Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 15. desember 2016 Kostirnir við að hafa starfsstjórn án meirihluta að baki sér er að líkur á ólögum minnka. Núverandi rík- isstjórn byrjaði sitt fyrsta þing á að lækka stórlega veiðileyfagjöld. Það var einkar misráðin aðgerð, hvort sem litið er á hana út frá efnahags- legu sjónarmiði eða pólitísku. Hún var eins vitlaus og hún var óréttlát. En þessi sama ríkisstjórn gæti ekki gert þetta í dag. Annar kostur er að þingmenn munu mynda meirihluta um að auka framlög til heilbrigðismála. Þar sem erfiðara er að mynda meirihluta til hækka skatta eða skera mikið niður þjónustu eru takmörk fyrir því hversu framlögin til heilbrigðismála geta hækkað. En þau munu samt aukast eitthvað. Þá er það líka ágætt fyrir þingið að vinna án meirihluta. Þingmenn fá tíma til að átta sig á um hvaða mál má mynda meirihluta. Því miður hafa vinnubrögðin á þingi einkennst af flokkadráttum, svo mjög að þing- menn greiða oft atkvæði með mál- um sem þeir hafa enga trú á og gegn málum sem þeim finnst góð. Þar fyrir utan eru fáir kostir þess fyrir okkur hin að hafa enga starfhæfa ríkisstjórn í landinu. Það væri miklu betra að hafa stjórn sem gæti mótað peningamálastefnu sem gagnast og aðgerðaáætlun til að mæta enn meiri fjölgun ferða- manna, áætlun til að leysa hús- næðisekluna, berjast gegn fátækt og hvernig lífskjör launafólks geti hér sem fyrst orðið viðlíka og í ná- grannalöndum. En þá erum við komin út fyrir það sem núverandi þing getur boð- ið upp. Mögulega verður mynduð stjórn á næstu vikum en ólíklega stjórn með stuðning til stórra verka. Gunnar Smári EKKI ALVONT 3 × í viku GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400 Frá Svíþjóð grillbudin.is Grillbúðin Pizzusteinn Er frá Þýskalandi Fyrir grill og ofna 5.990 FULLT VERÐ 8.990 Spaði og skeri fylgja afslátt ur 33% Opið alla daga til jóla Lögreglumál „Þetta lýsir full- komnu skilningsleysi á eðli mansals og gerir verkalýðshreyf- ingunni erfitt fyrir að berjast gegn félagslegum undirboð- um,“ segir Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfs- greinasambandsins, um ákvörðun saksóknara um að sækja ekki mansalsmálið í Vík, þar sem konur frá Sri Lanka prjónuðu fyrir undir- verktaka hjá fyrirtækinu Icewear og fengu greitt með fæði og húsnæði.“ Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Ef það má vera með fólk í vinnu fyrir fæði og húsnæði er uppi al- gerlega nýr veruleiki á íslenskum vinnumarkaði,“ segir Drífa. „Þetta er skýrasta vinnumansalsmál- ið sem hefur komið upp á Ís- landi. Þarna er klárlega ver- ið að misnota bága aðstöðu fólks. Staðreyndin er sú að ef við náum ekki saksókn í þessu máli höfum við litla sem enga von um að sækja vinnumansalsmál í framtíðinni nema eitthvað mikið breytist.“ Snorri Birgisson, rannsóknarlög- reglumaður segir að það hafi leg- ið fyrir frá upphafi að sönnunar- byrðin væri erfið, „Við látum ekki slá okkur út af laginu og höldum ótrauð áfram. Ég er sannfærður um að þótt það sé ekki ákært fyrir mansalsþáttinn í þessu máli munu koma upp mál í framtíðinni sem leiða til ákæru.“ Hann segir að í þessu máli hafi brota- þolarnir farið úr landi meðan rannsókn var enn á frumstigi en það hafi haft sín áhrif. Málinu sé ekki alveg lokið því enn sé verið að skoða þætti svo sem brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og heimilisofbeldi. Drífa segir að það þurfi að þétta netið alls staðar, hjá stéttarfélögum, lögreglu, ákæruvaldi og dómurum. Síð- ast en ekki síst þarf að herða lögin,“ segir hún. Lýsir fullkomnu skilningsleysi á eðli mansals Viðskipti Íslendingar eru að eyða umtalsvert meira í jólagjafir hér heima fyrir þessi jól en í fyrra. Þúsundir Íslendinga velja þó að kaupa jólagjafir erlendis fyrir þessi jól og verða þá föt oft fyrir valinu. Svava Johansen kaupmaður segir einkennilegt að flugfélögin hvetji þjóð, sem sé nýstigin upp úr atvinnuleysi, til að versla erlendis. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Spár gera ráð fyrir rúmlega 10 pró- sent meiri jólaverslun hér heima í nóvember og desember, en gert er ráð fyrir því, með hliðsjón af greiðslukortaveltu og auknum kaup- mætti, að hvert mannsbarn eyði um 53 þúsundum aukalega í desember umfram aðra mánuði ársins, eða ríf- lega 212 þúsundum á hverja 4 manna fjölskyldu. Emil B. Karlsson hjá Rannsóknar- setri verslunarinnar segir að þetta sé mesti vöxtur sem hafi orðið í verslun frá hruni en í fyrra jókst hann um 6,6 prósent. „Ég held að þetta beri minni keim af bruðli en í góðærinu 2007. Fólk er að eyða meira í dýra og vand- aða hluti en ekki endilega að kaupa meira magn.“ Verslun með föt og skó hefur þó talsverða sérstöðu og dróst saman í október síðastliðnum í frá sama mánuði í fyrra þó svo að verð á fötum hafi verið 5,9% lægra en fyrir ári. „Þetta gefur ekki rétta mynd. Við erum að selja miklu meira en í fyrra,“ segir Svava Jo- hansen og bendir á að stór tilboðsdag- ur, svokölluð mið- nætursprengja í byrjun nóvember, hafi verið í október í fyrra. Það sé því erfitt að bera saman október núna og í fyrra. „Ef við skoðum október og nóvember saman er salan að aukast um tæp 20 prósent að jafnaði. Ég er mjög ánægð með jólaverslunina og flestir kaupmenn sem ég hef rætt við.“ Um síðustu áramót voru felldir niður tollar af fötum sem hvati til aukinnar sölu á fötum hér innan- lands. Þannig var ætlunin að sporna gegn þeirri þróun að Íslendingar sem ferðist til annarra landa kaupi í miklu magni föt í útlöndum og fata- verslunin flyttist heim í staðinn. Á þessu ári hefur gengi íslensku krónunnar styrkst verulega og þar með er hagstæðara fyrir landsmenn að versla erlendis núna en í fyrra. „Það er ekki gaman að sjá Icelandair bjóða fólki að koma með tvær töskur til lands- ins ókeypis. Þannig er fyrirtækið að stuðla að því að verslunin færist til útlanda,“ segir Svava. Flugfélögin ættu ekki að hvetja fólk til að versla annars staðar. Ég skora bæði á WOW og Icelandair að hætta því. Það er ekki beint verið að hugsa um þjóðina sem er að stíga upp úr atvinnuleysi. Mér finnst það heldur ekki skemmti- legt, verandi kaupmaður. En það er áhugavert að sjá meiri verslun engu að síður. Það er vegna þess að verðið hefur lækkað.“ Rúmlega 74 þúsund Íslendingar fóru til útlanda í október og nóv- ember, samkvæmt tölum frá Isavia. Stór hluti fer með tóma tösku og fyllir hana af jólagjöfum og öðrum varningi í verslunum. Gera má ráð fyrir að það sé að stórum hluta fatn- aður. Ofan á það virðist netverslun vera að sækja í sig veðrið en fjöldi pakkasendinga frá útlöndum jókst um 40 prósent á tímabilinu ágúst til október. „Það hefur alltaf verið þessi mikla samkeppni við útlönd fyrir jólin, ég held að margir séu að fara til að vera í útlöndum yfir jólin en ég fullyrði að salan hjá okkur er ekki að minnka,“ segir Svava Johansen. Segir Icelandair hvetja fólk til að versla í útlöndum Efnahagsmál Ásgeir Jónsson segir hátt gengi krónunnar valda Seðlabanka Íslands áhyggjum. Íslenskir fjárfestar eru tregir að fara með fé sitt til annarra landa út af góðærinu á Íslandi. Seðlabanki Íslands vill reyna að lækka gengi krónunnar og búa til farveg fyrir það að íslenskir fjárfestar fjárfesti erlendis eftir að gjaldeyrishöftunum verður lyft um ára- mótin, segir Ásgeir Jónsson, hagfræðingur í Háskóla Íslands. Þess vegna, meðal annars, hefur bankinn lækkað stýrivexti um 0,25 prósentustig, segir Ásgeir. „Gengi krón- unnar hefur verið að styrkjast verulega og þegar gengið styrkist verða innfluttar vörur ódýrari þannig að við gætum verið að fá verð- hjöðnun,“ en með því á Ásgeir við að verð á vör- um á Íslandi lækki vegna hás gengis krónunnar. Hann segir að íslenskir fjárfestar hafi verið fastir í gjaldeyrishöftum á Íslandi í rúmlega átta ár, frá hruninu 2008, en að nú sé staðan orðin sú, út af sterku gengi krónunnar, að þeir vilji ekki fjárfesta utan Íslands. Ásgeir segir að Seðlabank- inn gæti, með vaxtalækkuninni, verið að reyna að stuðla að auknum fjárfestingum Íslendinga erlendis eftir losun hafta. „Það er mikil óvissa og póli- tískur óstöðugleiki á mörkuðum erlendis út af Trump og Le Pen í Frakklandi. Vextir eru háir á Íslandi, lágir víða annars staðar. Það hefur verið mjög lítill áhugi hjá íslenskum fjárfestum að fjárfesta er- lendis og Seðlabankinn er farinn að hafa aukn- ar áhyggjur af því og þessu háa gengi krónunn- ar. Og háir vextir ýta gengi krónunnar upp.“ Vaxtalækkanir Seðlabankans geta líka haft þau áhrif að viðskiptabankarnir lækki vexti á húsnæðislánum með breytilegum vöxtum. „Þannig að stýrivaxtabreytingar eru farn- ar að hafa meiri áhrif á almenning af því nú eru fleiri hættir að vera með verðtryggð lán. Síðasta stýrivaxtalækkun var í haust og hafði veruleg áhrif á vexti hjá fólki en bankarnir lækkuðu þá í kjölfarið.“ Ásgeir segir að hann telji að þessi stýrivaxtalækkun geti ekki orðið sú síðasta hjá Seðlabanka Íslands. Reynt að lækka gengi krónunnar Ásgeir Jónsson hagfræðingur segir Seðlabanka Íslands, sem Már Guðmundsson stýrir, hafa áhyggjur af háu gengi krónunnar og það þurfi að reyna að lækka það til að koma í veg fyrir verðhjöðnun og til að ýta undir fjárfestingar Íslendinga erlendis. Debetkortavelta Íslendinga erlendis í nóvember var 2,4 milljarða sem er 37,3% hærri upphæð en í nóvember í fyrra. Kreditkorta velta íslendinga erlendis í nóvember var 9,6 milljarða sem er 24,8% hærri upphæð en í nóvember í fyrra. „Það er ekki beint verið að hugsa um þjóðina sem er nýstigin upp úr atvinnu- leysi,“ segir Svava Johan- sen, kaupmaður í NTC. 74 þúsund Íslendingar fóru til útlanda í október og nóvember. Síðast en ekki síst þarf að herða lögin, segir Drífa Snædal. Við látum ekki slá okkur út af laginu, segir Snorri Birgisson.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.