Fréttatíminn - 26.11.2016, Blaðsíða 58
2 | helgin. LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2016fjörið.
Gefur 300 börnum
í Suður-Afríku að borða
Hinn 16 ára gamli Benjamín Hugi borgar fyrir súpueldhús í fátækra
hverfi í SuðurAfríku með aðstoð frá vinum og vandamönnum.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Hinn sextán ára gamli Benjamín Hugi Guð-bergsson hefur síð-ustu fimm mánuðina haldið lífi í 300 börn-
um í Suður-Afríku með því að fjár-
magna súpueldhús þar sem þau fá
að borða að minnsta kosti þrisvar
í viku.
Hafði gefist upp á rekstrinum
Þetta hófst allt á því að Benjamín
fór til Suður-Afríku að taka þátt í
sjálfboðastarfi á vegum Norður-
suður samtakanna, sem rekin eru
af íslenskri konu, Lilju Marteins-
dóttur og manni hennar, Richard
Truter, skammt frá Höfðaborg.
Um var að ræða fimm vikna pró-
gramm þar sem hann sinnti ýmis-
konar sjálfboðastarfi, ásamt fleiri
ungmennum. Á þeim tíma komst
hann í kynni við konu í einu fá-
tækrahverfinu sem hafði haldið úti
súpueldhúsi um árabil. Hún hafði
hins vegar gefist upp vegna þess að
hún fékk enga fjárhagsaðstoð, og
verkefnið varð henni því ofviða.
Leggur inn um hver mánaða-
mót
„Þegar ég kom út þá datt mér í hug
að opna snapchat til að leyfa fólki
að fylgjast með því sem ég var að
gera. Þegar ég frétti af súpueldhús-
inu þá ákvað ég að það væri eitt-
hvað sem ég vildi taka að mér, því
ég vissi að ég gæti það. Það er svo
ótrúlega gefandi að geta hjálpað,“
segir Benjamín, en hann sýndi frá
súpueldhúsinu á snapchat og gaf
upp reikningsupplýsingar svo fólk
gæti styrkt verkefnið. „Eftir að ég
kom heim hef ég sjálfur lagt pen-
inga inn á reikninginn mánaðar-
lega. Foreldrar mínir hafa líka lagt
inn ásamt fleirum, þar á meðal for-
eldar vina minna. Ég ætla að reyna
allt sem ég get til að halda þessu
gangandi.“
Ætlar að stækka eldhúsið
Benjamín hyggst fara aftur til Suð-
ur-Afríku næsta sumar og halda
áfram að sinna sjálfboðastörfum.
„Mjög góður vinur minn ætlar með
mér út. Hann og foreldrar hans
eru einmitt mjög dugleg að leggja
inn peninga fyrir súpueldhúsinu.
Planið er að stækka súpueldhús-
ið á næsta ári, kaupa betri tæki og
stærri potta. Það þarf töluvert fjár-
magn í það,“ segir Benjamín sem
viðurkennir að dvölin í Suður-Afr-
íku hafi breytt sér ansi mikið.
Breytti sýn hans á lífið
„Þetta var yndislegt og breytti því
hvernig ég hugsa. Þetta breytti sýn
minni á lífið og það hefur hjálp-
að mér mikið í öðru sem ég er að
gera núna. Ég kann miklu betur
að meta það sem ég hef.“ Benja-
mín segir mjög hollt að taka þátt
í svona gefandi sjálfboðastarfi og
mælir með að allir prófi.
En hvernig kom það til að hann
ákvað að fara til Suður-Afríku?
„Báðir foreldrar mínir höfðu dval-
ið í Afríku og þau sáu auglýsingu
frá Norðursuður á facebook og
spurðu hvort ég vildi fara. Þannig
byrjaði þetta. Og ég byrjaði strax
að safna fyrir ferðinni. Mamma og
pabbi hjálpuðu mér reyndar smá í
lokin,“ segir þessi ungi og hjarta-
hlýi maður sem á framtíðina fyrir
sér.
Hægt er að fylgjast með á
snapchat: Benjamin1809
Viltu leggja Benjamín
lið?
Lilja Ósk Marteinsdóttir, um-
sjónarmaður Norðursuður, sér til
þess að hver einasta króna sem
safnast skili sér í súpueldhúsið, en
reikningurinn er í hennar nafni:
0140-26-014958
kt: 1007825459
Hægt er að nálgast frekari upplýs-
ingar um samtökin á facebook og
heimasíðunni nordursudur.org.
Með góðum vinum Benja
mín segir það hafa breytt
sýn sinni á lífið að taka þátt
í sjálfboðastarfi í SuðurAfr
íku. Hann kann betur að
meta það sem hann hefur.
Jólaljósin tendruð á Austurvelli
Ljósin á Oslóartrénu á Austurvelli
verða tendruð sunnudaginn 27.
nóvember, þann fyrsta í aðventu.
Jólatréð er nú þegar komið á sinn
stað, 12 metra hátt íslenskt gren-
itré úr norska lundinum í Heið-
mörk.
Dagskráin hefst klukkan 14 í
Ráðhúsi Reykjavíkur á frumsýn-
ingu norsku jólakvikmyndarinnar
Sólona og Lúðvík: Jól í Furufirði,
sem Oslóarborg færir borginni að
gjöf. Kvikmyndin hefur verið tal-
sett á íslensku og verður sýnd
í Ráðhúsinu á sunnudögum
klukkan 14 á aðventunni. Að-
gangur er ókeypis.
Klukkan 16 mun Erik
Lunde, borgarfulltrúi
Oslóarborgar, afhenda
tréð formlega á Austur-
velli. S. Björn Blöndal, formaður
borgarráðs, veitir gjöfinni viðtöku
fyrir hönd borgarinnar og flytur
þakkarávarp. Að því loknu mun
Völundur Ingi Steen Bjarnason,
7 ára norsk-íslenskur drengur,
kveikja á jólaljósunum.
Salka Sól og Valdimar syngja
aðventuna inn ásamt einvalaliði
tónlistarfólks. Lúðrasveit Reykja-
víkur flytur nokkur vel valin lög
og jólasveinar skemmta börnum
og fullorðnum.
Dagskrá hátíðarinnar verður
túlkuð á táknmáli, heitt kakó
og kaffi mun verma kalda
kroppa og bílastæðahúsið
í Ráðhúsinu verður opið
til að auðvelda gestum
aðgengi að hátíðarsvæð-
inu.
Brew Dog á besta jólabjórinn
Besti erlendi jólabjórinn í ár er frá
skoska brugghúsinu Brew Dog. Um
er að ræða Hoppy Christmas sem
er 7.2% IPA-bjór.
Venju samkvæmt efndi Frétta-
tíminn til smakks á jólabjórum.
Í síðustu viku birtum við niður-
stöður úr íslenska smakkinu, en
þar bar 24 frá Ölvisholti sigur úr
býtum, og nú er komið að erlenda
smakkinu. Framboð á jólabjór-
um er fyrir löngu orðið slíkt að
nauðsynlegt er að skipta þessu í
tvennt. Alls voru smakkaðir 15 er-
lendir jólabjórar að þessu sinni.
Fjórir sérfræðingar smökkuðu
bjórana og þeir fimm sem fengu
hæstu einkunnina eiga það sam-
merkt að vera mjög ólíkir hefð-
bundnum íslenskum jólabjórum.
Tveir eru ferskir IPA-bjórar, einn
er súrbjór, einn af Saison-gerð
og einn er blanda af rauðöli og
belgískum wit-bjór.
Ítarlega er fjallað um jólabjóra-
smakkið á vef Fréttatímans.
5 bestu
erlendu
jólabjórarnir
1. Brew Dog
Hoppy
Christmas
2. To Øl Santa
Gose
3. Mikkeller
Red White
Christmas
4. Mikkeller
Hoppy Lovin’
Christmas
5. To Øl
Snowball
Saison
Mathöllin opnar í vor
Flóknara úrlausnarefni fyrir borgina en að
standendur gerðu ráð fyrir.
„Það hefur raunar gengið ágæt-
lega nema þetta hefur verið að
velkjast aðeins um í borgarkerf-
inu, svona í stuttu máli,“ seg-
ir Haukur Már Gestsson, annar
framkvæmdastjóri Mathallarinnar
við Hlemm. Stefnt var að því að
Mathöllin opnaði dyr sínar í des-
ember en þau plön hafa farið út
um þúfur. Haukur lætur þó engan
bilbug á sér finna og stefnt er að
opnun með vorinu. „Við erum ekki
ennþá komin með byggingarleyfi
en það er búið að hreinsa allt út úr
húsinu. Það er ekki hægt að hefja
neinar almennilegar framkvæmdir
fyrr en leyfin fást,“ segir Hauk-
ur en heilbrigðiseftirlitið gerði
athugasemdir við framkvæmdirn-
ar og nú síðast snerist þetta um
skipulagsmál. Línur eru nú orðnar
nokkuð skýrar með hvaða staðir
munu vera í Mathöllinni. Áður
hafði verið upplýst um Skál, kokk-
teila og bjórbar Gísla Matthíasar
og félaga, grænmetisverslun með
íslensku grænmeti, kryddjurtum
og berjum, Urban pasta, ítalsk-
an bístró þar sem pastað er gert á
staðnum og Te og kaffi micro roast.
Haukur upplýsir nú um tvo staði til
viðbótar; Ísleif heppna, ísbúð þar
sem ísinn er frystur á nokkrum
sekúndum með nítrati og Taco
Santo, pínulítinn tacostað Juan
Carlos og fjölskyldu þar sem verð-
ur ekta mexíkóskt taco og annar
mexíkóskur matur.
Hlemmur Búið er að hreinsa allt út og nú bíða aðstandendur þess að geta hafið framkvæmdir.
Rapparinn og
stjórnmálamaðurinn
Rapparinn, rithöfundurinn og
ljóðskáldið Atli Sigþórsson, bet-
ur þekktur sem Kött Grá Pjé, og
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar og arkitekt, eru
náskyldir. Hrönn Einarsdóttir,
móðir Atla, og Logi eru systkini.
Tónlistin virðist vera þeim frænd-
um í blóð borin því Logi spilaði og
söng með hinum goðsagnakenndu
Skriðjöklum á
árum áður.
Listrænir
fríðleiks-
frændur að
norðan.
Þeir eru frændur