa sig sérstak-
lega vel, en hún lenti í mjög hörð-
um árekstri fyrir rúmum þremur
árum, þar sem hún tognaði meðal
annars í baki. Hún taldi sig reynd-
ar hafa jafnað sig á meiðslunum
skömmum á tíma, enda truflaði
þetta hana ekki mikið.
„Svo komu tímabil þar sem ég
var undir miklu andlegu álagi.
Eins og þegar ég var í verkefnaskil-
um og prófum fyrst eftir að ég
lenti í slysinu, þá allt í einu fór
ég í bakinu. Ég var svo verkjuð
að ég þurfti mjög sterk verkjalyf
til að halda mér gangandi. En ég
tengdi þetta ekki við bakmeiðslin.
Svo kláraði ég prófin og jafnaði
mig í bakinu. Svo gerðist þetta
aftur þegar ég var að skrifa BSc
ritgerðina mína og ég endaði uppi
á spítala með verkjalyf í æð. Ég
var svo kvalin. Þá kviknaði á per-
unni. Ég er tæp í bakinu og er góð
meðan ég æfi rétt, en ef ég missi
úr og er að upplifa stress, kvíða og
streitu, þá fer skrokkurinn með,“
segir Anna en hún fór einmitt aft-
ur í bakinu nýlega. Þá ætlaði hún
sér aðeins of mikið og streitan
tók völdin.
„Ég skráði mig aftur í háskóla-
nám og ætlaði að vera fullri vinnu
með, líka með fjarþjálfunina mína
og snapchatið, sem tekur sinn
tíma. Svo er ég auðvitað með lítið
barn. Ég hélt ég væri ofurkona
og ætlaði að gera allt. En svo fór
ég til læknis sem sagði mér að ég
væri að gera allt of mikið. Þannig
ég ákvað að hætta í skólanum og
tveimur dögum síðar var ég orðin
betri í bakinu. Sem er ótrúlegt þar
sem ég var búin að reyna að gera
mig betri í tvo mánuði.“
Vill hjálpa Anna Þorsteinsdóttir íþróttafræðingur segist vera þannig gerð að hún vilji hjálpa sem flestum. Þess vegna deilir hún þekkingu
sinni á snapchat án þess að rukka fyrir það.
þetta lengra. Að ég þyrfti
ekki að vera þessi týpa.
Ég gæti bara haldið áfram að
vera týpan sem ég er. Ég er bara
venjuleg einstæð móðir. En þá
fékk ég að heyra það frá fólki að
ég ætti ekki að gefa vinnuna mína.
Þetta er auðvitað eitthvað sem ég
hef lært og fæ af því tekjur, en ég
hugsaði með mér að ef ég lægi á
dánarbeðnum, myndi ég þá sjá
eftir að hafa ekki rukkað fleiri fyr-
ir að fá mína þekkingu eða myndi
ég sjá eftir að hafa ekki hjálpað
fleirum? Þetta hljómar hádramat-
ískt en þetta var nákvæmlega það
sem gerði útslagið.“
Fyrirtækin þora ekki í hana
En vegna þess hve Anna er gagn-
rýnin á markaðssetningu ýmissa
vara og talar hreint út, þá fær hún
gjarnan sterk viðbrögð og ekki
alltaf á málefnalegum forsendum.
„Það er eitt af því sem ég ákvað að
ég yrði að brynja mig gegn þegar
ég var í umhugsunarferlinu. Það
eru aldrei allir sammála manni
og það er bara frábært. Það eru
auðvitað margir að fylgjast með
mér sem þekkja til þess sem ég er
að tala um, en ég reyni að einfalda
umræðuna og hef stundum verið
gagnrýnd fyrir það. Ég þræti ekki,
Hægt er að fylgjast með Önnu
á Snapchat: engarofgar