Fréttatíminn - 30.09.2016, Blaðsíða 70
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 20166 RÁÐSTEFNUR&HÓPEFLI
Tryllt fjör á buggy-bílum
Buggy Adventures býður stórskemmtilegar ferðir þar sem fólki gefst kostur á að leika sér í torfærum á fjórhjóladrifnum
buggy-bílum um leið og það nýtur útivistar í yndislegri náttúru. Ferðirnar henta hópum af öllum stærðum og gerðum
sem hafa það að markmiði að upplifa eitthvað einstakt og skemmta sér vel.
Unnið í samstarfi við
Buggy Adventures
Allir koma svo kátir, hlæj-andi og glaðir til baka úr hverri ferð,“ seg-ir Harpa Groiss, fram-
kvæmdastjóri Buggy Adventures.
Ferðirnar eru fjörugar, óvenju-
legar og spennandi, enda sterk
og einstök upplifun að aka um
og leika sér á fjórhjóladrifnum
buggy-bílum í gegnum ýmsar
torfærur í stórbrotinni íslenskri
náttúru. Margvíslegar ferðir eru í
boði og er hægt að sníða hóp-
ferðir eftir eigin höfði. „Allt frá
klukkustundarferð þar sem heitt
kakó er í boði upp í nokkurra
klukkustunda ferð þar sem slegið
er upp grillveislu,“ segir Harpa.
Áhersla er lögð á að fólk skemmti
sér vel saman og fái að leika sér í
torfærum á öruggum akstursleið-
Einstök upplifun Akstur um fjöll og firnindi
á buggy bílum er spennandi og skemmtileg leið
til að sameina útiveru og aksjón .
Rennvotur Hluti af skemmtuninni
er að láta sig engu varða þó
vatn og drulla hellist yfir mann.
Ekið heim á leið Eftir smá hasar og leik er ljúft að aka heim á meðan sólin sest og litar
landið rautt.
Út að leika Það er ekki síður gaman að aka um á buggy-bílum á veturna.
Buggy adventures er opið allan ársins hring og býður ferðir, vetur, sumar,
vor og haust.
Allir með Stoppað er á miðri leið og skipt um bílstjóra, svo allir fá tækifæri til að keyra.
Í hverjum bíl er bílstjóri og einn farþegi.
Hópefli Undantekningalaust er mikið fjör þegar hópar koma saman í ferð hjá Buggy adventures. Adrenalínið, leikgleðin og skemmtunin sem fylgir því að leika sér á bílunum er upplifun sem gleymist seint.
Sérsniðin ferð Hópum býðst að sérsníða ferðir og ráða hversu langan tíma hún að taka og það er í jafnvel í boði að panta mat, allt frá
bakkelsi upp í grillveislu.
um sem valda ekki raski á nátt-
úrunni „Við berum virðingu fyrir
umhverfi okkar og náttúru, enda
er það stór hluti af upplifuninni
að aka um í fallegri náttúru,“ segir
Harpa.
Buggy-bílunum má að sumu
leyti líkja við fjórhjól þó þeir séu
talsvert stærri með pláss fyrir
einn farþegar ásamt bílstjóra.
Buggy-bílarnir eru þægilegir í
akstri og fjórhjóladrif kemur þeim
auðveldlega yfir mela, hóla og
læki. „Það getur fylgir þessu mikil
drulla og bleyta,“ segir Harpa.
Allir fá hjálm, galla, lambúshettu,
vettlinga og gúmmístígvél svo
ekki þarf að hafa áhyggjur af því
að fá á sig smá drullu.
„Fólk á öllum aldrei nýtur sín
í þessum ferðum og getur hver
haft sína hentisemi. Þó mikil
spenna fylgi því að leika sér á
bílunum þá er ekki síður ánægju-
legt að aka hægt og skoða útsýn-
ið, taka jafnvel myndir og njóta
augnabliksins. Svæðið sem við
ökum um hér í kringum Esjuna er
gríðarlega fallegt og heilmargt að
sjá allan ársins hring. Við ökum
um berjaland, framhjá laxveiðiá
og fallegum fjöllum. Á veturna
ökum við um í snjónum og þegar
myrkrið skellur á sjást oft norður-
ljós. Með þessum hætti tekst okk-
ur að blanda saman útsýnisferð
og aksjón,“ segir Harpa.
Buggy adventures er stað-
sett við Esjurætur og getur tekið
á móti allt að fimmtíu manns í
einu. Allar upplýsingar má finna á
buggyadventures.is og á Face-
book síðu Buggy Adventures.
Nánari upplýsingar
má finna á heimasíðunni
www.buggyadventures.is, í
gegnum netfangið info@buggya-
dventures.is eða síma 825 9060.