Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 44
4 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016MIÐBORGIN Unnið í samstarfi við Álafoss Við Laugaveg stendur lítið og notalegt útibú frá hinu goðsagnakennda fyrir-tæki Álafossi sem hvert mannsbarn þekkir. Þar er hægt að fá ekta íslenskar lopavörur; peysur, húfur, trefla, vettlinga, sokka og fleira. „Aðaláherslan hjá okkur er á ullarvörur úr íslenskri ull. Síðan erum við með heilmikið af íslenskri gjafavöru, langstærstur hluti var- anna okkar er íslensk hönnun. Við erum mjög stolt af því úrvali sem við erum með af lopapeysum og Ekta íslenskt í Álafossi Sauðkindin kemur enn og aftur til bjargar. getum með sanni sagt að þær séu gerðar á Íslandi,“ segir Guðmundur Arnar Jónsson, framkvæmdastjóri Álafoss. Íslenska lopapeysan í H&M? Guðmundur leggur áherslu á að peysurnar í Álafossi séu án nokkurs vafa prjónaðar á Íslandi en ekki er það alltaf tilfellið í dag þrátt fyrir að ullin sé íslensk; nú til dags séu margar stórar ferðamannaverslanir að láta prjóna peysur í Kína. Krafan um að upplýsa neytendur um upp- runa vörunnar er ekki það sterk að það sé alltaf skýrt hvar varan sé framleidd. „Þetta er það sem manni þykir sárast, að það séu vissar búð- ir sem eru að eyðileggja íslensku lopapeysuna. Það má hreinlega spyrja sig að því hvort H&M ætli líka að vera með hana,“ segir Guð- mundur og hlær. Sagan drýpur af hverju strái En aðalverslun Álafoss er í Álafoss- kvosinni sem er töfrandi staður, upplifun er að kíkja við í Mosfells- bænum og fá snert af fortíðar- þrá í bland við nýja og breytta tíma. Miðja kvosarinnar, innan um handverk skapandi ungra manna í Ásgarði og hnífana hans Palla, er Álafossverslunin – einmitt á sama stað og saga hennar hófst fyrir 120 árum. „Þetta er verslun sem er búin að vera viðriðin jólin í meira en öld. Álafoss var stofnað- ur hér í kvosinni svo sagan drýpur af hverju strái,“ segir Guðmundur. Í versluninni úir og grúir af alls kyns íslenskri hönnun og gjafavöru, s.s. íslensku handgerðu jólasveinunum sem eru sívinsælir, falleg sjöl, húfur og eyrnabönd frá Feldi sem hafa verið afar vinsæl jólagjöf og síðast en ekki síst kynstrin öll af hvers konar ullarvöru sem hefur sjald- an eða aldrei verið vinsælli en hún átti vissulega undir högg að sækja undir það síðasta á 20 öldinni og í upphafi þeirrar 21. „Eftir hrun þá snerist allt umhverfið við fyrir ull- ina. Flísið var að drepa hana. Við Ís- lendingar fórum til baka í grunninn og hönnuðir leituðu aftur mikið í ullina. Sauðkindin fór að bjarga okkur aftur, halda á okkur hita og halda okkur mettum,“ segir Guð- mundur sem hvetur að lokum alla til þess að kaupa íslenskt í jólapakk- ann – ekki síst ullina sem enn og aftur hefur komið okkur til bjargar. Eldgos og norðurljós eru forkunnarfögur mynstur. Íslensku jólasveinarnir eru sívinsælir. Myndir | Hari Sauðkindin hefur bjargað þjóðinni oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Lagður púðaverin eru frábær jólagjöf. Hekla kerti, servéttur og ofnhanskar. Lopinn er vissulega á sínum stað. Feldur er frábær í jólapakkann.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.