Fréttatíminn - 15.12.2016, Page 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 15. desember 2016
Gítarsmiðurinn Brooks Hood flutti frá hinu
sólríka Flórída og undir jöklana á Höfn í
Hornafirði. Hann segir skort á samstöðu í
íslenskum stjórnmálum dálítið sorglegan.
Brooks Hood á verkstæðinu þar sem hann tekur gítara íslenskra tónlistarmanna í yfirhalningu.
Mynd | Stella Andrea Guðmundsdóttir
Innflytjandinn
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Brooks Arther Hood býr í Reykjavík og þykir fyrir-taks gítarviðgerðarmað-ur. Hann kom til Íslands snemma á tíunda ára-
tugnum og settist fyrst að á Höfn
í Hornafirði þó að hann búi nú og
starfi í miðborginni. Brooks er fædd-
ur á sögufrægum stað í Bandaríkj-
unum.
„Ég fæddist í hjarta suðurríkj-
anna, í litlu borginni Montgomery í
Alabama árið 1968. Þarna voru auð-
vitað mikil læti á þessum tíma vegna
réttindabaráttu blökkumanna. Rosa
Parks hóf þarna baráttu sína gegn
órétti í samfélaginu þegar hún vildi
ekki sitja á „réttum stað“ í strætó
og ríkisstjórinn í Alabama meinaði
blökkumönnum um aðgengi að
háskólanum. Þarna var alls kon-
ar svona vitleysa í gangi,“ segir
Brooks. Hann bjó í Montgomery
fram til tuttugu og tveggja ára aldurs
þegar hann fluttist í tvö ár til Fort
Lauderdale í Flórída.
„Í Flórída hitti ég fyrrverandi kon-
una mína og fluttist með henni til
heimabæjarins, Hafnar í Hornafirði.
Það voru auðvitað mikil viðbrigði,
en ég hafði reyndar ágæta hugmynd
um Ísland þá þegar. Pabbi minn
hafði verið hér á áttunda áratugnum
vegna útboða fyrir virkjanafram-
kvæmdir og ég man eftir því að í
stofunni heima voru lítill hraunmoli
úr Heklu, teikning frá Þingvöllum
og ljósmyndabók frá Íslandi. Þannig
að ólíkt mörgum löndum mínum þá
hafði ég ágæta hugmynd um hvar
landið er í heiminum,“ segir Brooks
sem bjó austur á Höfn í nærri tólf ár.
Tónlistaráhuginn kviknaði
snemma og Brooks hefur komið að
tónlist með ýmsum hætti, stundað
upptökur og hljóðfærasmíð, auk
þess auðvitað að spila sjálfur. „Ég
lærði upprunalega á klassískt píanó
í átta ár. Hins vegar man ég að alveg
frá því að ég fékk fyrsta rafmagns-
gítarinn í hendurnar var ég áhuga-
samur um hvernig þetta dót virk-
aði. Þannig að ég held bara áfram
að pæla í því.“
Brooks Hood segir það gott að á
Íslandi eru gæði matvöru oft betri
en í Bandaríkjunum. „Það er sem
betur fer ekki mikið af bætiefnum
og ógeði í matvöru hér og svo eru
hreina loftið og hreina vatnið auð-
vitað mikil lífsgæði. Þegar kemur
að neikvæðum hliðum samfélags-
ins hér finnst manni stundum erfitt
að horfa upp á samstöðuleysi fólks í
stjórnmálum hér á landi. Fólk virðist
ekki geta staðið saman og ákveðið
hvernig hlutirnir eiga að vera. Það
eru allir í sínu horni og garga í all-
ar áttir. Þó það sé ekki margt ann-
að en fjölskyldan sem maður saknar
við Bandaríkin þá mætti þó fast-
eignaverð vera skaplegra hér. Það
er komið út í hálfgerða vitleysu og
svo er auðvitað ódýrara að búa víða
í Bandaríkjunum, þó að lífsgæðin
séu oft ekki á sama plani og þau eru
hér.“
Hraunmoli úr
Heklu kveikti
hugmynd um
landið
Önnur
þjónusta
Dekk Púst Smurning Bremsur Fjöðrun Rafgeymar