Fréttatíminn - 15.12.2016, Side 20
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 10–18 • LAUGARDAGA KL. 11-16 • FAXAFENI 10 • 108 REYKJAVÍK • 534 7777 • modern.is
JÓLAGJÖFINA
FÆRÐU HJÁ OKKUR
Opið á sunnudag kl. 12-18
Opið á laugardag kl. 11-18
FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 15. desember 2016
Álfar og dvergar tengdir
saman í lopapeysumynstri
Tillögur sem
bárust í keppnina
sem eru líklegri
og auðveldari til
framleiðslu en
vinningspeysan.
Alda Lóa Leifsdóttir
aldaloa@frettatiminn.is
Grunnhugmyndin var sú að hanna
lopapeysur, innblásnar af pólskri
menningu. Keppnin var öllum opin
og þátttakendur komu víða að, frá
Póllandi, Íslandi, Þýskalandi og
Bretlandi. 90 tillögur bárust en
margar tillögur héldu sig ekki ná-
kvæmlega við skilyrði keppninn-
ar, sem var að tvinna tvo menn-
ingarheima saman. En sumir höfðu
gert tillögur að peysum með lunda
eða íslenska fánanum og sleppt
allri pólskri tilvísun, segir Thomasz
Chrapek, einn af skipuleggjendum
keppninnar. En það er pólska sendi-
ráðið á Íslandi og ProjectPolska sem
eru kostunaraðilar hennar.
Vinningstillagan kemur frá
Bretlandi og er það Aleksandra
Szmida sem á heiðurinn af henni.
Aleksandra Szmida (olaszmida.
com) býr í Bretlandi. Hennar út-
færsla er tilvísun í dverg eða litla
fólkið sem býr í náttúrunni og fyrir-
finnst í pólskum þjóðsögum og hef-
ur óbeina tengingu í íslenska álfa
og huldufólksheiminn. Einnig hef-
ur Alexandra komið fyrir pólskum
bókstöfum sem eru eingöngu not-
aðir í pólsku letri. Undir dvergnum
hefur hún teiknað villt jarðarber
sem vaxa undir trjánum í pólskum
skógum.
Thomas segir þennan hluta
keppninnar vera fyrsta stig þar sem
aðeins var kallað eftir grafískum
lausnum á peysunum. Það komu
margar tillögur inn en þær eru mis
auðveldar í útfærslu. Þannig er ekki
ennþá vitað hvernig eða hvort við
getum útfært vinningstillöguna,
hún er dálítið flókin. Þess vegna
nefnum við og kynnum fleiri tillög-
ur sem bárust í keppnina, tillögur
sem koma frekar til greina þegar
við hugum að prjónaðri útgáfu
peysunnar. Þannig að framhaldið
er að þróa mynstrið áfram og fram-
leiða peysuna. En það á eftir að
finna fjármagn í þann hluta keppn-
innar, en þá verður peysan prjónuð
Pólskur dvergur og villt skógar-
ber og pólskir stafir eru grunn-
stefið í vinningspeysunni.
Aleksandra Szmida á
heiðurinn af bestu lopa-
peysunni í sinni grafísku
útfærslu en mynstrið þarf
frekari yfirlegu fyrir prjón-
aða útgáfu af tillögunni.
Í haust var haldin lopapeysukeppni um
fallegustu pólsk-íslensku lopapeysuna.
Keppninni er lokið og bestu tillögurnar voru
kunngerðar um helgina síðustu.
Auglýsingaspjald fyrir keppnina með
upplýsingum um ferlið.
og forseti Íslands fær fyrsta eintak-
ið af peysunni.
Guðfinna Mjöll frá Vík Prjóns-
dóttir var ein af dómurunum og
hafði mikla skemmtun af, og kom
henni á óvart hversu góðar og
skemmtilegar tillögurnar voru.
„Það var gaman að sjá hvernig þátt-
takendur tengdu pólska menningu
inn í íslenska lopapeysuna, fallegt
að tengja tvo menningarheima
saman. Margar góðar og erfitt að
velja á milli,“ segir Guðfinna.
20 |
Laugavegur - Kringlan - Glerártorg - kunigund.is