Fréttatíminn - 26.11.2016, Blaðsíða 52
52 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 26. nóvember 2016
Snjallsímar hafa stóraukið ferð-
ir okkar um samfélagsmiðla.
Og með stóraukinni viðveru
á stöðum eins og facebook,
twitter eða instagram er ný
tegund af meðferð komin fram
á sjónarsviðið, meðferð við
samfélagsmiðlafíkn.
Hver kannast ekki við að kíkja í
símann stuttu eftir að vekjara-
klukkan hringir til að missa nú
örugglega ekki af neinu sem er
að gerast í heiminum, eða þín-
um heimi réttara sagt. Hvað eru
vinirnir að gera, borða eða segja
síðan í gærkvöldi og hvað áttu að
læka í morgunsárið. Flest get-
um við viðurkennt að þetta tekur
sífellt meiri tíma frá okkur, en
erum við háð?
Það er svo sem löngu vitað að
samfélagsmiðlar hafa breytt líf-
erni okkar til frambúðar en þeir
eru víst farnir að breyta lífi okkar
svo mikið að fjöldi fólks í Banda-
ríkjunum, þar sem facebook-notk-
un er með þeim hærri í heimin-
um, er farið að leita sér hjálpar.
Meðferðarstöðvar poppa upp um
allt land og aðallega er það fólk
á aldrinum 18—28 ára sem sækir
sér hjálpar, karlar í meira mæli
en konur. Meðferðin tekur oftast
um 45 daga og fer oftast fram
uppi í sveit og að sjálfsögðu er
engin nettenging á svæðinu. Enn
er engin meðferð við samfélags-
miðlafíkn í boði hér á landi en
áhugasamir geta byrjað á því að
slökkva á nettengingunni heima
hjá sér og fengið sér gamlan
takkasíma í stað snjallsíma. Ein
leiðin til að vita hversu langt mað-
ur er leiddur í samfélagsmiðlafíkn
er að spyrja sig hvort það séu nei-
kvæðar hliðar á netnotkuninni,
og ef svo er, heldur maður samt
áfram? |hh
Meðferð við samfélagsmiðlum
Enn er engin meðferð við samfélagsmiðlafíkn í boði hér á landi en áhugasamir
geta byrjað á því að slökkva á nettengingunni heima hjá sér og fengið sér gamlan
takkasíma í stað snjallsíma.
„Ég fann fyrir pressu þegar
fréttir bárust af Guðna með
buffið og hugsaði með mér; ég
verð að gera eitthvað gott. Birtist
heilsíðuviðtal við konu sem
elskar buff og opna um buff í
Mogganum,“ segir Anna Margrét
Ólafsdóttir, myndlistarnemi við
Listaháskóli Íslands, um loka-
verkefnið sem hún byrjaði á rétt
fyrir stóra buffmálið.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Þetta er lokaverkefni annar-innar. Kennararnir sögðu að við ættum að skrifa stuttan texta um það sem við vildum gera og tóku
kókómjólk sem dæmi en þá minnt-
ist ég þess þegar ég
fór í Húsdýragarðinn
með litlu systur minni
fyrir tveimur árum og
var alls ekki skemmt.
Við mér blöstu Cocoa
Puffs-lestin og börn
með buff á höfðinu
merktum fyrirtækj-
um. Það viknaði reiði
innra með mér sem
hefur setið í mér síð-
an: Buff! Ég hata buff.
Ég verð að gera ver-
kefni til að losna við
reiðina.“
„Ég byrjaði að
safna buffum frá fyr-
irtækjum, gefins buff frá Eimskip og
10/11 og á meðan á söfnuninni stóð
mætti forsetinn með buffið og allt
sprakk í loft upp. Var sem betur fer
með góðgerðarbuff frá Alzheimer-
-samtökunum en ekki frá fyrirtæki.
Ég keypti auðvitað eitt. Svo hringdi
ég í konuna sem elskar buff og við
hittumst í kaffi og áttum gott spjall.
Eftir það hófust tilraunirnar. Setti
buff utan um striga. Ógeðslega ljótt.
Prófaði síðan að klæða mig í það,
taka myndir þar sem ég dansaði og
pósaði. En það var ekki fyrr en ég
sá myndirnar sem ég tengdi þær við
eitthvað sögulegt, klassík og tísku.
Grace Jones eða egypsku drottn-
inguna Nefertiti. Myndirnar eru
kunnuglegar.“
„Og nú stilli ég
þessu upp. „Mona
Lisa – style“. Set í
ramma og upp á
vegg. Er alveg búin
að taka buffið í sátt.
Búin að vera með
það einhversstað-
ar á líkamanum alla
vikuna. Það eina sem
mér líkar ekki er þetta
„branding“ fyrirtækja
sem kristallast þegar
maður fer í Húsdýra-
garðinn og horfir
á saklaus, bláeygð
börnin.“
Var á undan
Guðna
með buffið
Svipar til egypsku drottningarinnar Nefertiti.
Síðasti McDonalds borgarinn og
algengasti afmælisdagur Íslendinga
Nú er nýkomin út
bókin Fánýtur þjóð-
legur fróðleikur. Bókin
inniheldur staðreyndir
fyrir alla landsmenn
sem gæti komið sér
vel í komandi jólaboð-
um. Fréttatíminn tók
saman fimm skemmti-
legar staðreyndir úr
bókinni:
• Síðasti íslenski McDonalds
hamborgarinn er geymd-
ur á Bus Hotel Reykjavík.
Þjóðminjasafnið afþakkaði
að geyma hann.
• Í sjö ár, frá
1983-1990,
fæddist engin
stelpa í Gríms-
ey, bara strák-
ar.
• Til eru 18 ís-
lensk manna-
nöfn sem enda
á -rr, en þau
eru; Almarr,
Annarr, Fjalarr, Heiðarr,
Hnikarr, Ísarr, Knörr,
Ormarr, Óttarr, Snævarr,
Steinarr, Styrr, Sævarr, Vest-
arr, Ýrr, Þórr, Ævarr, Örvarr.
Öll nöfnin eru einnig til með
einu r-i, nema Knörr.
• Andrés Önd
kom fyrst út á ís-
lensku árið 1983.
Áður hafði hann
aðeins verið í boði
á dönsku.
• Mesti hiti
sem mælst hefur á
landinu eru 30,5
gráður. Það var 22.
júní árið 1939.
• 27. september er algengasti
afmælisdagur íslendinga.
„Nú ætla ég að stilla þessu upp.
„Mona Lisa – style““