Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.09.2016, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 30.09.2016, Blaðsíða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016 Ísland er óvenju illa farið eft-ir áratugi nýfrjálshyggjunnar sem svo er kölluð, safnhaugs samfélagshugmynda sem eru lauslega byggðar á hagfræði en þó mest á trúarsetningum um hvernig samfélagið muni blómstra ef hinn sterki er leiddur til öndvegis. Þessi hugmyndastefna hafði mikil áhrif víða um heim, gróf undan opinberri þjónustu og skipulagðri stéttabar- áttu lágstéttanna en hafði óvíða jafn slæm áhrif og hér. Sem kunnugt er bólgnaði ís- lenska fjármálakerfið meira út en önnur, uppblásið af stjórnvöldum sem blinduð voru af kenningum ný- frjálshyggjunnar. Og þegar íslenska bólan sprakk heyrðist hvellurinn víða. Aldrei höfðu jafn fáir banka- menn valdið jafn miklum skaða á jafn litlum tíma. Og aldrei höfðu nokkur stjórnvöld sofið jafn ræki- lega á verðinum. Sem kunnugt er benti fjármálaráðherrann íslenski á hættumerkin og taldi þau sérstök heilbrigðismerki: Sjáið veisluna, hrópaði hann. En merki nýfrjálshyggjunnar má ekki aðeins sjá í stóru bólu og Hrun- inu. Á meðan félagslegi hluti hús- næðiskerfa margra landa lét á sjá undan trúboði nýfrjálshyggjunnar þá var lunginn úr því íslenska seld- ur hæstbjóðanda. Eigendum verka- mannabústaða var heimilt að selja íbúðir sínar út úr kerfinu. Og engar nýjar voru setta inn í staðinn. Kerf- inu, sem kynslóðirnar höfðu barist fyrir og byggt upp frá kreppunni miklu, var eytt á einni nóttu. Hvers vegna? Kenningin var að það væri náttúrlega gott að brjóta niður fé- lagsleg kerfi og færa undir heilagan markaðinn. Önnur merki eyðileggingar- innar eru nú að koma í ljós í heil- brigðiskerfinu. Þar hefur ríkt fag- legt stefnuleysi. Kerfið hefur ekki verið aðlagað að þörfum sjúklinga heldur að hugmyndum nýfrjáls- hyggjunnar um óumræðilega kosti einkareksturs umfram opinberan rekstur. Fjárframlög hafa verið auk- in til þeirra hluta heilbrigðiskerfis- ins þar sem einkarekstur hefur skotið rótum en þeim hluta sem enn er í opinberum rekstri er haldið í spennitreyju. Hvers vegna? Það má Guð vita. Líklega er hvatinn sambland af ein- sýni og botnlausri sannfæringu sem oft fylgir þröngu sjónarhorni. Það er erfitt að sannfæra Íslending um að einkarekstur sé náttúrlega betri en opinber rekstur. Við áttum vonda ríkisbanka áratugum saman og svo baneitraða einkabanka í örfá ár. Af tvennu illu voru ríkisbank- arnir líklega skömminni skárri. Það er sárt að viðurkenna það fyrir þau okkar sem munum þjónustuna sem þeir veittu að líklega getum við bara ekki gert betur. Alla vega sýnir reynslan það ekki. Það er heldur ekki hægt að færa rök fyrir einkarekstri með því að skoða úttektir á samkeppnis- stöðu íslensks þjóðfélags. World Economic Forum gerir slíkar út- tektir sem njóta virðingar. Ísland kemur svona lala út úr samanburði við aðrar þjóðir. Við stöndum næstu nágrannalöndum nokkuð að baki en erum samt númer 26 í röðinni. Það gæti verið verra. Þegar einstakir þættir eru skoð- aðir kemur í ljós að landið, þjóðin og fámennt og öruggt samfélagið hífir okkur upp. Ýmsar félagslegar stoðir eru á pari við nágranna- löndin; skólarnir, heilbrigðiskerfið, hafnir og ýmsir innviðir. En þegar kemur að fyrirtækjum, trausti í viðskiptum, stjórnunarháttum, endurskoðun, fjármálagjörningum og slíku þá erum við órafjarri okk- ar nágrönnum og erum í tossabekk ásamt vanþroska ríkjum Austur- Evrópu og Afríku; ríkjum sem eiga sér stutta sögu lýðræðis. Við erum kannski öngvir heimsmeistarar í opinberum rekstri en við eigum þó þar margt gott. Hitaveita Reykjavíkur er til dæm- is ágætt dæmi; allt frá því hún var stofnuð og fram að þeim tíma að það komst í tísku að reka opinberar stofnanir eins og væru þær einka- fyrirtæki. Þá snerist allt fljótt til verri vegar hjá Hitaveitunni. Því miður er fátt sem bendir til þess að von sé á stefnubreytingu stjórn- valda. Samkvæmt heilbrigðisáætlun til 2020 er ráðgert að auka enn völd og áhrif Sjúkratrygginga Íslands. Kerfið á að byggja upp í líkingu al- menns markaðar. Sjúkratryggingar taka að sér að vera kaupandinn og fagfólkið á að leika seljanda. Það er eins og stjórnvöld telji að önnur samskipti en markaðstorgið leiði til spillingar og rangrar niðurstöðu. Það má vel vera að stærri þjóð- ir þurfi að byggja upp svona mark- aðskerfi. Í Svíþjóð eru sjúkra- tryggingar sem gera samninga við sjálfstætt starfandi lækna og einkastofur. Svíar eru hins vegar þrjátíu sinnum fleiri en við. Sjúkra- tryggingar þeirra hafa bolmagn til að veita sjálfstætt starfandi heil- brigðisfyrirtækjum bæði faglegt og fjárhagslegt aðhald. Sjúkra- tryggingar okkar eru hins vegar lítið annað en leiktjöld. Á bak við þær þenst kerfi einkarekstrar út án eftirlits eða aðhalds. Gunnar Smári SKAÐLEGT HUGMYNDAKERFI Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir RÓM BORGARFERÐ Frá kr. 113.900 Netverð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunmat. 28. október í 4 nætur. Hotel Eurostars International Palace Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M N M 77 52 4 Skelltu þér í LISSABON Frá kr. 87.900 Netverð á mann m.v.2 í herbergi með morgunmat. 3. nóvember í 3 nætur. Turim Europa VERONA Frá kr. 93.900 Netverð á mann m.v. 2 í herbergi m/morgunmat. 20. október í 4 nætur. Hotel Mastino SEVILLA Frá kr. 74.900 Netverð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunmat. 11. nóvember í 3 nætur. Hotel Catalonia Santa Justa BÚDAPEST Frá kr. 89.900 Netverð á mann m.v. 2 í herbergi m/morgunmat. 20. október í 4 nætur. Hotel Novotel Centrum Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann Frá kr. 74.900 m/morgunmat Síðustu sætin Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.