Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 19.11.2016, Qupperneq 10

Fréttatíminn - 19.11.2016, Qupperneq 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 19. nóvember 2016 Hannes og Steini ólust upp hlið við hlið í Kópavogi. Þrátt fyrir að hafa farið í hvor í sína áttina á unglingsárunum segjast þeir alltaf leita í gamla vinahópinn. „Við Steini ólumst upp í húsum sem voru hlið við hlið og erum báðir fæddir í nóvember árið 1975. Vin- skapurinn byrjaði þannig að við vorum settir skríðandi út í garð saman og svo höfum við fylgst að meira og minna síðan þá. Við erum líkir að því leytinu til að við erum báðir langyngsta systkinið og áttum báðir eldri foreldra en vinir okkar, við erum því báðir aldir upp á dá- lítið gamaldags heimilum,“ segir Hannes. „Við vorum rosalega mikið úti í garði og ég man að ég kom stundum sár heim því Hannes var stærri og hafði þá verið að bögglast eitthvað með mig. Við vorum oft pirraðir hvor á öðrum eins og gengur og gerist með góða vini. Við stofnuð- um hljómsveit í garðinum og spiluð- um Egó-lög þegar við vorum fimm ára, ætli Hannes hafi ekki verið á trommum. Hann tók trommurn- ar upp mjög snemma og ég man eftir honum með algjöra dellu, í sófasettinu heima hjá mér og við skrifborð pabba hans sem var allt í skörðum eftir hamaganginn.“ Kamelljón og gömul sál Húsin þeirra Hannesar og Steina voru hlið við hlið í vesturbæ Kópa- vogs sem þeir segja hafa verið draumastað að alast upp á. „Þetta var eins og lítið þorp,“ segir Hannes. „Við hlupum saman á milli garða og hittum hina vinina sem voru allir í næstu götu. Það var allt til staðar, búðin, sjoppan, bak- aríið, fiskbúðin og félagsmiðstöðin. Við vorum alltaf að gera eitthvað saman, í fótbolta, skjóta af túttu- byssum eða teika bíla. Svo fórum við í gaggó og byrjuðum að elta stelpur og prófa allskonar hluti saman. Eftir unglingsaldurinn fór- um við hvor í sína áttina og fengum áhuga á ólíkum hlutum en við héld- um samt alltaf sambandi.“ „Steini er algjört kamelljón. Hann fær mikinn áhuga á einhverju og nær einhvernveginn að fullkomna sig á því sviði á mjög stuttum tíma. Í fyrra ákvað hann til dæmis að fá allt í einu áhuga á fótbolta og fór alla leið með það, var allt í einu far- inn að tala mjög mikið um fótbolta. Svo fékk hann áhuga á hundum og bílum og fór líka alla leið með það. En hann hefur alltaf verið mikill hönnuður og það er gaman að fylgj- ast með honum í því.“ „Já, við fórum í ólíkar áttir á ung- lingsárunum,“ segir Steini. „Ég fór að hanga í bænum og eignaðist nýja vini þar, og ég er ekkert viss um að við myndum kynnast í dag ef við kæmum hvor úr sinni áttinni. En við eigum þessa sameiginlegu fortíð og þekkjum hvor annan mjög vel og höfum alltaf haldið sambandi. Það sem er gott við Hannes er að hann segir alltaf það sem honum finnst og ég held að hann sé dálítið göm- ul sál. Hann er pínu dulur stund- um en algjör vinur vina sinna. Við erum hvor í sinni kreðsunni í dag en hittumst samt alltaf, fengum okkur til dæmis hádegismat saman í vikunni og svo hittumst við reglu- lega í gegnum gamla vinahópinn.“ Límið er í vinskapnum Gamli vinahópurinn úr Kópavogi hefur alla tíð haldið hópinn og segja vinirnir flesta vera komna aftur í gamla hverfið eða þá á leiðinni þangað. „Það myndaðist þarna sterkur vinskapur sem hefur hald- ist allar götur síðan,“ segir Hannes. „Þrátt fyrir árin sem hafa liðið þá er þessi vinskapur ennþá sterkari en allur annar sem hefur myndast á leiðinni, þetta er í raun alveg ótrú- legur hópur. Um daginn lést einn okkar og þá fann maður fyrir því hvað þetta er magnað. Við höfum allir farið í ólíkar áttir í námi og starfi og sumir búið erlendis, eins og gengur og gerist, en alltaf höf- um við samt leitað tilbaka í þenn- an hóp. Sérstaklega ef einn okkar lendir í einhverju, flytur, giftir sig eða skilur, þá er hópurinn alltaf mættur.“ „Við fórum alltaf reglulega í bumbubolta þar sem við hittumst eftir kvöldmat og spiluðum bolta á völlunum hér í hverfinu,“ seg- ir Steini en þeir Hannes eru báð- ir komnir aftur í Kópavoginn eftir stutta dvöl í höfuðborginni. „Við fórum líka allir saman til Berlínar í fyrra þegar við urðum fertugir og það var bara frábært. Við erum auðvitað mjög ólíkir og á allskonar stöðum í lífinu en það er alltaf af- slappað að vera saman. Þegar mað- ur verður eldri þá kemst maður að því að þetta er ekkert sjálfsagt.“ „Það er ákveðið traust til staðar sem skiptir miklu máli en það sem skiptir kannski mestu máli er að all- ir geta verið þeir sjálfir innan hóps- ins,“ segir Hannes. „Menn þurfa oft að leika allskonar skjöldum í lífi og starfi, sumir eru kennarar, læknar eða í opinberum störfum, og þess vegna er svo mikilvægt að geta komið í hópinn og bara látið eins og fávitar. Við hittumst mjög reglulega og erum alltaf að gera eitt- hvað, það þarf ekki að vera meira en að bara grilla saman. Maður hef- ur gert fullt af hlutum í gegnum tíð- ina og kynnst fullt af fólki en límið er þarna, í þessum vinskap.“ | hh Traustið skiptir máli „Ef einn okkar lendir í einhverju eða flytur, giftir sig eða skilur, þá er hópurinn alltaf mættur.“ Sögur af vináttu Steinar Valdimar Pálsson og Hannes Friðbjarnarson hafa fylgst að frá því áður en þeir fóru að ganga og eru hluti af stórum vinahópi sem hittist reglulega. Mynd | Hari BJÖRK DIGITAL STAFRÆNN HEIMUR BJARKAR 02.11–30.12 MIÐASALA Á HARPA.IS Styrktaraðilar sýningar í Hörpu

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.