Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 15.12.2016, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 15.12.2016, Qupperneq 14
Cygnus-hálsmen gyllt oxiderað silfur 59.500 kr. Tuttu - armband silfur 34.400 kr. Nanook- hringur svartur demantur 18.200 kr. Bankastræti 4 I 101 Reykjavík www.aurum.is Kanína 2.000-6.000 kr. Beard Comb 4.000 kr. Farmers Market húfa 8.500 kr. ÞEGAR LÍÐA FER AÐ JÓLUM Farmers Market peysa 33.500 kr. Tuttu-armband ilf r . r. i r . r. Bambus úr 15.200 kr. facebook.com/aurumlifestyle 14 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 15. desember 2016 Herinn í gírinn fyrir jólin Sigurður Ingimarsson hefur í nógu að snúast þessa dagana. Framundan er jólaveisla Hjálp- ræðishersins, en þar er Sigurð- ur í stórum hópi fólks sem sér um undirbúning. Myndir | Rut Sigurður Ingimarsson, foringi hjá Hjálpræðishernum, segir að nýir tímar séu að renna upp hjá samtökunum sem nýlega seldu stórhýsi sitt í Kvosinni. Nú hillir undir að framkvæmdir hefjist við byggingu nýs húsnæðis samtak- anna við Suðurlandsbraut, en hönnun þess stendur yfir. Jólin nálgast og það þarf að sinna jólahaldinu eins og áður. Borgin hleypur undir bagga og opnar ráðhúsið. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is „Jólahaldið er að miklu leyti hjart- að í starfinu hjá okkur og þetta er annasamasti og skemmtileg- asti tími ársins,“ segir Sigurður Ingimarsson sem hefur komið að jólaveislu Hjálpræðishersins á að- fangadag í nokkur ár. „Hins vegar reynum við að aðstoða fólk og vinna með því allt árið en jólin eru samt stór partur af þessu og maður er eiginlega með hugann við þau allt árið. Undirbúningurinn hefst svo fyrir alvöru að hausti þegar við stofnum nefnd um veisluna. Þá fer allt í gang.“ Fjölmörg fyrirtæki leggja Hjálp- ræðishernum lið á hverju ári og Sig- urður segir að undirbúningur fyr- ir jólaveisluna að þessu sinni hafi gengið vonum framar. „Allir hafa tekið okkur vel enda áttar fólk sitt á mikilvægi þessa verkefnis. Til dæm- is gefum við okkar skjólstæðingum og föngum í fangelsum landsins jólagjafir og nú bar svo við að einn aðili tók það alfarið að sér. Það var auðvitað mjög gleðilegt. Það hefur því verið gleðilegt að koma þessu öllu heim og saman.“ Blessun Sjálfur kynntist Sigurður starfi Hjálpræðishersins í gegnum tón- listina, sem hann hefur áfram auga og eyru með í starfi Hersins, enda tónlistarmaður, leikur á gítar, hljóm- borð og syngur. „Ég kynntist starfi Hjálpræðishersins árið 1994. Ég var þá að sjá um djassguðsþjónustu í Bú- staðakirkju og við störfuðum með gospelkór frá Hjálpræðishernum á þessum tíma. Upp úr þessu fór ég bara að sækja samkomur og dróst inn í þetta starf og þennan félags- skap. Kærleikurinn og krafturinn höfðaði til mín og ég þurfti hann, enda leið mér ekki vel á þessum tíma og var leitandi í lífi mínu. Það var sérstaklega ein kona sem tók mér vel þarna, Ingibjörg Jónsdóttir, köll- uð Imma. Það var gott að finna fyrir kærleika frá henni og öðrum í starf- inu og finna síðan trúna,“ segir Sig- urður. Hann fór síðar fór til Noregs Sigurður segir mikið gæfuspor í sínu lífi að hafa kynnst starfi Hjálpræðishersins. Hann segir kærleikann og trúna þunga- miðjuna í öllu starfi samtakanna.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.