Fréttatíminn - 14.10.2016, Qupperneq 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 14. október 2016
Það er kannski of snemmt að fagna, en flest bendir til að komandi kosningar muni ekki hverfast um samskon-
ar málefni og Donald Trump held-
ur á lofti í Bandaríkjunum, fylgj-
endur Brexit gerðu í Bretlandi eða
National Front í Frakklandi eða Al-
ternative für Deutschland í Þýska-
landi. Svíþjóðar demókratar eða
Sannir Finnar. Þegar þetta er talið
upp er ekki laust við að manni létti.
Þetta er ekki svo lítil leiðindi að vera
laus við.
2016 virðist ekki ætla að verða
ár nýrasistans á Íslandi, nýfasist-
ans eða þjóðernissinnans. 2016
er heldur ekki gott ár fyrir sterka
manninn á íslenskum stjórnmál-
um. Ólafur Ragnar Grímsson dró
framboð sitt til baka þegar hann sá
að af öllum líkindum myndi hann
tapa í kosningum á móti Guðna Th.
Jóhannessyni. Davíð Oddsson van-
mat breytta tíma og eigin stöðu og
bauð sig fram. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson féll í formannskjöri
Framsóknar.
Uppgangur nýfasisma og kynþátta-
andúðar og vaxandi ákall eftir
sterka manninum á Vesturlöndum
er nátengt efnahagsþróun undan-
farinna ára. Efnahagsstefna ný-
frjálshyggjunnar og aukin alþjóða-
væðing hefur leikið mörg landsvæði
illa. Íbúar þeirra upplifa sig svikna.
Valdastöðvar landanna, hvorki í
stjórnmálum, viðskiptum né efna-
hagsmálum, virðast vinna gegn
hagsmunum þessara svæða. Þau
hafa verið skilin eftir. Og ekkert
bendir til að hagur þessara svæði
muni batna í fyrirsjáanlegri fram-
tíð.
Donald Trump nýtur mest
stuðnings í fylkjum þar sem lands-
framleiðsla á mann er langt und-
ir landsmeðaltalinu. Uppgangur
síðustu áratuga hafa farið fram
hjá þessum svæðum. Trump er
til dæmis sterkur í Mississippi þar
sem landsframleiðslan er helming-
ur af því sem hún er í New York eða
Connecticut þar sem Hillary Clinton
er með algjöra yfirburði. Hillary er
með miklu meira fylgi en Trump í
Nýja Englandi, Miðausturríkjunum
og við Kyrrahafsströndina. Þetta
eru ríkustu svæði Bandaríkjanna.
Trump er hins vegar yfir í suðrinu
og á sléttunum þar sem hagvöxtur
er minni og landsframleiðsla á
mann er miklu minni.
Wales kaus með Brexit en London
vildi vera áfram í Evrópusam-
bandinu. Í Wales er landsfram-
leiðsla á mann aðeins fjórðungur af
því sem hún er í London. Almennt
naut úrsögn úr ESB meira fylgis í
Bretlandi þar sem framleiðslan var
minni.
Í Picardy í Frakklandi, þar sem
National Front hefur mesta fylgið,
er landsframleiðsla 32 þúsund evr-
ur á mann á meðan hún er 72 þús.
evrur í Île-de-France, það er í París
og nærsveitum.
Alternative für Deutschland
fékk 20,8% í fylkiskosningum í
Mecklenburg-Vorpommern og
24,4% í Saxony-Anhalt, þar sem
landsframleiðsla er um 20 þúsund
evrur, en aðeins 6,1% í Hamborg,
þar sem landsframleiðsla er 50 þús-
und evrur.
Það er því beint samhengi á milli
efnahagslegrar stöðu og uppgangs
popúliskra flokka. Þeir vaxa þar
sem fólk upplifir sig svikið af nú-
tímanum, svæða sem hafa orðið
undir í efnahagsbreytingum liðinna
ára. Fólk á þessum svæðum hafn-
ar meiru af því sama sem það hef-
ur fengið að reyna á undanförnum
árum. Skiljanlega.
Svipuð tengsl efnahagslegrar
stöðu og uppgangs popúlisma má
sjá á Norðurlöndum. Svíþjóðar-
demókratarnir eru sterkastir á
Skáni og í Suður-Svíþjóð og upp í
Smálöndin þar sem landsfram-
leiðsla er um tveir þriðju af því sem
er í Stokkhólmi og nágrenni. Danski
Þjóðarflokkurinn er stærstur flokka
syðst á Jótlandi og í sveitum Sjá-
lands. Þar er landsframleiðslan á
bilinu 55 til 70 prósent af því sem
er í Kaupmannahöfn og nágrenni.
Fylgi norska Framfaraflokksins er
mest í Þrændalögum og syðst í Nor-
egi þar sem landsframleiðslan er
um tveir þriðju af því sem er í Osló
og nágrenni.
Það eru ekki til nákvæmlega
niðurbrotnar tölur um landsfram-
leiðslu eftir landsvæðum á Íslandi.
Þegar reynt hefur verið að brjóta
landsframleiðsluna niður eftir
landsvæðum hefur engin viðlíka
gjá sést. Þegar horft er til ráðstöf-
unartekna fjölskyldna er munurinn
á höfuðborgarsvæðinu og lands-
byggðinni ekki meiri en 10 prósent.
Það er því blessunarlega ekki sá
farvegur fyrir uppgang nýrasista á
Íslandi og víða í löndunum í kring-
um okkur. Það er því ekki að undra
að Flokkur fólksins, sem byggir mál-
flutning sinn á bágri stöðu aldraðra,
öryrkja og annarra fátækra, sæki
fram á meðan Íslenska þjóðfylk-
ingin nær litlum ef nokkrum hljóm-
grunni. Efnahagslegar forsendur
fyrir málflutning hennar eru ein-
faldlega ekki til staðar.
Gunnar Smári
EKKERT PLÁSS
FYRIR RASISTA
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
KLASSÍK!
Bókin um Landið í
fjarskanum sem heillað
hefur lesendur kynslóð
fram af kynslóð.
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39