Fréttatíminn - 19.11.2016, Qupperneq 40
Alla laugardaga
Aldrei nóg af Eddu
RÚV sýnir í kvöld klukkan 19.45 annan þáttinn af
fjórum um feril Eddu Björgvinsdóttur. Fyrsti þátturinn
var góður og það er nóg eftir til að hlæja að.
Japanir veðja á Ragnar
Ítalskur stjörnu
kokkur í heimsókn
Ef þú hefur hugsað þér að fara
út að borða í kvöld gætirðu ef-
laust gert margt vitlausara en að
fara á Kolabrautina í Hörpu. Þar
er við stjórnvölinn ítalski stjörnu-
kokkurinn Alessio Cera sem reið-
ir fram afar girnilegan matseðil.
Cera er gestakokkur um helgina,
föstudags- og laugardagskvöld.
Veitingastaður Alessio Cera er á
hinni rómuðu vínekru Poderi dal
Nespoli.
Á matseðlinum á Kolabrautinni er
túlkun Alessio Cera á Baccalá Man-
tecato; pönnusteiktur kræklingur
með Hendricks gini, steinselju og
stökku brauði; tagliatelle Paglia
e Fieno með saltaðri og þurrkaðri
svínakinn og heimareyktum ricotta;
hægelduð nautalund vafin í reykta
gæsabringu, grillaðar gulrætur og
rauðlaukur eldaður í sangiovese; og
Trebbiano perur með karamellu og
vanillu- og súkkulaðikremi.
Verð er 9.500 krónur á mann.
Laufabrauðsskurður
í Viðey
Sunnudaginn 20. nóvember á
milli 13.30 til 16.30 mun Margrét
Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórn-
arskólans í Reykjavík, kenna gest-
um í Viðey kúnstina að skera út
laufabrauð. Útskorin brauðin verða
svo steikt í eldhúsinu og allir fara
heim með gómsæt listaverk í öskj-
um. Vanir útskurðarmeistarar eru
hvattir til að mæta og miðla reynslu
sinni til hinna óreyndu. Tíu laufa-
brauð í öskju kosta 2.000 krónur.
Gott er að taka með sér laufa-
brauðsjárn og hnífa til útskurðar
en einhver áhöld verða á staðnum.
Jólasveinar kíkja við og hægt verð-
ur að kaupa veitingar við hæfi. Til-
valið fyrir fjölskylduna að gera sér
glaðan dag saman og taka forskot
á jólastemninguna.
Skráning fer fram í gegnum netfangið
videyjarstofa@videyjarstofa.is
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol
la
k
aff
itá
R
f
rá
bý
li
í b
ol
la
ka
ff
itá
r
f
rá
býli
í boll
a
hátíðí bæ
Japanska risaútgáfan Shogakukan
hefur tryggt sér réttinn á tveimur
glæpasögum Ragnars Jónasson-
ar til viðbótar við Snjóblindu sem
kemur út nú í janúar þar í landi.
Um er að ræða Myrknætti og
Náttblindu sem var einmitt
valin besta þýdda glæpasagan
í Bretlandi árið 2015.
Bækur Ragnars koma nú út víða
um lönd og hafa hlotið góðar við-
tökur. Snjóblinda var til dæmis
fyrsta íslenska skáldsagan sem
náði toppsæti á metsölulista Am-
azon í Bretlandi. Þá er bókin vænt-
anleg í Bandaríkjunum í upphafi
árs 2017.
Á dögunum kom út ný glæpa-
saga Ragnars, Drungi, sem er
önnur bók í nýrri seríu hans sem
risaforlagið Penguin hefur keypt
réttinn á fyrir breska samveldið.
Þar er lögreglukonan Hulda í for-
grunni en hún lofaði mjög góðu í
fyrstu bókinni. Þá eru framleið-
endur Óskarsverðlaunamyndar-
innar um Amy Winehouse með
í undirbúningi þáttaröð eftir
Siglufjarðarsyrpu Ragnars sem
hófst með Snjóblindu.
Vinsæll víða um heim Ragnar
Jónasson nýtur sívaxandi vinsælda
sem spennusagnahöfundur úti í
heimi. Mynd | Hari