Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 38
38 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 15. desember 2016 Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Auglýsingar um blæð-ingar snúast um hreinlæti, að konur eigi ekki einu sinni að finna fyrir því að þær fari á blæðingar. Að við getum lifað eðlilegu lífi án þess að finna fyrir blæðingunum. Í aug- lýsingum eru blæðingar sýndar sem ákveðið vandamál í sam- félaginu.“ Þetta segir Rebekka Líf Albertsdóttir sem nýverið gerði lokaritgerð um svokall- aðar Bláar blæðingar og áhrif auglýsinga og túraðgerðarsinna á blæðingavörur. „Sú mynd sem er dregin upp af blóði er að túrblóð sé óhreint. Við sjáum aldrei rautt blóð í auglýsingum um blæð- ingar heldur kemur blár okkur oftar fyrir sjónir. Blá er álitinn hreinn litur. Hann á ekkert skylt við túrblóð sem virðist tabú.“ Hún segir auglýsendur hafa sett sitt mark á hvernig blæð- ingar kvenna eru framsettar í samfélaginu. „Auglýsingar á blæðingavörum voru bannaðar í Bretlandi til ársins 1979. Það var vegna þrýstings framleið- enda á blæðingavörum sem þær urðu heimilaðar í sjón- varpi enda fjársterkir aðilar þar á ferð. Þegar þetta var gert voru settar viðmiðunarreglur sem miðuðu að því að auglýsingin yrði áhorfandanum ekki til skammar, orðbragð og mynd- mál færi ekki fyrir brjóstið á neinum. Ekki var leyfilegt að sýna vöruna nema hún væri í umbúðum. Talsetning og leik- ur var í höndum kvenmanns og mælt var gegn því að vísað yrði í karlmenn. Það var í lagi að hafa karlkynsleikara en þeir máttu ekki vera í aðalhlutverki, heldur á jaðrinum.“ Rebekka segir miklar leifar vera af þessum reglu í hinum hefðbundnu auglýsingum í dag. „Það er alltaf kona sem talar inn á þær. Karlmenn eru þarna en bara til að sýna fram á að konan sé í vondu skapi en síðan góðu, því hún valdi rétta vöru. Lítið um samskipti kynjanna. Konur alltaf í aðalhlutverki. Vörurnar eru aldrei sýndar án umbúða en ef það er gert eru þær tölvuteiknaðar, blár vökvi sýndur í stað rauðs.“ „Þetta hefur verið gagnrýnt og túraðgerðarsinnar um allan heima hafa unnið hörðum höndum frá áttunda áratugn- um til að breyta þessu. Ég sé að þetta hefur verið að breytast en aðallega á netmiðlum. Ekki í sjónvarpi. Með óhefðbundnari miðlum á netinu þurfa aug- lýsendur að finna aðrar leiðir. Markaðssetning á netinu og öðrum miðlum er orðin miklu sterkari og breytir öllum regl- um. Er hispurslaus. Þarf ekki að fara eftir stöðlum sjónvarps- auglýsinga. Upp eru komnar síður eins og Helloflo og Youtu- be rásin þeirra sem helgar sig því að normalísera umræðuna um líkama kvenna. Auglýs- ingarnar eru opinskáar, upp- fullar af húmor, ungar stúlkur byrja á blæðingum og maður sér þær sem sterka einstak- linga. Blæðingum er fagnað. En breytingaskeiðið er líka tekið fyrir, vandræði eftir að maður á barn eða vegna þvagleka. Þetta væri örugglega ekki til ef ekki væri fyrir túraðgerðar- sinnana. Ég spái því að þessar auglýsingaleiðir muni færast í aukana enda rímar það við þá gagnrýnu umræðu sem á sér stað um þessi mál í dag.“ „Við erum alltaf saman í sundi. Alla morgna, á hverju ári, alla daga, í öllum veðrum. Okkur kemur svo vel saman,“ segir Ragnhildur sem er hluti af sundhópi sem hittist hvern einasta morgun í Laugardals- lauginni. Fréttatíminn kom í sundlaugina snemma að morgni þegar enn var dimmt. Í sundlauginni svamlaði fagur hópur af vinum á níræðis- aldri en nokkrir félagar voru fljótir að synda undan þegar myndavél- in sást. „Við erum búin að synda saman í 20 ár. Við mætum alla daga klukkan hálf tíu á morgn- ana og við kynntumst hérna í lauginni,“ segir Ragnhildur sundkappi. Loftur er af Nesinu en fer alltaf í Laugardalslaugina því hún er besta laugin í bænum. Að sögn Lofts er sund og útivera góð fyrir líkama og sál. „Við erum öll úr Reykjavíkinni og höfum öll lagt í vana okkar að koma hérna í Laugardalinn, algerlega heilluð af lauginni. Ég syndi 400 metra á hverjum morgni og Ragnhildur 300 metra, við erum mjög dugleg og sniðug. Við erum bara 6 eftir í hópnum, það er alltaf einhver að detta út því við erum orðin það fullorðin,“ segir Loftur með bros á vör. | hdó Morgunstund Kynntust fyrir 20 árum í lauginni. Loftur og Ragnhildur synda saman daglega í Laugardagslauginni. Mynd | Rut Empire Strikes Back besta myndin Nýjasta Star Wars myndin og hliðarsagan Rogue One: A Star Wars Story, verður frumsýnd í kvöld. Margir bíða spenntir eftir myndinni. Fréttatíminn ræddi við Kjartan Yngva Björnsson, mikinn áhuga- mann um Star Wars, um hvaða myndir séu í topp fimm listanum. I. Episode V – Empire Strikes Back „Jafnvel þó fyrsta myndin hafi verið sú sem greip mig fyrst var það Emp- ire sem raunverulega gerði mig að þeim stjörnustríðsfíkli sem ég er. Besta handritið, svakaleg uppljóstr- un og grípandi heimssköpun.“ II. Episode VII – Force awakens „Þrátt fyrir að sum- um finnist Force Awakens vera of lík A New Hope að mörgu leyti þá er hún algjörlega nógu góð til að eiga þetta sæti. Flottar kvenpersónur (loks- ins!) og nostalgían notalega viðloðandi, en samt spennandi viðbót við heiminn sem kveikir forvitni.“ III. Episode VI – Return of the Jedi „Geggjaðir geislasverða- bardagar og pönnukökufés sem aðstoðar- maður Lando. Geggjað!“ IV. Episode IV – A New Hope „Þetta er sú sem fyrst greip mig, augljóslega, og kom mér á þessa hættulega nördalegu braut. Þó hún sé rosa- lega flott á margan hátt er heimsmyndin ekki eins full- mótuð og þróuð og strax í næstu mynd.“ V. Star Wars Holi- day Special. „Af því Jar Jar Binks er ekki í henni.“ Við erum öll úr Reykja- víkinni og höfum öll lagt í vana okkar að koma hérna í Laugardalinn, algerlega heilluð af lauginni. Túrblóð er ekki blátt á litinn Blæðingar og áhrif auglýsinga og túraðgerðarsinna á málið. Túrblóð er oftast blátt í auglýsingum. Rebekka Líf skoðar myndina sem dregin er upp af blæðingum kvenna í auglýsingum. Mynd | Hari

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.