Fréttatíminn - 30.09.2016, Síða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
Ísland er óvenju illa farið eft-ir áratugi nýfrjálshyggjunnar sem svo er kölluð, safnhaugs samfélagshugmynda sem eru
lauslega byggðar á hagfræði en þó
mest á trúarsetningum um hvernig
samfélagið muni blómstra ef hinn
sterki er leiddur til öndvegis. Þessi
hugmyndastefna hafði mikil áhrif
víða um heim, gróf undan opinberri
þjónustu og skipulagðri stéttabar-
áttu lágstéttanna en hafði óvíða jafn
slæm áhrif og hér.
Sem kunnugt er bólgnaði ís-
lenska fjármálakerfið meira út en
önnur, uppblásið af stjórnvöldum
sem blinduð voru af kenningum ný-
frjálshyggjunnar. Og þegar íslenska
bólan sprakk heyrðist hvellurinn
víða. Aldrei höfðu jafn fáir banka-
menn valdið jafn miklum skaða á
jafn litlum tíma. Og aldrei höfðu
nokkur stjórnvöld sofið jafn ræki-
lega á verðinum. Sem kunnugt er
benti fjármálaráðherrann íslenski
á hættumerkin og taldi þau sérstök
heilbrigðismerki: Sjáið veisluna,
hrópaði hann.
En merki nýfrjálshyggjunnar má
ekki aðeins sjá í stóru bólu og Hrun-
inu. Á meðan félagslegi hluti hús-
næðiskerfa margra landa lét á sjá
undan trúboði nýfrjálshyggjunnar
þá var lunginn úr því íslenska seld-
ur hæstbjóðanda. Eigendum verka-
mannabústaða var heimilt að selja
íbúðir sínar út úr kerfinu. Og engar
nýjar voru setta inn í staðinn. Kerf-
inu, sem kynslóðirnar höfðu barist
fyrir og byggt upp frá kreppunni
miklu, var eytt á einni nóttu. Hvers
vegna? Kenningin var að það væri
náttúrlega gott að brjóta niður fé-
lagsleg kerfi og færa undir heilagan
markaðinn.
Önnur merki eyðileggingar-
innar eru nú að koma í ljós í heil-
brigðiskerfinu. Þar hefur ríkt fag-
legt stefnuleysi. Kerfið hefur ekki
verið aðlagað að þörfum sjúklinga
heldur að hugmyndum nýfrjáls-
hyggjunnar um óumræðilega kosti
einkareksturs umfram opinberan
rekstur. Fjárframlög hafa verið auk-
in til þeirra hluta heilbrigðiskerfis-
ins þar sem einkarekstur hefur
skotið rótum en þeim hluta sem enn
er í opinberum rekstri er haldið í
spennitreyju.
Hvers vegna? Það má Guð vita.
Líklega er hvatinn sambland af ein-
sýni og botnlausri sannfæringu sem
oft fylgir þröngu sjónarhorni.
Það er erfitt að sannfæra Íslending
um að einkarekstur sé náttúrlega
betri en opinber rekstur. Við áttum
vonda ríkisbanka áratugum saman
og svo baneitraða einkabanka í örfá
ár. Af tvennu illu voru ríkisbank-
arnir líklega skömminni skárri.
Það er sárt að viðurkenna það fyrir
þau okkar sem munum þjónustuna
sem þeir veittu að líklega getum við
bara ekki gert betur. Alla vega sýnir
reynslan það ekki.
Það er heldur ekki hægt að færa
rök fyrir einkarekstri með því
að skoða úttektir á samkeppnis-
stöðu íslensks þjóðfélags. World
Economic Forum gerir slíkar út-
tektir sem njóta virðingar. Ísland
kemur svona lala út úr samanburði
við aðrar þjóðir. Við stöndum næstu
nágrannalöndum nokkuð að baki
en erum samt númer 26 í röðinni.
Það gæti verið verra.
Þegar einstakir þættir eru skoð-
aðir kemur í ljós að landið, þjóðin
og fámennt og öruggt samfélagið
hífir okkur upp. Ýmsar félagslegar
stoðir eru á pari við nágranna-
löndin; skólarnir, heilbrigðiskerfið,
hafnir og ýmsir innviðir. En þegar
kemur að fyrirtækjum, trausti í
viðskiptum, stjórnunarháttum,
endurskoðun, fjármálagjörningum
og slíku þá erum við órafjarri okk-
ar nágrönnum og erum í tossabekk
ásamt vanþroska ríkjum Austur-
Evrópu og Afríku; ríkjum sem eiga
sér stutta sögu lýðræðis.
Við erum kannski öngvir
heimsmeistarar í opinberum rekstri
en við eigum þó þar margt gott.
Hitaveita Reykjavíkur er til dæm-
is ágætt dæmi; allt frá því hún var
stofnuð og fram að þeim tíma að
það komst í tísku að reka opinberar
stofnanir eins og væru þær einka-
fyrirtæki. Þá snerist allt fljótt til
verri vegar hjá Hitaveitunni.
Því miður er fátt sem bendir til þess
að von sé á stefnubreytingu stjórn-
valda. Samkvæmt heilbrigðisáætlun
til 2020 er ráðgert að auka enn völd
og áhrif Sjúkratrygginga Íslands.
Kerfið á að byggja upp í líkingu al-
menns markaðar. Sjúkratryggingar
taka að sér að vera kaupandinn og
fagfólkið á að leika seljanda. Það
er eins og stjórnvöld telji að önnur
samskipti en markaðstorgið leiði til
spillingar og rangrar niðurstöðu.
Það má vel vera að stærri þjóð-
ir þurfi að byggja upp svona mark-
aðskerfi. Í Svíþjóð eru sjúkra-
tryggingar sem gera samninga
við sjálfstætt starfandi lækna og
einkastofur. Svíar eru hins vegar
þrjátíu sinnum fleiri en við. Sjúkra-
tryggingar þeirra hafa bolmagn til
að veita sjálfstætt starfandi heil-
brigðisfyrirtækjum bæði faglegt
og fjárhagslegt aðhald. Sjúkra-
tryggingar okkar eru hins vegar
lítið annað en leiktjöld. Á bak við
þær þenst kerfi einkarekstrar út án
eftirlits eða aðhalds.
Gunnar Smári
SKAÐLEGT
HUGMYNDAKERFI
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
RÓM
BORGARFERÐ
Frá kr. 113.900
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi með morgunmat.
28. október í 4 nætur.
Hotel Eurostars
International
Palace
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
N
M
77
52
4
Skelltu þér í
LISSABON
Frá kr. 87.900
Netverð á mann m.v.2 í
herbergi með morgunmat.
3. nóvember í 3 nætur.
Turim
Europa
VERONA
Frá kr. 93.900
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi m/morgunmat.
20. október í 4 nætur.
Hotel
Mastino
SEVILLA
Frá kr. 74.900
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi með morgunmat.
11. nóvember í 3 nætur.
Hotel Catalonia
Santa Justa
BÚDAPEST
Frá kr. 89.900
Netverð á mann m.v. 2 í
herbergi m/morgunmat.
20. október í 4 nætur.
Hotel Novotel
Centrum
Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann
Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann
Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann
Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann
Allt að 15.000 kr. afsláttur á mann
Frá kr.
74.900
m/morgunmat
Síðustu
sætin
Allt að
15.000 kr.
afsláttur á mann