Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.09.2016, Blaðsíða 63

Fréttatíminn - 30.09.2016, Blaðsíða 63
Ég hef verið sakaður um að vera ruslæta á sjónvarpsefni – að ég geti horft á allt sem er í sjónvarp- inu, sama hversu vont það er. Mér finnst ég sjálfur hafa þróað með mér fágaðri smekk þótt þessi lýs- ing geti stundum átt við. Ég væri þó eflaust flokkaður sem risa- eðla af sjónvarpsáhugafólki því ég er ennþá aðdáandi línulegrar dagskrár. Ég hef mikið dálæti á norræn- um og breskum spennuþáttum en íþróttaefni verður alltaf í efsta sæti – það kemur sjálfum mér alltaf jafn mikið á óvart hversu mikill þessi áhugi er. Ég get nánast horft á hvaða íþrótt sem er. Engu að síður hafa þættirnir Line of Duty og Night Manager átt hug minn allan – ég þurfti nánast á áfallahjálp á mánudag þegar sá síðarnefndi þurfti að víkja fyrir Eld- húsdagsumræðum á Alþingi. Line of Duty er síðan eitt allra besta sjónvarpsefni sem völ er á. Það er síðan á dagskránni að verða mér úti um Fargo II – fyrsta serían er í miklu uppáhaldi. Sófakartaflan Freyr Gígja Gunnarsson fréttamaður á RÚV. Horfir á hvaða rusl sem er Freyr Gígja þykist þó hafa þróað með sér fágaðri smekk með árunum. Saklaus skiptinemi eða kaldrifjað morðkvendi? Netflix Amanda Knox Glæný heimildarmynd um eitt umtalaðasta morðmál síðari tíma. Amanda Knox var tvítug og í skiptinámi á Ítalíu þegar hún var ásökuð um að myrða meðleigj- anda sinn. Hún sat í fjögur ár í fangelsi meðan hún beið dóms og fékk viðurnefnið „Foxy Knoxy“ í umfjöllun fjölmiðla sem teiknuðu hana upp sem kynlífsfíkil sem hefði myrt meðleigjandann í kyn- lífsleik sem hefði farið úr böndun- um. Knox var í fyrstu fundin sek og dæmd í 26 ára fangelsi en hún áfrýjaði dómnum og var þá dæmd saklaus. Hún sneri aftur til Banda- ríkjanna og var ekki viðstödd þegar réttað var á ný í málinu og hún aftur fundin sek. Hæsti- réttur á Ítalíu sneri dómnum svo á ný við. Þessi nýja heimildarmynd kemur inn á útlenska Netflix í dag og í henni er dregin upp mynd af þessu áhugaverða máli. Húbert þykist vera kvennabósi RÚV kl. 21.45 Fyrir framan annað fólk Rómantísk gamanmynd leik- stjórans Óskars Jónassonar sem frumsýnd var fyrr á þessu ári. Myndin fjallar um Húbert, hlé- drægan auglýsingateiknara sem á erfitt með að nálgast hitt kynið. Hann verður ástfangin af Hönnu sem er í sárum eftir sambands- slit og til að heilla hana hermir hann eftir yfirmanni sínum, sem er óforbetranlegur kvennabósi. Hæfileikar Húberts sem eftir- herma heilla Hönnu en reynast honum líka fjötur um fót þegar fram líða stundir. Með aðalhlut- verk fara Snorri Engilbertsson, Hafdís Helga Helgadóttir, Hilmir Snær Guðnason og Svandís Dóra Einarsdóttir. asdgadh Spennuþættir og íþróttaefni Freyr Gígja getur horft á hvaða íþróttaefni sem er og er „svag“ fyrir breskum og norrænum spennu- þáttum. Mynd | Hari Við ferðuðumst heimshorna á milli í leit að baunum í nýjustu kaffiblönduna okkar. Mikið brennt og kröftugt kaffi sem vekur bragðlaukana. leggur heiminn að vörum þér EXPRESSÓ Dökkur kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a NÝTTNú talaði Jesús aftur til þeirra og sagði: “Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins.” www.versdagsins.is …sjónvarp11 | amk… FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.