Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 15.12.2016, Side 16

Fréttatíminn - 15.12.2016, Side 16
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is Verð frá 39.900 Every Day Backpack frá Peak Design eru byltingarkenndir ljósmyndabakpokar sem vekja aðdáun hvar sem er. Frábær bakpoki sem nýtist ekki eingöngu ljósmyndurum heldur líka hverjum sem vill hentugan bakpoka fyrir fartölvuna, spjaldtölvuna og annað sem fólk ferðast með. Every Day Backpack frá Peak Design 16 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 15. desember 2016 Aleppo, sem í dag er nánast í rúst- um eftir langvarandi átök, er ein elsta og merkasta borg heims; vart yngri en átta þúsund ára gömul eða sjö sinnum eldri en byggð á Íslandi. Aleppo var mikilvæg öllum þeim stórveldum sem risu og féllu fyr- ir botni Miðjarðarhafsins og hún lifði þau öll af. Aleppo var ætíð miðstöð verslunar og ekki síst síð- asta árþúsundið. Þar var endastöð silkileiðarinnar. Um Aleppo fóru gæðavörur frá Indlandi og Kína um Mið-Austurlönd og til Evrópu. Al- eppo var þriðja stærsta borg Ott- omanveldisins á eftir Miklagarði og Kaíró. Verslun í borginni dróst saman með tilkomu Suez-skurðar- ins og auknum sjósiglingum. Al- eppo mátti þola hæga en örugga hrörnun alla tuttugustu öld. En það var ekki síður pólitík- in sem lék Aleppo illa en breyttar samgöngur. Í borginni hafði verið sterkt gyðingasamfélag frá því fyr- ir daga Krists sem byggði á versl- un og viðskiptum um allt Ottom- anveldið og langt út fyrir það, upp til Evrópu og austur til Kína. Þetta samfélag dró til sín áhrif alls stað- ar að og þess sáust merki í menn- ingunni. Matarlist gyðinganna í Al- eppo er enn rómuð og þeir gátu af sér áhrifamikla rabbína, fræði- og listamenn. Þessu samfélagi hnign- aði með minnkandi verslun en brotnaði síðan saman við stofnun Ísraelsríkis og aukinni einangrun gyðingasamfélaga í nálægum lönd- um. Gyðingarnir í Aleppo, sem öldum áður tóku á móti gyðingum sem hröktust undan ofsóknum í Evrópu, flúðu til Suður-Ameríku og Kanada en mest þó til Banda- ríkjanna. Þar er sterkt samfélag sýr- lenskra gyðinga. Í Aleppo standa enn auð hverfi gyðinga. En sápugerðin í Aleppo lifði þetta allt af; fall Ottomanveldsins, hrörn- un verslunar, flótta gyðinga og vilja Assad-stjórnarinnar að flytja völd og áhrif frá Aleppo og nágrenni til Damaskus þar sem þeir feðgar nutu helst stuðnings. Sápugerðin var eitt af því sem hvað best gekk í Aleppo á liðnum áratugum. Með vaxandi áhuga á hefðbundinni sápugerð á Vesturlöndum í kjölfar vakningar um spillingaráhrif iðnvæðingar daglegra þarfa; jókst eftirspurn eftir elstu og merkustu sápu heims. Frá því löngu fyrir tíma kross- ferðanna var búin til sápa í Aleppo með því að umbreyta olíu af ólívum og lárviði með lút. Sápan var látin þroskast í heilt ár, var hörð og þétt, gullin að utan en græn að innan. Hún var eftirsótt öldum og árþús- undum saman en með iðnvæðingu sápugerðar dró hægt og bítandi úr framleiðslunni, fjarlægari markað- ir lokuðust, sápugerðir lögðu upp laupana og vinnslan varð vart svip- ur hjá sjón. En upp úr 1980 fór að gæta aukins áhuga á Vesturlöndum fyrir náttúrlegum sápum og sápu- gerðin í Aleppo virtist vera að rísa úr öskustónni. Borgarastyrjöldin í Sýrlandi slökkti þá drauma – eins og fleiri. Nú er engin sápa framleidd í Al- eppo. Fólkið sem kunni til verka er annað hvort dáið eða hefur flúið borgina. Olívutrén og lárviðurinn í nágrenninu eru í niðurníðslu. Sumt sápugerðarfólkið hefur byrjað upp á nýtt með tvær hendur tómar annars staðar, til dæmis í Líbanon. En sápan verður aldrei alveg sú sama og sú sem gerð var í Aleppo í þúsundir ára, hráefnin eru önnur og aðstæður aðrar. Þúsund ára iðnaður Það var í raun bara ein sápa í Mið- austurlöndum sem var lík að gæð- um og sápan frá Aleppo. Það var sápan frá sápugerðum í Nablus á Vesturbakkanum í Palestínu. Þar er enn búin til sápa úr olívuolíu og lút sem gerður er úr ösku og kalk- steini. Sápan frá Nablus er látin þroskast í vöruhúsum í ár eins og sápan frá Aleppo. Hún er hörð, hvít og nánast lyktarlaus – hrein olívu- sápa. Þessi sápa var búin til á heim- ilum í Palestínu frá örófi alda en talið er að af þeim heimilisiðnaði hafi orðið til litlar sápugerðir á ell- eftu öld. Á fjórtándu öld spruttu upp stórar og öflugar sápugerðir sem gátu sinnt fjarlægari mörkuð- um en heimabyggð. Sápan frá Nablus var eftirsótt og sápugerðirnar mikilvægur þáttur í borgarlífinu. Framleiðslan dróst hins vegar saman á tuttugustu öld vegna samkeppni við iðnaðarsápu sem var ódýrari; kallaði til dæmis ekki á stór vöruhús til að geyma og þroska sápurnar. En vaxandi áhugi á hefðbundinni sápu jók á ný eft- irspurnina eftir sápum frá Nablus upp úr 1980. Sápugerðin lokuð inni og kæfð En því miður hefur sú eftirspurn ekki dugað til að lyfta undir aukna framleiðslu. Margar sápugerðir voru eyðilagðar í hermdaraðgerð- um Ísraelshers í upphafi þessarar aldar. Sífellt harðari stefna ísrael- skra stjórnvalda gegn byggðum Palestínumanna hefur síðan gert framleiðslu og sölu erfiðari. Fjölg- un eftirlitspósta og tilviljankennd lokun þeirra gerir sápugerðunum erfitt fyrir um aðföng og að koma vörunni á markað. Starfsfólkið kemst jafnvel ekki til vinnu dögum saman. Frá aldamótum hefur sápu- gerð í Nablus dregist saman um meira en helming þrátt fyrir aukna eftirspurn eftir þessari gæðasápu. Sögurnar frá Aleppo og Nablus draga ekki aðeins fram hvernig stjórnvöld víða um heim hafa brot- ið niður aldagamlar hefðir með því að styðja og styrkja uppbyggingu stórra iðnfyrirtækja sem hafa brotið undir sig markaði smærri framleiðenda og eyðilagt forn- ar og traustar hefðir; heldur sýna þær einnig hvernig gömul menn- ingarsamfélög, atvinnuhættir og viðskiptaleiðir eru brotin niður af stjórnvöldum til að við styrkja tímabundið stöðu sína. Með niður- brotinu hverfur aldagömul þekking og reynsla og með henni mikilsverð lífsgæði sem við megum síst við að missa. Sápugerðirnar í Nablus höfðu starfað öldum saman og lifað af alskyns hrun og óáran. Myndir | Getty Hernaðurinn gegn sápunni í Aleppo og Nablus Eyðilegging Aleppo strokar út þúsund ára menningarsögu um leið og hún eyðileggur fjölskyldur og tortímir lífi. Nokkuð er síð- an að síðasta sápugerðin hætti starfsemi en sápugerðin í Aleppo er sú elsta í heiminum, hefur verið nafntoguð öldum saman og lifað af ris og hrun heimsvelda. En hún lifði ekki af vora tíma. Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is Alepposápa úr olívuolíu og lárviðarolíu er gullin að utan en græn að innan. Hvít og lyktarlítil sápa látin eldast og batna í fornum vörugeymslum í Aleppo. Sápugerðin var eitt af því sem hvað best gekk í Aleppo á liðnum áratugum. Með vaxandi áhuga á hefðbundinni sápugerð á Vesturlöndum í kjölfar vakningar um spillingaráhrif iðnvæð- ingar daglegra þarfa; jókst eftirspurn eftir elstu og merkustu sápu heims.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.