Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 1
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
89. tölublað
7. árgangur
Fimmtudagur 15.12.2016
Mynd | Hari
Ahmadi-hjónin
eignuðust son
Lítill drengur fæddist Ahmadi
fjölskyldunni í fyrradag á
Landspítalanum. Foreldrarnir
hafa gefið honum nafn og heitir
sá litli Mikael.
Ahmadi fjölskyldan flúði hing-
að til lands fyrir ári síðan eftir
að hafa orðið fyrir lífshættu-
legri árás talíbana í heimalandi
sínu. Dóttir hjónanna var lamin
aftan á höfuðið með byssuskafti
og var í dái í rúman mánuð.
Yngri sonur hjónanna missti
málið eftir að hafa orðið vitni að
árásinni.
Fjölskyldan sótti um hæli hér
á landi en var neitað á grund-
velli Dyflinnareglugerðarinnar.
Þau höfðu átt viðkomu í Þýska-
landi á leið sinni hingað til lands
og verða því send aftur þangað.
Nýlega gerði Evrópusam-
bandið samning við Afganistan
um að senda afganska flótta-
menn aftur til baka. Óttast fjöl-
skyldan því að þau verði send
aftur til Afganistan þar sem
þeirra bíður óvissa og möguleg
hætta.
Fyrir skömmu bað lögmaður
fjölskyldunnar hins vegar um að
málið yrði endurupptekið. | bg
Leiguverð hækkar um meira en
tíu þúsund krónur hjá rúmlega
70 leigutökum hjá Félagsbústöð-
um vegna breytinga á leigukerfi
Félagsbústaða, sem er félagslegt
húsnæðisúrræði á vegum Reykja-
víkurborgar. Ástæðan er
sívaxandi hækkun á
fasteignamarkaði.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Velferðarráð Reykjavíkur-
borgar samþykkti í byrjun
desember breytingar á leig-
ukerfi Félagsbústaða,
sem leiðir til sann-
gjarnara kerfis
að mati velferð-
arráðs, en á sama tíma hækkar það
leiguna hjá fjölmörgum leigutök-
um.
Þess ber þó að geta að það lækk-
ar leiguna hjá öðrum, en nýtt kerfi
þykir sanngjarnara en það gamla,
þar sem leiguverð íbúða, sem
keyptar voru við hagstæðari
skilyrði er mun hagstæðara
en hjá þeim sem leigja nýrri
íbúðir sem voru keyptar á
hærra verði. Þetta þótti ótækt
þar sem einstaklingar sem
þurfa að leigja hjá Félagsbú-
stöðum hafa ekkert um það að segja
hvar þeir leigja, heldur er um út-
hlutunarkerfi að ræða.
„Það eru um 73 sem leigan hækk-
ar mest hjá, og það sem við erum að
gera, er að tryggja það að sé komið
til móts við þessa einstaklinga,“ seg-
ir Ilmur Kristjánsdóttir, formaður
velferðarráðs, en samkvæmt grein-
ingu Félagsbústaða mun leiguverð
hjá 90 prósent leigutaka hækka inn-
an við 12.500 krónur á mánuði. Aft-
ur á móti standa þessir 73 einstak-
lingar verr en aðrir, meðal annars
vegna þess að þeir missa sérstak-
an húsnæðisstuðning. Ilmur seg-
ir borgina þó ætla sér að koma til
móts við þessa einstaklinga.
Félagsbústaðir fóru einnig fram
á að leiguverð yrði jafnframt hækk-
að um 5% umfram hækkun vegna
vísitölu og verðbólgu. Það væri
gert til þess að tryggja rekstrar-
stöðugleika fyrirtækisins, sem sér
fram á að rekstur verður ósjálfbær
að óbreyttu. Því var þó frestað að
hálfu velferðarráðs.
„Aðalmálið er að kerfið sé
gagnsætt. Við frestuðum hækk-
uninni til þess að fá reynslu
á breytinguna, auk þess sem
breytingar á sérstökum húsnæðis-
stuðningi tekur gildi um áramótin,
og við þurfum að sjá hvaða áhrif
þær breytingar hafa,“ útskýrir Ilm-
ur.
Yfir 70 leigjendur Félagsbústaða
í vanda vegna hærri húsaleigu
Ilmur Kristjánsdóttir segir kerf-
ið verða sanngjarnara, en
leigan hækkar vegna
mikilla hækkunar á
fasteignamarkaði.
Helvíti á jörð Þórunn Ólafsdóttir
lýsir hörmungunum í Aleppo
Megum ekki
missa kúlið
Katrín Jakobsdóttir fer
yfir stjórnarmyndunar-
viðræðurnar
8
Kærleikur og
kraftur drógu
hann í herinn
Sigurður Ingi-
marsson undir-
býr jólin á Hjálp-
ræðishernum
Pólsk-íslenska
lopapeysan
2016
14 20 10
26
Allt sem þú
vildir vita um
mandarínur
Lítill drengur bættist við systkinahóp Ahmadi-fjölskyldunnar í gær. Hér er Anisa ásamt börnum sínum,
þeim Rokshar og Saheh. Litli drengurinn fékk nafnið Mikael. Móður og barni heilsast vel.