Fréttatíminn - 14.10.2016, Page 54
54 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 14. október 2016
Hvar varstu þegar
Michael Jackson dó?
Lát frægra einstaklinga eða stórir
heimsviðburðir geta haft mikil áhrif á sálarlíf
okkar og lifir lengi í minningunni. Fréttatíminn
spyr landann hvar hann var á þessum stóru
augnablikum.
Hvað segja ungu
frambjóðendurnir?
Þórdís Kolbrún Gylfadóttir
28 ára. Sjálfstæðisflokkur.
1Ég og unnusti minn festum kaup á okkar fyrstu íbúð vorið
2015, m.a. með því að nýta skatt-
frjálsu séreignasparnaðarleiðina,
sem nú hefur verið fest í sessi og
er mikilvægt skref. Við búum í 75
fm, þriggja herbergja íbúð með
fjögurra ára syni okkar og, ef lífið
lofar, ófæddri dóttur okkar í lok
mánaðarins.
2Já ég hef leigt á fjórum stöð-um. Fyrst í Grafarholti í tvö ár
á meðan ég var í laganámi í HR.
Ég leigði með vini mínum í mið-
bænum árið 2010. Eftir skipti-
nám í Austurríki 2011 leigðum við
unnusti minn í Vesturbæ Reykja-
víkur til loka árs 2013 og leigðum
svo í Garðabæ þar til í fyrra.
3Bæta þarf stöðu húsnæðismála svo ríkisafskipti verði með sem
minnsta móti enda ræður almennt
framboð og eftirspurn frjálsum
fasteignamarkaði. Tryggja þarf
fólki valfrelsi um hvort það vilji
eignast íbúð eða leigja. Ríkið getur
ekki stýrt leigumarkaði. Einfalda
þarf byggingarreglugerð, stærð og
gerð á að ráðast af þörfum kaup-
enda en ekki hins opinbera. Það
þurfa ekki allir alrými, geymslu og
bílastæði. Auka þarf framboð lóða
og þar með framboð íbúða.
Hjördís
Heiða segir
öryrkjum
nánast ókleift
að kaupa eigin
íbúð. Mynd úr
einkasafni.
Katla Hólm Þórhildardóttir
30 ára. Píratar.
1Ég leigi íbúð.
2Ég hef alltaf verið á leigumark-aðinum. Byrjaði að leigja með
vinum mínum 17 ára og fann
hvernig markaðurinn stökkbreytt-
ist fyrir árið 2007. Var oft í mikl-
um vandræðum með að finna mér
húsnæði en verst var það þegar
ég var ein með drenginn minn
tveggja ára gamlan og var inni á
fjölskyldu minni í nokkra mánuði
áður en ég fékk húsnæði.
3Mér finnst það vægast sagt ömurlegt. Það er ömurlegt að
fólk geti ekki leigt sér húsnæði á
eðlilegu verði, það er ömurlegt að
einstæðir foreldrar geti ekki tryggt
börnum sínum öruggt heimili til
lengri tíma og það er ömurlegt að
foreldrar sem hafa ekki lögheimili
barnsins hjá sér séu milli steins og
sleggju í húsnæðismálum. Það er
ömurlegt að stóra svarið hjá yfir-
völdum sé alltaf séreignarstefna,
leiguhúsnæði á að vera raunhæfur
kostur fyrir venjulegt fólk. Stjórn-
völd þurfa að setja hagsmuni leigj-
enda í forgang. Það er hægt með
því að regluvarða leigumarkaðinn
þannig að hann haldist stöðugur,
það býður fólki upp á öryggi
og aukinn sveigjanleika
til lengri eða skemmri
tíma.
Hjördís Heiða
28 ára. Flokkur fólksins
1 Ég hef alltaf verið á leigu-markaðnum en mig hefur að
sjálfsögðu langað að eignast mitt
eigið húsnæði. Það er virkilega
erfitt þar sem greiðslumatið er
ekki sniðið að kaupmætti öryrkja
og verðtrygging ásamt okurvöxt-
um gera okkur það nánast ókleift
að kaupa okkur eigin íbúð, nema
við eigum maka sem hjálpar til og
þá er víst betra að hann eða hún
sé ekki öryrki líka. Því erum við
háð leigumarkaði sem er dapurt
og mannvont kerfi vegna þess að
þrátt fyrir að friðhelgi einkalífsins
og heimilis sé tryggð í stjórnarskrá
þá ráðum við svo sannarlega ekki
hvernig við lifum lífinu sem leig-
utakar, heldur verðum að standa
(og sitja) eftir vilja og kröfum leig-
usalans. Leigjendur mega til dæm-
is sjaldnast eiga gæludýr.
2Ég hef alltaf verið á leigumark-aðnum. Það þarf virkilega að
fara vel yfir húsnæðismál. Margir
eru heimilislausir og búa inni
á vinum og ættingjum, eða eru
á götunni. Lágmarksframfær-
sla verður að vera að lágmarki
300.000 kr. eftir skatt. Flokkur
fólksins vill að allir fái 300.000
króna lágmarksframfærlsu
eftir skatt.
3Staða húsnæðismála er virki-lega slæm og ég held að margir
geri sér ekki grein fyrir alvar-
leikanum og hversu margir eru
raunverulega heimilislausir. Ísland
er ríkt land sem gæti séð vel um
alla þegna sína. Eins og staðan
er í dag búa margir við óvissu á
leigumarkaði.
Spurningar:
1 Leigirðu eða áttu
íbúð?
2 Hefur þú verið á
leigumarkaðnum
áður?
3 Hvað finnst
þér um stöðu
húsnæðismála
á Íslandi?
Kosningar til Alþingis fara fram í lok mánaðar
en alls eru tólf flokkar í framboði. Finna má
marga reynslubolta í röðum frambjóðenda
en líka ný andlit. Fréttatíminn tekur púlsinn á
ungum frambjóðendunum fram að kosningum
og heyrir hvað þeir hafa að segja um málin.
Við byrjum á húsnæðismálum og spjöllum við
frambjóðendur í Sjálfstæðisflokknum, Pírötum
og Flokki fólksins.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Þórdís
Kolbrún
segir ríkið
ekki geta
stýrt leigu
markaði.
Mynd | Rut
Katla Hólm
hefur alltaf
verið á leigu
markaði.
Mynd | Rut
Vinkonurnar Dóra og Ingunn
kynntust fyrir fjórum árum í
Mjölni þegar þær glímdu við hvor
aðra. „Við vorum báðar í glímunni
og kynntumst í henni. Það eru
margir vinahópar sem myndast í
Mjölni. Ég held að það myndist sér-
staklega góð vinabönd í glímu og
kick-boxi. Þá er maður í aðstæðum
þar sem maður þarf að treysta æf-
ingafélaganum sínum fyrir því að
slasa mann ekki. Hann hefur eigin-
lega líf manns í höndunum,“ segir
Dóra. Þannig styrkist vinaböndin.
Dóra byrjaði að æfa í Mjölni
fyrir fjórum árum en Ingunn ári á
undan. Aðspurðar um hvers vegna
þær hafi orðið svona góðar vinkon-
ur segja þær: Við bara smullum
einhvern veginn þarna í glímunni
og höfum verið góðar vinkonur
síðan. Höfum svipaða lífssýn.
Erum á sömu bylgjulengd.
„Það voru ekki margar stelpur
í Mjölni á þessum tíma en mjög
öflugt stelpustarf. Hópurinn var
því duglegur að hittast og sam-
anstendur af góðum vinkonum.
Reyndar eignast maður rosa-
lega mikið af vinum í Mjölni og
kunningjum. Það er svo vinaleg
stemning þar. Eiginega eins og
félagsmiðstöð.“
„Það er stundum gert grín af
því að þetta sé hálfgert cult,“ segir
Dóra að lokum hlæjandi. | bg
Vináttan: Urðu vinkonur í glímu við hvor aðra
„Það er stundum gert grín af því að þetta sé hálfgert cult.“
Vinkonurnar Dóra og Ingunn æfa báðar hjá Mjölni. Mynd | Hari
Ég held að það myndist
sérstaklega góð vinabönd
í glímu og kick- boxi.
Dóra Haraldsdóttir
Guðmundur Herbertsson
„Það hafa því miður margar
poppstjörnur fallið frá á mínu
stutta æviskeiði. Það sem situr
fast í minningunni er þegar mitt
helsta átrúnaðargoð og konungur
poppsins, Michael Jackson, lést.
Ég var að vinna sem kokkanemi
í Perlunni sumarið 2009 þegar
sagt var frá því á Bylgjunni að
hann væri látinn. Ég fann fyrir
gríðarlegri sorg við það að missa
einhvern sem ég í raun þekkti ekk-
ert persónulega, það var skrýtin
upplifun. Mig langaði að fara heim
því mér leið svo illa en harkaði það
þó af mér. Ég get huggað mig við
það að tónlistin hans mun lifa að
eilífu.“| hdó
Guðmundur saknar MJ en tónlistin hans mun lifa að eilífu. Mynd | Rut
Fræðandi og
skemmtilegt
lífsstílstímarit
Stútfullt blað af
spennandi efni.
Sjö milljón túlípanar,
kaffihús í bústaðnum,
kaktusar í garðinum,
súrkál og bláar
kartöflur.
Áskrift á rit.is