Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 15. desember 2016 Þrennir tvíburar ræða um lífið og tilveruna við Fréttatímann. Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Rífast um Coca Puffsið Ég held það sé öðruvísi að vera tvíburi. Maður rífst meira yfir minni hlutum. Eins og hver á að klára Cocoa Puffsið eða eitt- hvað þannig,“ segir Kári, sem er 17 ára, um samband sitt og tvíbura- bróður síns, Unnars. „Við erum náttúrulega nákvæm- lega jafn gamlir, í sama skóla og vinahópi. Ef við förum eitthvað þá förum við saman. Maður er alltaf að bíða eftir hinum,“ bætir Unnar við. Hann segir margt gott fylgja því að vera tvíburi. „Maður hefur alltaf einhvern til að vera með. Það kemur fyrir að við séum óvinir, rífumst, en við erum oft líka góð- ir vinir. Ef við rífumst þá er það ekkert alvarlegt. Sættumst eftir klukkutíma.“ Kári tekur til máls: Ég fæ stund- um alveg leið á Unnari en læt mig bara hafa það. Gæti ekki ímyndað mér lífið án þess að vera tvíburi. „Ég gæti alveg ímyndað mér lífið án þess að vera tvíburi. Eða frekar hvernig það væri, því maður á marga vini sem eru það ekki og sér hvernig þeir hugsa bara um sig en ekki aðra. Maður hugsar mikið um hinn ef maður er tvíburi. Ef einhver spyr: Eigum við að fara í sund? Þá segi ég, jaaá, ég þarf að spyrja Kára.“ Mættu báðar í Lucky Records bol Þær Júlíana og Lilja eru 17 ára og ganga báð-ar í Menntaskólann við Hamrahlíð. „Við höfum alltaf fylgst mikið að en eigum okkur alveg okkar eigið líf,“ segir Lilja. „Ég er á félagsfræði- braut í MH og vinn á Prikinu. Er eiginlega alltaf að vinna en þar fyrir utan hangi ég mikið á Prikinu ef ég er ekki á vakt. Við erum ein stór fjölskylda sem erum þar.“ „Já, ég er á málabraut og vinn á Sæta svíninu,“ segir Júlíana. „Um daginn fór ég niður í vinnu til Júlíönu og áður en ég vissi kom einhver samstarfsmaður hennar með síma og vildi taka mynd af okkur. Sorry,“ segir Lilja og horfir til systur sinnar. „En mér fannst geggjað vandræðalegt að hann væri að taka einhverja tvíbura- mynd.“ Júlíana kinkar kolli. „Það er svolítið þreytandi hvernig allir hugsa um okkur Lilju sem hluta af hvor annari. Eins og við séum ekki sjálfstæðir einstaklingar. Annars höfum við lent í öðru vandræða- legu. Einu sinni mættum við báðar í Lucky Records bolum í skólann. Það var frekar óþægilegt og ég sagði við Lilju að hún skyldi fara heim og skipta. Hún féllst ekki á það þannig önnur okkar var í boln- um á röngunni. Það tók örugglega enginn eftir þessu nema við. Vita hvað hitt hugsar Við vitum oftast hvað hitt er að hugsa með því að horfa á hvort ann-að. Erum bestu vinir, mætti segja. Ég vinn í Skaftafelli, úti á landi, en þegar ég er í bænum þá hittumst við og erum í góðu sambandi,“ segir Þór- unn Lilja um sig og tvíburabróð- ur sinn, Friðrik Má. Hún segir þau stundum finna á sér að hinu líði illa jafnvel þó þau séu ekki á sama stað. „Það er mjög skrítið hvernig við finnum það á okkur. Stundum hringir hann í mig eða öfugt og spyr hvernig mér líði. Þá svara ég kannski að mér líði ekkert það vel.“ Þau segjast vera afar samrýnd og jafnvel þó þau eigi önnur systkini þá eigi þau í sérstöku sambandi. „Við erum ekkert það lík nema bæði með jafnaðargeð og svip- aðan húmor. Að öðru leyti erum við svaka ólík. Samt erum við bestu vinir. Jöfnun hvort annað út.“ Tvíburamyndir eru vandræðalegar Kári og Unnar rífast stundum en sættast iðulega eftir mesta lagi klukkutíma. Mynd | Rut Júlíana og Lilja eru samrýndar en segjast þó sannarlega eiga sér eigið líf. Mynd | Rut Þórunn Lilja og Friðrik Már eru mjög ólík en samt bestu vinir. Mynd | Rut Falleg jólatré Hraunbær 123 | s. 550 9800 | www.sigraena.is Fáðu þér sígræna gæðajólatréð - sem endist ár eftir ár! Skátarnir hafa nú um árabil selt Sígræna jólatréð og prýða þau nú þúsundir ánægðra heimila. Þessi jólatré eru í hæsta gæðaflokki auk þess að vera mjög falleg og líkjast þannig raunverulegum trjám. • Ekkert barr að ryksuga • Ekki ofnæmisvaldandi • 12 stærðir (60-500 cm) • Íslenskar leiðbeiningar • Eldtraust • Engin vökvun • 10 ára ábyrgð • Stálfótur fylgir Opnunartímar: Virkir dagar kl. 09-18 Helgar kl. 12-18

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.