Fréttatíminn - 14.10.2016, Síða 64
Flestir eru meðvitaðir um að kyn-
líf er allra meina bót. En góð vísa
er aldrei of oft kveðin - hér eru
nokkrar ástæður fyrir því hvers
vegna þú ættir að stunda mikið
kynlíf.
• Það bætir ónæmiskerfið - fólk
sem er kynferðislega virkt hef-
ur sterkari varnir gagnvart sýk-
ingum og vírusum.
• Það eykur kynhvötina. Já -
hljómar undarlega en eftir því
sem þú stundar meira kynlíf,
því meira kynlíf langar þig til
þess að stunda.
• Það hjálpar konum að hafa
stjórn á þvagblöðrunni. Eftir
því sem við eldumst slaknar á
þvagblöðrunni en kynlíf hjálp-
ar til við að halda henni við,
ekki síst þar sem kynlíf þjálfar
grindarbotnsvöðvana.
• Það lækkar blóðþrýsting.
• Það minnkar streitu.
• Það getur lagað túrverki og
hausverk.
• Það getur minnkað líkur á
blöðruhálskirtilskrabbameini
hjá körlum þar sem losun eitur-
efna á sér stað.
• Það eykur vellíðan og getur
slegið á þunglyndiseinkenni.
Af hverju kynlíf?
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Anna Þorsteinsdóttir íþróttafræðingur sem heldur úti „snapp-inu“ engar öfgar þar sem hún ræðir meðal
annars um heilsu og hollt matar-
æði á fróðlegan og upplýstan hátt,
er dugleg að baka hollt brauðmeti,
bæði til að spara og til að fá nær-
ingarríkari útgáfu af brauðinu.
Með því að baka sjálf getur hún
valið hráefnin gaumgæfilega og
útkoman verður næringarríkara
og hollara brauðmeti sem tilvalið
er að gæða sér á milli mála, eða
bara nota í máltíð þegar þannig
stendur á. amk fékk Önnu til að
deila nokkrum einföldum og góð-
um uppskriftum af brauðmeti sem
slær alltaf í gegn hjá börnum og
fullorðnum.
Skinkuhorn
3 dl spelt
2 dl hveitikím
2 dl möndlumjöl
2 ½ tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
2 dl ab-mjólk
smá vatn ef þarf
Í fyllinguna má nota hvað sem
hugurinn girnist
til dæmis skinkumyrju eða léttan
beikon- og skinkusmurost, rifinn
ost og skinkubita.
Svo er osti stráð yfir hornin
áður en þau eru sett inn í ofn.
Bakað við 180° í 20 mínútur eða
þangað til osturinn er gullinbrúnn
Bananamúffur
2 bollar hafrar
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
1 ½ tsk. kanill
1 bolli ab-mjólk
2 þroskaðir bananar, stappaðir
2 msk. olía
1 egg
2 tappar vanilludropar
Svo má bæta við til dæmis rúsín-
um, döðlum eða þurrkuðum trönu-
berjum.
Setjið litlar deigklessur með
matskeið á smjörpappír.
Bakað við 180° í 20 mínútur eða
þar til múffurnar eru orðnar ljós-
brúnar.
Hrökkbrauð
1 dl haframjöl
1 dl sólblómafræ
1 dl möndlumjöl
1 dl graskersfræ
1 dl hörfræ
1 ½ dl spelt
1 ½ dl hveitikím
½ dl kókosmjöl eða flögur
½ tsk. salt
1 dl ólífuolía
2 dl vatn
Skiptið deiginu í tvær kúlur og
fletjið út mjög þunnt á smjörpapp-
ír. Best er að setja smjörpappír
yfir deigið líka á meðan það er
flatt út með kökukefli, svo það
límist ekki við keflið. Passar á
tvær plötur.
bakað við 180° í 20 til 25 mín-
útur eða þar til hrökkbrauðið er
orðið brúnt og vel stökkt.
Bakaðu hollt og næringar-
ríkt brauðmeti í vetur
Anna Þorsteinsdóttir íþróttafræðingur vill frekar baka brauð en kaupa
það úti í búð. Hún gefur lesendum þrjár einfaldar uppskriftir.
Dugleg að baka Anna bakar frekar brauðmeti en kaupa það, þá veit hún að það er bæði hollt og næringarríkt. Mynd | Hari
…heilsa 8 | amk… FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
CURCUMIN
Gullkryddið
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og
starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún
hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í
með liðagigt.
„Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum
og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín
sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika
sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan
mánuð þegar ég missti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að
Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.”
LIÐIR – BÓLGUR – GIGT
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
balsam.is
FÁÐU AÐSTOÐ
SÉRFRÆÐINGS
Guðný Helgadóttir, frá
umboðsaðila OSRAM á
Íslandi, aðstoðar viðskiptavini
við val á perum laugardaginn 15.
október milli 12 og 16.