Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 14.10.2016, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 14.10.2016, Blaðsíða 14
krumma.is Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma@krumma.is OFYR grill -Einstök hönnun- Grillin frá OFYR búa yfir einstakri hönnun og eldunar eiginleikum. Veglegur grillflöturinn gerir grillaranum kleift að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Grillið er stílhreint og einfalt sem gerir það að verkum að klassískar línur grillsins vinna í sátt við umhverfið. -Einstakir grilleiginleikar- KR,- 275.000 Þá hefur regnbogasilungur veiðst í fiskveiðiám víða um land síðastliðin ár, meðal annars í nokkrum þekkt- ari laxveiðiám landsins. Ástæðan fyrir því að fleiri fréttir berast af því að regnbogasilungur hafi veiðst en eldislax er líklega sú að auðveldara er að greina regnbogasilunginn en eldislaxinn. Enginn fiskur í náttúru Íslands lítur út eins og regnboga- silungur. Fleiri aðilar hafa gefið það út að þeir ætli að hefja laxeldi, meðal annars útgerðarfélagið Hraðfrysti- húsið Gunnvör í Hnífsdal á Vest- fjörðum sem hyggur á sjö þúsund tonna eldi í Ísafjarðardjúpi, og að minnsta kosti tvö laxeldisfyrirtæki á Austurland, Laxeldi Austurlands og Laxar fiskeldi. Þá vinnur Arnar- lax að því að hefja laxeldi í Bol- ungarvík. Landsamband veiðifélaga hefur meðal annars tekið þátt í þessari umræðu og segir Jón Helgi Björns- son formaður samtakanna að nýrnaveiki hafi komið upp í tveim- ur laxaseiðastöðvum á Tálknafirði, annars vegar hjá fyrirtækinu Bæj- arvík ehf. og hins vegar hjá fyrir- tækinu Arctic Smolt. „Við teljum að villtum löxum stafi mikil hætta af nýrnaveikum eldislöxum. Ef sýkt- ir laxar sleppa úr eldinu getur það haft mjög slæmar afleiðingar fyrir lífríkið. Þótt nýrnaveiki komi upp í einum og einum laxi í náttúrunni þá gerir það ekki svo mikið til en í laxeldiskvíum geta slíkar sýkingar orðið klínískar. Ef slíkir sýktir lax- ar sleppa úr eldinu getur það haft mjög slæmar afleiðingar fyrir líf- ríkið.“ Tekið skal fram að Jón Helgi er eigandi jarðarinnar Laxamýri 14 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 14. október 2016 „Ég óttast það að við séum einu sinni enn að fara af stað í einhverj- um hamagangi með nýja atvinnu- grein í stað þess að leyfa henni að þróast með eðlilegum hætti til að sjá kosti hennar og galla. Mér finnst sumir telja að laxeldið eigi að vera hinn nýi bjargvættur Íslands,“ seg- ir Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, aðspurð um hvaða skoðun hún hafi á auknu lax- eldi á Íslandi og hvernig hún telji að stjórnvöld í landinu eigi að bregðast við því. Hún segir að í síðustu viku hafi ríkisstjórnin ákveðið að hefja stefnumótunarvinnu um laxeldi á Íslandi sem Gunnar Bragi Sveins- son sjávarútvegsráðherra muni leiða og að umhverfis- og auðlinda- ráðuneytið muni vera með fulltrúa í þeirri nefnd. „Þannig að þessi nefnd mun hafa það hlutverk að skoða lax- eldið frá öllum hliðum. Við vorum síðast á fundi í gær [þriðjudag] í ráðuneytinu að ræða laxeldið.“ Sigrún segist hafa verið meðvituð um mögulegar hættur af laxeldinu í aldarfjórðung. „Ég get sagt þér það að fyrir tuttugu og fimm árum flutti ég tillögu og þrungna ræðu í borgarstjórn þegar setja átti lax- eldi í Viðeyjarsund. Ég var smeyk við þann úrgang sem laxeldið hefði skilið eftir sig.“ Sigrún segir þó að hún sé ekki að segja að hún sé mótfallin laxeldi heldur einungis að skoða þurfi af- leiðingar þessarar atvinnugrein- ar mjög vel. „Það þarf alltaf að skoða hvert tilfelli fyrir sig. Á Við- eyjarsundi var ekki nægilega mik- ill straumþungi til að sjórinn hefði hreinsað úrganginn frá laxeldinu. Kannski getur laxeldi verið gott við vissar aðstæður. Þess vegna er ég nú framsóknarmanneskja í hjarta mínu; ég get ekki verið svört eða hvít í öllu. Mannlífið, og allt saman, hefur ýmsar hliðar. Laxeldi getur átt rétt á sér á vissum stöðum. En ég bið fólk bara að ganga varlega um gleðinnar dyr og þetta hefur verið varúð mín lengi.“ Ríkisstjórnin telur því að aukn- ing umsvifa laxeldisfyrirtækja á Íslandi kalli á sérstaka stefnumót- unarvinnu og er sú vinna hafin nú þegar samkvæmt Sigrúnu. Lagaumhverfi ábótavant Landssamband fiskeldisstöðva hef- ur gefið það út að stefnt sé að því í framtíðinni að framleiða árlega á milli 60 og 90 þúsund tonn af eld- islaxi á Íslandi samkvæmt Höskuldi Steinarssyni, framkvæmdastjóra. Ríkisstjórnin vinnur að stefnumótun fyrir laxeldi á Íslandi. Laxeldisfyrirtæki stefna að tíföldun í framleiðslu á eldislaxi. Stór hluti fjármagns í íslensku laxeldi kemur frá norskum eldissfyrirtækjum sem vilja framleiða lax utan Noregs. Um- hverfisráðherra og Umhverfisstofnun telja regluverki í lax- eldi ábótavant. Milljón tonna framleiðsla á eldislaxi í Noregi hefur valdið genabreytingum á viltum norskum eldislaxi. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Stríðið um laxeldið: „Þú setur ekki verðmiða á náttúruna“ „Þetta er svipuð tala og Færeyingar eru að gera og um 45 prósent af út- f lutningsverðmætum Færeyinga er eldislax.“ Höskuldur var áður framkvæmdastjóri laxeldisfyrir- tækisins Fjarðalax sem fyrr í sum- ar sameinaðist Arnarlaxi á Bíldudal. Fyrirtækið framleiðir sex þúsund af þeim átta þúsund tonnum af eldislaxi sem framleidd voru á Ís- landi í fyrra og er því langstærst á íslenska markaðnum. Hærri tölur um umsóknir á framleiðsluleyfum í laxeldi hafa komið fram í fjölmiðl- um, á milli 100 og 120 þúsund tonn, þannig að framleiðslan gæti orðið enn meiri en Höskuldur nefnir. Stækkun laxeldisgreinarinnar á Íslandi er drifin áfram að hluta af hagnaðarþörf þeirra fjárfesta sem hafa lagt fé inn í greinina. Í nokkrum tilfellum, meðal annars hjá Fjarðalaxi og Laxeldi Austfjarða, kemur fjármagnið bak við laxeldið frá Noregi og norskum laxeldisfyrir- tækjum. Höskuldur segir að í fyrra hafi 8 þúsund tonn af eldislaxi ver- ið framleidd á Íslandi, í ár sé fram- leiðslan um 15 þúsund tonn, hugs- anlega 20 þúsund tonn árið 2018 og svo alltaf aukning í framleiðslunni þar á eftir. Því er um ræða marg- földun á framleiðslu á eldislaxi á Íslandi, allt að tíföldun, ef áætlan- ir Landssambands fiskeldisstöðva ganga eftir. Hagsmunaðilar í laxeldinu, eins og Höskuldur, benda hins vegar yfirleitt fyrst á mikilvægi eldisins fyrir efnahag landsins og atvinnu- líf í dreifbýli þar sem laxeldi skap- ar nú þegar rúmlega 500 bein störf á Íslandi. Víkingur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arnarlax, benti blaðamanni á að tala við fólk sem starfar í fiskeldi á sunnanverðum Vestfjörðum þegar haft var sam- band við hann um sýn hans á fisk- eldi á Íslandi en hann vildi annars ekki tjá sig um rekstur fyrirtækis- ins. Aflönd og Ísland Talsverð umræða hefur verið um lax- og regnbogasilungseldi í ís- lensku samfélagi í sumar og haust, meðal annars vegna hættu á sjúk- dómum eins og nýrnaveiki, sem eldisfiskurinn getur borið með sér fyrir villtar laxa- og silungstegundir. Ísland horfir til Noregs eftir fyrirmynd í laxeldi en Norðmenn hafa fram- leitt um milljón tonn á ári síðastliðin ár. Íslensk eld- isfyrirtæki stefna að um 100 til 150 þúsund tonna framleiðslu. Hér sjást sjókvíar frá Arnarlaxi í Arnarfirði á Vestfjörðum. Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráð- herra vill að gengið verði hægt um gleðinnar dyr í laxeldinu og varar við því að litið verði á greinina sem bjarg- vætt fyrir Ísland. „Þetta myndi stöðva atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.