Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 26.11.2016, Side 20

Fréttatíminn - 26.11.2016, Side 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 26. nóvember 2016 Á Hrafnistu í Hafnarfirði taka bæði íbúar og aðrir bæjarbúar, sem koma þangað í dagvistun, þátt í skipulögðu íþróttastarfi sem þar fer fram. Íþróttakennarar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar og annað aðstoðar- fólk sinnir þjálfuninni sem að sögn Helenu Jónasdóttur íþróttakennara er ekkert „dúllerí“ þrátt fyrir háan aldur iðkenda. Þeir eru á aldrinum 70-103 ára. „Það er þvílíkur munur á því fólki sem stundar leikfimina með okk- ur. Það er magnað að fylgjast með því. Margir sem koma í dagvistun hafa kannski verið heima lengi og ekki haft mikið að gera. Þeir hafa hreyft sig lítið, svo kemur það hing- að í starfið til okkar þrisvar í viku, er innan um annað fólk, ræðir mál- in og æfir sig á fjölbreyttan hátt. Það styrkist mjög fljótt, jafnvægi eykst, fólk slasast síður, það yngist og hressist og getur þar af leiðandi búið lengur heima hjá sér,“ segir Helena sem sannarlega hefur séð jákvæða breytingu á líðan fólks á þeim 15 árum sem hún hefur sinnt starfi sínu á Hrafnistu. „Þrátt fyrir að hér búi veikt fólk, eru allir svo hressir að biðlistarnir til að kom- ast að hér á Hrafnistu bara lengj- ast og lengjast,“ segir Helena glöð í bragði. Stuð í sundi Íþróttastarfið fer meðal annars fram í vel útbúnum tækjasal og í heitri sundlaug auk þess sem úti- ganga og pútt er stundað yfir sum- artímann. „Sundlaugin er góð til að teygja á fólki og aðstoða þá sem eru vatnshræddir. Margir hafa ekki farið í sund síðan þeir voru ósynd börn. Ég fer ofan í með þeim og geri æfingar og aðstoða. Svo er ég með vatnsleikfimi 4 sinnum í viku. Um jólin er svo sérstakt sérrísund þar sem við fáum einhverja fræga til að syngja á meðan vatnsleikfimin er í gangi. Þá flýtur sérrí og konfekt um á bökkum í lauginni og það er fullt af áhorfendum og allir dansa og syngja. Raggi Bjarna og Þor geir Ást- valds koma fyrir þessi jól og það er mikill spenningur fyrir því og búist við um 100 manns í sundlaugina.“ Helena ásamt íbúum á Hrafnistu. Myndir | Rut Engin „geymsla“ fyrir eldra fólk Biðlistar á Hrafnistu í Hafnarfirði lengjast og lengjast því fólkið sem þar býr stundar margskonar líkamsrækt og lifir lengur fyrir vikið. Helena Jónasdóttir íþróttakennari segir sérrísundið um jólin og hjólastólaballið sérstaklega vinsælt. Erla Sigurlaug Sigurðardóttir ritstjórn@frettatiminn.is Í hverri viku kemur zumba danskennari sem kennir „brjálaðan dans“ að mati fólksins á Hrafnistu sem þó fyllir ávallt tímann. Matartíminn Allt um hátíðamatinn auglysingar@frettatiminn.is | gt@frettatiminn.is | 531 3300 Matartíminn Þann 17. desember

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.