Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 14.10.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 14.10.2016, Blaðsíða 2
Sakamál Maður sem ákærð- ur er fyrir hrottalegt ofbeldi gegn barnsmóður sinni, var eftirlýstur af Interpol fyrir mánuði síðan. Hann náðist við landamæraeftirlit í Danmörku og er nú kominn til landsins. Lögregla telur að hann muni raska friði konunnar sé hann látinn afskiptalaus meðan málið bíður meðferð- ar. Nálgunarbann hefur ekki stöðvað hann hingað til. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Maðurinn var ákærður í vor fyr- ir alvarleg brot gegn barnsmóður sinni; fyrir að nauðga henni ítrekað, veitast að henni með ofbeldi, hóta henni og smána. Á hann að hafa sent kynferðislegar myndir af brotaþola á samskiptasíður og til þriðja aðila. Hann hefur samkvæmt lögreglu haldið til í Hollandi undanfarið ár. Málið verður tekið fyrir í Hér- aðsdómi Reykjavíkur á næstu vik- um og var því hafin leit að mann- inum. Þar sem hann ekki fannst var hann eftirlýstur af Interpol. Nokkrum dögum síðar náðist hann við landamæraeftirlit í Danmörku og var handtekinn við komuna til Ís- lands þann 16. september. Var hann úrskurðaður í farbann til 16. október og einnig gert að sæta nálgunar- banni í sex mánuði. Má hann ekki koma nálægt heimili barnsmóð- ur sinnar, nálgast hana, setja sig í samband við hana eða veita henni eftirför. Þetta er í annað sinn sem maðurinn er settur í nálgunarbann vegna ofbeldis gegn konunni en í fyrra skiptið rauf hann nálgunar- bannið ítrekað með áreiti. Konan hefur lýst því að hún óttist um líf sitt þegar maðurinn er stadd- ur á landinu. Er það einnig mat lög- reglu að hætta sé á að maðurinn raski friði konunnar sé hann látinn afskiptalaus, meðal annars á meðan mál hans er til meðferðar hjá dóm- stólum. Málið fer að öllum líkindum fyrir rétt í nóvember. Fréttatíminn ræddi við aðstand- endur konunnar, sem segjast gæta öryggis hennar vel. Maðurinn er meðal annars ákærður fyrir að beita konuna of- beldi á fæðingardeildinni í fyrra sumar, skömmu eftir að hún eign- ast tvíbura. Var konan með börnin í fanginu þegar atvikið átti sér stað. Hjúkrunarfræðingur studdi frásögn konunnar en Alda Hrönn Jóhanns- dóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höf- uðborgarsvæðinu, gagnrýndi í fjöl- miðlum að starfsfólk spítalans hafi ekki tilkynnt málið til lögreglu. Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa haldið ofbeldinu áfram eft- ir að konan kom heim af fæðinga- deildinni, meðal annars með því að þrýsta á sauma sem hún var með á maganum eftir keisaraskurð, rifið hana niður í gólf á hárinu á meðan hún hélt á börnum þeirra í fanginu, og slegið hana í andlitið. Á móð- ir mannsins að hafa verið viðstödd árásina og tók börnin en maðurinn hélt áfram að rífa í hár konunnar og slá hana. Eftirlýstur eftir ofbeldi á fæðingardeildinni Maðurinn er meðal annars ákærður fyrir að beita konuna ofbeldi á fæðingar- deildinni í fyrra sumar, skömmu eftir að hún eignast tvíbura. Velferð Erling Smith beið í 13 tíma eftir þjónustu á sunnudag, þar sem starfs- maður mætti ekki til að sinna honum. Erling var með NPA samning og persónu- legan aðstoðarmann en þarf nú að reiða sig á félagsþjón- ustu Mosfellsbæjar. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Erling Smith er lamaður frá hálsi eftir mótorhjólaslys og þarf að- stoð við flestar daglegar athafnir. Eiginkona hans var með samning við bæinn um að sinna þessu hlut- verki frá árinu 2009 þar til í sum- ar að hann missti NPA samning sinn. „Síðan þá þarf ég að fá aðstoð þegar það hentar bænum að senda starfsmann,“ segir Erling. „Fyrir nokkrum dögum fór konan að sofa á undan mér, því ég var að horfa á sjónvarpið frammi í stofu. Klukkan þrjú um nóttina, þegar hún vakn- aði til að fara á klósettið, sat ég enn í stólnum því starfsmaðurinn frá bænum hafði ekki mætt. Þetta er ekki í fyrsta sinn, en konan mín er í vaktavinnu og ég er bjargarlaus þegar þeir mæta ekki.“ Erling segir að fólk á vegum sveitarfélagsins banki núna uppá hjá konunni hans og vilji vita hvern- ig eigi að gera hlutina. „Það kemur nýr starfsmaður á hverjum degi, til að setja á mig þvaglegg og aðstoða við mjög persónulega hluti. Ég hef lent í því að vera hlandblautur tvo daga í röð þar sem starfsmennirn- ir kunna ekki hlutverk sitt. Mér finnst þetta fyrirkomulag vera tóm illkvittni.“ Aldís Stefánsdóttir talsmaður Mosfellsbæjar segir að starfsmað- ur frá bænum hafi átt að sinna Er- ling frá 6 til 10 á sunnudagskvöld. Hann hafi gleymt sér og ekki mætt. Hún segir að bæjaryfirvöldum þyki það leitt og þetta sé afar óheppilegt. Erling hafi þó sérstakt neyðarnúm- er sem hann geti hringt í ef aðstoð berst ekki. Hann hafi ekki hringt. Sat í 13 tíma í hjólastólnum — aðstoðarmaður mætti ekki Erling Smith er lamaður frá hálsi eftir mótor- hjólaslys. alla föstudaga og laugardaga Nemandi í stjórnmálafræði er afar óhress með útskýringar kennara síns, Hannesar Hólmsteins Giss- urarsonar prófessors á launamun kynjanna. „Hvernig stendur á því að prófessor við HÍ fær leyfi til að færa rök fyrir svona bull?,“ segir náms- konan Lily Fisher á Facebook-síðu sinni þar sem hún birtir nokkr- ar glærur úr fyrirlestri Hannesar. „Úúpps, gleymdi að ég væri kona og ætti vera hamingjusöm bara af því ég er mamma. Gígja „litla launin mín“ sér um að borga reikningana.“ Fjörugar umræður spunnust um glærusýningu Lilyar og er hún hvött til að tilkynna kennsluefni Hannesar til jafnréttisráðs Háskóla Íslands. | þka 2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 14. október 2016 Hannes og launamunurinn Glærusýningar Hannesar eru sagðar vekja gremju nemenda. Háskóli Íslands Við höfum ekki undan Dómsmál „Við erum alltaf að berjast við að hafa undan, við höfum ekki tíma eða fjármagn til að standa betur að málum,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson vararíkis saksóknari en Hæstiréttur hefur fellt niður mál sérstaks saksóknara gegn Hannesi Smárasyni vegna fjárdráttar. Hannes var sýknaður í febrúar í fyrra af ákærunni en hann var sagður hafa millifært tæplega þrjár milljónir króna af bankareikningi FL Group hjá Kaupþingi í Lúxemborg inn á reikning eignarhaldsfélagsins Fons árið 2005. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að málið hafi verið fellt niður vegna þess að saksóknari skilaði ekki greinargerð á réttum tíma þrátt fyr- ir ítrekaðar framlengingar á fresti, Ríkissaksóknari hafi ekki veitt hald- bærar skýringar á því hvers vegna það tók svo langan tíma að útbúa málsgögn og skila þeim til Hæsta- réttar. „Þegar málsgögnin bárust loks réttinum voru liðin meira en ellefu ár frá ætluðu broti, nærri átta ár frá upphafi rannsóknar og rúm- ir sautján mánuðir frá því að ríkis- saksóknari gaf út áfrýjunarstefnu til að fá hnekkt héraðsdómi um sýknu ákærða.“ Helgi Magnús sagðist ekki hafa lesið dóminn, þegar Fréttatíminn hafði samband við hann rétt áður en blaðið fór í prentun. Hann sagði þó að það kæmi á óvart að Hæsti- réttur hefði lagaheimild til að fella niður málið á þessum forsendum. Það sé alþekkt að dráttur á málum hafi stundum áhrif á ákvörðun refs- ingar en hann viti ekki til þess að mál hafi áður verið felld niður vegna hans. | þka Nær ellefu ár liðu frá því að féð var millifært af bankareikningi FL Group þar til málið var fellt niður vegna þess hve málið hefur dregist. Heilbrigðismál Heilbrigðis- eftirlit Reykjavíkur komst að því að hitakassar hefðu verið ófullnægjandi. Að minnsta kosti 34 fengu matar- eitrun í brúðkaupsveislu í Sand- gerði og er sökudólgurinn líklega lambakjöt. Þetta kemur fram í Farsóttarfréttum Landlæknaemb- ættis, en málið var rannsakað af sóttvarnarlækni og náðist tal af 45 gestum af 60. Fréttatíminn greindi frá því í sumar að veisluþjónustan Mínir menn hefðu verið sakaðir um að eyðileggja brúðskaupsveislu Sig- urbjargar Dísar Konráðsdóttur og eiginmanns hennar, Jón Hauks Ólafssonar. Það er Magnús Ingi Magnússon sem á veisluþjónustuna, en hann er betur þekktur sem Maggi í Texasborgurum. Fram kemur í farsóttarfréttum að maturinn, sem borinn var á borð í veislunni, var lagaður í veitingahúsi í Reykjavík og fluttur til Sandgerð- is í hitakössum með ófullnægjandi hætti að mati Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. | vg 34 fengu matareitrun vegna lambsins hjá Texas-Magga Magnús Ingi Magnússon bar á borð lambakjöt sem var líklega eitrað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.