Fréttatíminn - 19.11.2016, Side 17
| 17FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 19. nóvember 2016
Guðjón Árnason og Kerstin Andersson
heima í eldhúsinu í Lækjarbotnum.
Andrea Henk og Sigfús Guðfinnson í
Bakaríinu í Grímsbæ.
Kjarninn í hverjum og einum
Sólheimar í Grímsnesi og Ásgarður, trésmíðaverkstæðið fyrir
fatlaða, sækja fyrirmyndir sínar til Järna . En Rudolf Steiner-
fræðin hverfast mikið um tækifæri og virðingu fyrir fötluðm
einstaklingum. Stefnan gengur út frá því að það búi heilbrigð-
ur kjarni í hverjum einstaklingi en fólk fæðist með misjafnar
forsendur inn í mismunandi aðstæður, að fötlun eigi ekki að
koma í veg fyrir að hver einstaklingur eigi rétt á því að þrosk-
ast út frá sínum forsendum.
Ásgarður var upphaflega stofnaður í Lækjarbotnum undir
styrkri hendi Þórs Inga. Trésmíðaverkstæðið starfaði í gömlu
sjoppunni sem var flutt af Suðurgötu upp í Lækjarbotna og
stóð þétt upp við Waldorfskólann. Það var til dæmis liður
í starfinu við Lækjarbotna að unga fólkið í Ásgarði kenndi
krökkunum í Waldorfskólanum Boccia. Þetta eru í minnum
margra fyrrverandi nemenda skólans mjög skemmtilegar og
eftirminnilegar stundir. Það var því mikil sorg þegar Ásgarður
brann og starfsemin flutti sig um set. Þór Ingi flutti til Järna og
starfar í dag við svipaðan vinnustað.
Í Lækjarbotnum er tálgunarkofi þar sem krakkarnir tálga spýtur og vinna með við.
fengu að vinna með efnin og blanda
þeim saman og kynnast þeim á
meðan að ég lærði allt um efnin í
bók. Þannig var nálgunin svo gjör-
ólík hjá okkur á sama námsefni.“
Stina kenndi efnafræði við skól-
ann í Lækjarbotnum og segir efna-
fræðiheiminn vera undur sem þú
verður að kynnast í raunheimum.
„Það er allt annað fyrir börnin að
gera tilraunir sjálf þar sem þau upp-
lifa beint hvernig til dæmis sýrur
og basar virka heldur en að lesa
um það í bók.“ Það er greinilegt að
Stína er með ástríðu fyrir kennslu-
efni sínu þegar hún upptendruð
segir frá efnum sem eru baneitruð
í hvort í sínu lagi en eru síðan skað-
laus þegar þeim er blandað saman.
kynslóðinni talaði um og dreymdi
um að gera hafi verið framkvæmt
undir formerkjum mannspekinnar.
Kolféll fyrir Järna
„Ég kolféll fyrir Järna eins og fleiri
Íslendingar, en í lok níunda ára-
tugarsins taldi Íslendingafélagið í
bænum um 100 Íslendinga. Í bænum
og í nágrenninu er fjölbreytt starf
sem hefur byggst upp undir áhrifum
frá mannspeki Rudolf Steiner, meðal
annars þrír Waldorfskólar, heimili,
skólar og vinnustaðir fyrir fatlaða,
sjúkrahús, lífrænn búskapur og fjöl-
margt annað. Í Järna er stórt lífrænt
bakarí og mylla þar sem ég starfaði
síðasta árið mitt þar. Eftir Waldorf
í Lækjarbotnum fóru börnin mín í
Waldorf-framhaldsskóla til Järna og
kláruðu nám. Þau voru ánægð þar
en höfðu áhyggjur af að vera kannski
ekki nógu vel undirbúin fyrir fram-
haldsnám. Samt hafa þau spjarað sig
mjög vel og almennt er það svo, sam-
kvæmt fjölmörgum rannsóknum, að
fyrrum Waldorfnemendur standa
sig að jafnaði ekki síður en aðrir í
námi og starfi.“
Andrea og Sigfús segjast vera voða
lítið stjórnsöm og ekki hafa stjórnast
í lífi barna sinna. „Þau fara alveg sína
leið í lífinu, þau eru háskólagengin
og mikið íþróttafólk sem við erum
hvorugt.“
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol
la
k
aff
itá
R
f
rá
bý
li
í b
ol
la
ka
ff
itá
r
f
rá
býli
í boll
a
hátíðí bæ