Fréttatíminn - 26.11.2016, Síða 62
6 | helgin. LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2016fjörið.
Uppskrift að trölladeigi
300 gr fínt borðsalt
300 gr hveiti
1 msk. matarolía
matarlitur
Hrærið saman salti, hveiti og
matarolíu í skál.
Hrærið vatninu saman við í smá
skömmtum þar til deigið er orðið
að stórri kúlu.
Hnoðið deigið upp
með höndunum
þar til það er orðið
mjúkt og teygjan-
legt.
Ekki er nauðsynlegt að setja mat-
arlit út í deigið frekar en fólk vill.
Það er líka hægt að mála og lakka
trölladeigið eftir að það hefur ver-
ið bakað.
Hægt er að geyma deigið í plast-
poka í um viku og helst það þá
mjúkt eins og hver annar leir.
Deigið er bakað við 175°c í 1 ½
klukkutíma. Stundum þarf lengri
tíma, það fer eftir þykkt hlutarins
sem verið er að baka.
Jólagjafir úr trölladeigi
Það er gaman að föndra persónulegar jólagjafir.
Trölladeig er frekar auðvelt að
búa til og gaman að föndra úr.
Það má jafnvel útbúa fallegar
jólagjafir úr deiginu, enda alltaf
langskemmtilegast að gefa
persónulegar gjafir. Þá er gam-
an að leyfa litlum fingrum að
spreyta sig og gefa hugmynda-
fluginu lausan tauminn.
Laxinn sem slapp kveikti veiðiglampann í augum Daggar Hjaltalín, athafna-konu og bókaútgefanda, sem segir að nú verði
ekki aftur snúið. Veiðina hefur hún
stundað í nokkur ár en það er fyrst
og fremst félagsskapurinn og útiver-
an sem togar í hana og næsta sumar
skipuleggur hún árlegt kvennaholl
þar sem færri komast að en vilja.
Við árbakkann slakar hún á og þar
hefur hún fengið hugmyndir að
veiðibókum sem hún lofar að muni
líta dagsins ljós einn daginn. Hún
gæti hugsað sér fallega netta vöðlu-
skó í jólagjöf og fullt box af rauðum
Frances-flugum.
„Ég prófaði fyrst laxveiði í flugu-
veiðiskóla sem maðurinn minn var
með en hann er forfallinn veiðimað-
ur. Ég kveikti strax á félagsskapnum
og útiverunni en veiðin sjálf hefur
verið aukaatriði þangað til í fyrra-
sumar þegar ég lenti í því að missa
mjög stóran fisk og það verður víst
ekki aftur snúið þegar veiðiglamp-
inn er kominn i augun. Ég prófaði
að veiða á þessum stað þar sem ég
missti laxinn aftur og aftur í sumar
en hann sýndi sig ekki aftur en ég
veit að ég á eftir að ná honum einn
góðan veðurdag,“ segir Dögg. Þrátt
fyrir að þetta hafi loksins kveikt á
veiðidellunni þá er það ennþá fé-
lagsskapurinn sem togar í hana.
„Í veiðinni eru nokkur holl sem
hafa fest sig í sessi. Ég fer í tveggja
daga veiði með hinu vel skipaða
veiðifélagi Börmunum þar sem
færri komast að en vilja. Svo erum
við með árlegt hjónaholl í Langá og
Dögg vill
fá fullt box
af rauðum
Frances-flug-
um í jólagjöf.
Mynd | Hari
ÓSKALISTI
VEIÐIMANNSINS
Svartir nettir vöðluskór
Sá nefnilega í fyrsta sinn flotta
vöðluskó við veiðar í Norðurá í
fyrrasumar og get ekki hætt að
hugsa um þá.
Nestiskarfa
Ég fékk gefins hina fullkomnu
nestiskörfu fyrir veiðina sem er
græjuð með kampavínsglösum,
diskum og hnífapörum þannig að
það er hægt að halda klassanum
þrátt fyrir að vera á árbakkan-
um. Varð að leyfa þessu að fylgja
með því þetta væri algjörlega efst
á óskalistnum mínum ef ég ætti
þetta ekki.
Flugubox fullt af
rauðum Frances
því ég hef bara veitt á þá flugu
og þá er best að halda sig við
hana.
Veiðivesti
Ég nota alltaf veiðivesti sem
dóttir mín fékk gefins þegar hún
var 10 ára en ég hef ekki tímt að
kaupa slíkt fyrir mig. Það er nefni-
lega algjör mýta að það þurfi að
eiga einhverjar dýrar græjur til að
geta farið í veiði, bæði er hægt
að leigja og svo dugar oft að nota
eitthvað sem til er á heimilinu.
Þolinmæðin
stærsta áskorunin
Dögg Hjaltalín bókaútgefandi er smám saman að verða
forfallinn veiðimaður og sá áhugi skilar sér í jólapakkana í ár,
fái hún einhverju um það ráðið.
einnig erum við leigutakar á Efri
Haukadalsá þannig að það verður
farið þangað og veitt vel.“
Skotveiðin næst á dagskrá
„Mér finnst frábært að veiða því þá
skipti ég algjörlega um gír og fer í
burtu frá öllum daglegum verkefn-
um og það er ótrúlegt hvað nátt-
úran og árbakkinn ná að tæma
hugann. Í veiði reynir mest á þol-
inmæðina og það er kannski mesta
áskorunin.“ Aðspurð segist hún
ekki vera mikill græjunörd í veiði-
nni en sé samt búin að átta sig á
hvaða græjur hún vill nota og hvaða
flugur virka best.
„Næsta skref er að fara í skot-
veiðina og þá vantar mig nánast
allt. Ég er byrjuð að lesa fyrir skot-
vopnaleyfið en ég hef ekki enn
fundið tíma til að sækja sjálft nám-
skeiðið. Þá verður sko eldað upp úr
Stóru bókinni um villibráð.“
Hugmyndir að veiðibókum
„Í fyrstu veiðiferðinni minni komu
upp tvær hugmyndir að veiðibók-
um sem enn hafa ekki verið gefnar
út þannig að kannski verður af því
núna þegar ég er alkomin í bóka-
útgáfu. Við hjónin erum svo með
enn fleiri veiðibækur á hugmynda-
stigi þannig að ég lofa blómlegri út-
gáfu veiðibóka á næstu misserum.
Mér finnst veiði og bókaútgáfa fara
vel saman því að árbakkanum gefst
góður tími til að velta hugmynd-
um fyrir sér og útfæra þær og svo
vill svo skemmtilega til að vertíðin
í bókaútgáfunni hittir ekki á veiði-
tímabil.“
LAUGAVEGI | SMÁRALIND | KRINGLUNNI | WORLD CLASS LAUGUM | LEIFSSTÖÐ
VIÐ HÖFUM OPNAÐ NÝJAN
STAÐ Á LAUGAVEGI. KÍKTU
VIÐ Í ÓMÓTSTÆÐILEGAN
DJÚS, SAMLOKU OG SHAKE.
ER LOKSINS
MÆTTUR
NIÐUR Í BÆ!
Joe
P.S. VIÐ GERUM FÁRÁNLEGA GOTT KAFFI LÍKA!
Sjáumst á JOE & THE JUICE.