Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 14.10.2016, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 14.10.2016, Blaðsíða 62
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Nú þegar pundið hefur aldrei verið lægra er um að gera að nýta sér breskar netversl-anir til að kaupa föt á hagstæðu verði. Þó auðvelt sé að versla á netinu er ýmislegt sem gott er að hafa í huga og fékk amk einn helsta sérfræðinginn á þessu sviði, Línu Birgittu Sigurðardóttur, einkaþjálfara og lífsstílsbloggara, til að gefa nokkur ráð. En hún hefur sjálf keypt ófáar flíkurnar á netinu í gegnum tíðina. „Það gæti ekki verið auðveldara að panta föt á netinu. Flestir eru hræddir við það sem þeir hafa ekki prófað áður, en um leið og fólk er búið að prófa einu sinni þá er þetta ekkert mál,“ segir Lína sem hvetur fólk til að prófa - fyrst bara eina ódýra flík - og fikra sig svo áfram. „Ég er ör- ugglega með þeim fremstu í flokki í að panta á netinu og ég hef aldrei lent í veseni.“ Kauptu frekar of stórt „Regla hjá mér númer eitt, tvö og þrjú, ef þú ert á milli stærða er að taka alltaf stærri stærðina. Það er alltaf betra að þú passir í flíkina og hún sé aðeins of víð, heldur en að þú komist ekki í hana.“ Lestu upplýsingar um flíkina „Svo er gott að lesa vel text- ann sem stendur við flíkina. Þar stendur hvaða efni er í vörunni, og stundum er tekið fram hvort stærðirnar eru litlar eða stórar. Ef ekkert er tekið fram má gera ráð fyrir að um venjulegar stærð- ir sé að ræða,“ segir Lína en hún verslar sjálf langmest af breskum síðum, því þá veit hún að stærð- irnar henta Íslendingum. „Það eru margir sem nota Aliexpress og panta beint frá Kína en þá fær fólk stundum flíkur sem eru alltof litl- ar, enda stærðirnar allt öðruvísi. Ef það er fyrsta reynslan af því að panta af netinu, þá fælir það fólk oft frá því að panta aftur. Þannig ef þú ert að panta þína fyrstu flík á netinu þá mæli ég einhverri breskri síðu.“ Athugaðu með afsláttarkóða „Á þessum bresku síðum eru oftast einhverjir afsláttarkóðar í gangi. Það stendur oft á upphafs- síðunni hvaða tilboð eru í gangi hverju sinni. Margir staldra ekki á upphafssíðunni og taka því ekki eftir þessu. Svo er líka hægt að Lærðu að kaupa föt á netinu Lína Birgitta er einn helsti sérfræðingur okkar Íslendinga í því að kaupa föt á netinu. Hér gefur hún byrjendum nokkur skotheld ráð. Hokin af reynslu Lína hefur pantað sér föt á netinu í nokkur ár og aldrei lent í vandræðum. Mynd | Hari „gúggla“ svona kóða og þá birtast síður með upplýsingum um afslátt- arkóða.“ Lína bendir líka á að sniðugt sé að skrá sig á póstlista hjá netversl- unum og fá þannig góðan afslátt af fyrstu pöntun, sem og reglulegar upplýsingar um tilboð. „Það getur reyndar verið stórhættulegt því þá fer maður sjálfkrafa að skoða og panta þó mann vanti ekki neitt,“ segir Lína og hlær. „En það er hægt að spara hellings pening með svona kóðum.“ Mundu eftir skattinum „Það er svo gott að vera meðvit- aður um virðisaukaskattinn sem þarf alltaf að greiða þó búið sé að afnema tollana. Maður greiðir þann kostnað þegar varan er sótt. Þegar uppi er staðið þá er þetta langoftast ódýrara en að versla hérna heima. Svo eykur þetta fjölbreytni og það eru ekki allir í sömu flíkunum.“ Ekkert mál að skila og skipta „Það er alltaf hægt að senda vörurnar til baka og fá endurgreitt eða nýja vörur. Fólk heldur oft að það sé ekki hægt og að það sitji uppi með flíkina. Maður fær útfyll- ingarblað með öllum sendingum og skráir þar hvort maður vilji nýja vöru eða fá endurgreitt, svo sendir maður vöruna til baka. Muna bara að skrá „tracking“ númerið því maður þarf sjálfur að fylgja þessu eftir, hafa samband við fyrirtæk- ið úti og kanna hvort varan hafi skilað sér til þeirra,“ útskýrir Lína, sem þurfti einmitt að skila vöru um daginn og það gekk eins og í sögu. „Þetta tekur auðvitað lengri tíma en ef varan væri keypt hérna heima, en maður fær endurgreitt eða nýja vöru á endanum.“ Uppáhalds netverslanir Línu: missguided.co.uk prettylittlething.com boohoo.com newlook.com …tíska 6 | amk… FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016 Póstsendum frítt hvert á land sem er STÆRÐIR 42-56 HAUST ÚTSALA AF VÖLDUM VÖRUM -30% PATNAÐU Á CURVY.IS EÐA KOMDU Í VERSLUN OKKAR AÐ FÁKAFEN 9 OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 11-18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL. 11-16 Fákafen 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is BJÓÐUM U PPÁ FRÍA PÓSTSEND INGU!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.