Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 14.10.2016, Síða 16

Fréttatíminn - 14.10.2016, Síða 16
Talar þú hundamál? „Ég fagna því að loksins komi bók um hunda fyrir börn þar sem lögð er áhersla á að þekkja merki hundsins og að geta séð hvernig honum líður. Bókin er góð leið til að opna umræðu foreldra við börnin um hvernig á að umgangast hunda.“ HEIÐRÚN KLARA, HUNDAÞJÁLFARI HJÁ HUNDAAKADEMÍUNNI vika 40 barnabækur w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39 16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 14. október 2016 Stærstu hluthafar íslenskra laxeldisfyrirtækja: Arnarlax og Fjarðalax Kvitholmen AS - Norskt fyrirtæki sem er í eigu norska laxeldisfyrirtækisins Sal- mar, Einars Arnar Ólafssonar og fleiri. Tryggingamiðstöðin - Íslenskt tryggingafélag Gyða ehf. - Íslenskt eignarhaldsfélag í eigu framkvæmdastjóra Arnarlax Vík- ings Gunnarssonar og fleiri. Fiskeldi Austfjarða NMH Holdings As - Norskt laxeldis- fyrirtæki Eggjahvíta ehf. - Guðmundur Gíslason Hregg ehf. - Gísli Guðmundsson kenndur við B&L. Háafell ehf. Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal Laxar fiskeldi ehf. Guðmundur Gunnarsson, Gunn- ar Steinn Gunnarsson, Einar Örn Gunnarsson, Helgi Guðmundur Sig- urðsson og fleiri. Arctic Fish á Flateyri Norway Royal Salmon - norskt laxeld- isfyrirtæki skráð í kauphöllina í Noregi. Bremesco Holding ltd. á Kýpur - Eig- andi er Jerzy Malek sem stundað hefur laxeldi í Póllandi, Noregi og víðar. Novo ehf. - Guðmundur Stefánsson og Sigurður Pétursson. *23 eldisfyrirtæki eiga aðild að Landssam- bandi fiskeldisstöðva. Hér er aðeins rætt um þau stærstu. í Aðaldal á Norðurlandi sem á veiðiréttindi í Laxá í Aðaldal. Vilja stöðva frekari leyfisveitingar Krafa Jóns Helga og landssam- bandsins er skýr. „Við teljum að stjórnvöld eigi ekki að gefa út fleiri framleiðsluleyfi fyrr en farið hef- ur fram ítarleg áhættugreining á umhverfisáhrifum laxeldis.“ Fjár- festing norskra stórfyrirtækja í fyrirtækjum eins og Arnarlaxi og Fjarðarlaxi byggir hins vegar á þeirri forsendu að framleiðsluleyfi fáist frá stjórnvöldum fyrir aukinni framleiðslu á eldislaxi þar sem eld- isfyrirtækin þurfa að vera stór til að vera hagkvæm og arðsöm. Jón Helgi segir að helsta gagnrýni sambandsins sé á notkun sjókvía og þá staðreynd að norski eldislaxinn er frjór og getur því fjölgað sér með villtum íslenskum löxum og breytt genamengi hans ef svo ber undir. „Við höfum engar athugasemdir við fiskeldi á landi. Það hafa ver- ið rekin skemmtileg fyrirtæki eins og Silfurstjarnan í Öxarfirði og það sem Samherjamenn eru að gera á Reykjanesi að rækta lax á landi. Ef þetta er gert á landi ógnar eldið ekki villtum stofnum. Það eru sjó- kvíarnar sem eru hættulegar líf- ríkinu og sú staðreynd að laxinn er frjór. Laxeldisfyrirtækin hafa sagt að starfsemin sé sjúkdómafrí en svo kemur í ljós að svo er ekki. Svo ætla menn að taka þessa stöðu sem nú er og tuttugufalda laxeldið að stærð. Hvernig halda menn að náttúran muni þá líta út?.“ Þegar Jón er spurður að því hvaða fjárhagslegu hagsmuni hann og landeigendur við laxveiðiár hafi sem heild af sölu veiðileyfa í árn- ar segir hann að það séu upphæðir sem hann sé ekki með á hraðbergi. Hann segir hins vegar að sala veiði- leyfa sé mikill stuðningur við bú- setu og bændur víða um land, til dæmis í Aðaldalnum þar sem ann- ar hver bær fái tekjur af sölu veiði- leyfa. „Þetta snýst samt bara um að vernda náttúru Íslands. Þú set- ur ekki verðmiða á nátturuna. Við erum búin að hafa þessa laxastofna hérna frá því að við byggðum þetta land. Við höfum ekki leyfi til þess, í boði norskra stórfyrirtækja, að fórna þessum stofnum.“ 20 þúsund tonn spilltu ekki Höskuldur Steinarsson hjá Lands- samtökum fiskeldisstöðva segir aðspurður að það að stöðva leyfis- veitingar í laxeldi myndi hafa „gríðarlegar afleiðingar“. „Þetta myndi stöðva atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Þetta er fáheyrð krafa hjá þeim.“ Höskuldur segir að laxeldi í sjó- kvíum hafi verið stundað á Íslandi frá aldamótum og búið sé að fram- leiða um 20 þúsund tonn af eldislaxi án þess að þetta hafi haft afleiðingar á íslenska laxastofna. „Meginpunkt- urinn í þessu er að laxeldi í sjó- kvíum er óheimilt á svæðum þar sem eru raunverulegir hagsmun- ir íslenskra laxastofna. Við erum á þeim svæðum sem við erum til að vernda íslenska laxastofna. Þetta hefur ekkert breyst. Það er búið að ala meira en 20 þúsund tonn af eldislaxi í sjókvíum frá aldamót- um án þess að það hafi haft slæmar afleiðingar á laxastofna á Íslandi. Svæðaskipulagið á Íslandi, að hafa bannsvæði til verndar laxastofnun- um, er mikilvægt.“ Milljarða viðskipti með hlutabréf í laxeldi Eigendur laxeldisfyrirtækisins Fjarðalax fengu andvirði rúmlega 3.7 milljarða króna fyrir hlutabréf sín í fyrirtækinu þegar það sameinaðist eldisfyrirtækinu Arnarlaxi á Bíldudal nú í sumar. Tveir milljarðar króna voru greiddir í reiðufé en eigandinn, eignarhaldsfélagið Fiskisund ehf., fékk einnig hlutabréf í Arnarlaxi upp á rúmlega 1700 milljónir króna. Eigendur Fiskisunds ehf. eru þau Einar Örn Ólafsson, Kári Þór Guðjónsson og Halla Sigrún Hjartardóttir. Þessar upplýsingar koma fram í sérfræði- skýrslu um sameiningu fyrirtækjanna tveggja sem unnin var af lögmanni, Erni Gunnarssyni, á lögfræðistofunni Lex í sumar. Í skýrslunni kemur fram að 90 prósent af fjármögnun- inni fyrir kaupunum á Fjarðalaxi komi frá norska laxeld- isfyrirtækinu Salmar sem skráð er í norsku kauphöllina. Kaupverðið á Fjarðalaxi var áætlað út frá þeim leyfum sem fyrirtækið hefur til að framleiða eld- islax, samtals 4.500 tonn, mínus skuldir fyrirtækisins, og endaði áætlað verðmæti fyrirtækisins því í tæplega 250 milljónum norskra króna. Mikil verðmæti felast því í fengnum leyfum til framleiðslunnar. Í skýrslunni kemur hins vegar fram að Fjarðalax hafi sótt um leyfi til Skipulags- stofnunar fyrir árlegri framleiðslu á 37.500 tonnum af eldislaxi til viðbótar við þessi 4.500 tonn sem er rúmlega áttföldun á framleiðslu fyrirtækisins. Þessi tala bæt- ist svo við 3.400 tonna framleiðslugetu Arnarlax auk frekari leyfa sem fyrirtækið kann að hafa sótt um. Framleiðsla hins nýja sameinaða stór- fyrirtækis í laxeldi á Íslandi þarf því að standa undir þessari fjárfestingu norska fyrirtækisins í greininni og þetta verður aðeins gert með aukinni framleiðslu á eld- islaxi. Einar Örn Ólafsson Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax, sést hér halda á rúmlega tíu kílóa eldislaxi sem fyrirtækið hefur ræktað.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.