Fréttatíminn - 15.12.2016, Síða 46
Súkkulaði úr Vínberinu
gleður og kætir
Landsins mesta úrval af súkkulaði.
Unnið í samstarfi við Vínberið
Verslunin Vínberið var stofnuð árið 1976 og hefur verið við Laugaveg 43 alla tíð. Í upphafi var verslun-
in rekin sem matvöruverslun og
rekur nafn sitt til vínberja sem þá
voru fátíð sjón í búðum. Eftir að
lágvöruverslanir komu á markað-
inn, breyttust forsendur til rekstr-
ar kaupmannsins á horninu og
ákvað eigandinn, Logi Helgason,
að breyta búðinni í sérvöruversl-
un með konfekt og sælgæti. Á 40
ára afmæli verslunarinnar, sem var
í apríl á þessu ári, tók næsta kyn-
slóð við búðinni og er hún nú í eigu
sonar Loga og tengdadóttur, Guð-
rúnar Völu Davíðsdóttir, sem rekur
verslunina.
Sífellt eitthvað nýtt í boði
Sérgrein Vínbersins í dag er, eins
og flestum er kunnugt, súkkulaði af
öllum gerðum. „Við leggjum mikið
upp úr því að eiga eitthvað fyrir
alla, hvort sem það er mælt í inni-
haldi, magni, gæðum eða verði og
erum við sífellt að reyna að bæta
við okkur nýjungum,“ segir Guðrún
Vala. Í Vínberinu ná súkkulaðistafl-
arnir til lofts og þar er lítið mál að fá
valkvíða af bestu sort. Til að mynda
má þar finna landsins mesta
úrval af súkkulaðiplötum.
„Við setjum það upp í
nokkurs konar „bóka-
safn“. Þar er hægt að
nálgast hvítt-, mjólk-
ur-, dökkt- og súkkulaði
með áferð eða innihaldi, frá flestum
af þekktari merkjum í heiminum í
dag, meðal annars Godiva, Neu-
haus, Venchi, Lindt, Belgian og
fleira,“ segir Guðrún.
Súkkulaðibakki
hinn nýi eftirréttur
Nýjung í Vínberinu er sér-
valið úrval af súkkulaðiplöt-
um „frá baun til plötu“.
„Vinir okkar hjá Cocoa
Runners í Bretlandi
hafa sett þetta
saman. Þar er gíf-
urlegt úrval af hand-
verkssúkkulaði þar sem kakóbaunin
er rakin frá bónda, vinnsluaðferð-
ir eru í hávegum hafðar og inni-
haldslýsing í flestum tilfellum 2-3
orð. Þetta eru súkkulaðiplötur frá
öllum heiminum meðal annars
Akesson frá Madagaskar,
Friis Holm frá Danmörku,
Dandelion og Dick Tayolor
frá Bandaríkjunum, Hoja
Verde í Ekvador, Marou frá
Víetnam, Pump Street Bakeri frá
Bretlandi, Solomons Gold frá Nýja
Sjálandi og að sjálfsögðu Omnom
frá Íslandi.“
Guðrún segir súkkulaðibakk-
ann raunar vera hinn nýja eftirrétt
og margir sem komi gagngert til
þess að kaupa súkkulaði til þess að
bjóða upp á eftir góða máltíð. „Það
er virkilega gaman að bjóða upp á
súkkulaðismakk með því að bera
saman súkkulaði frá mismunandi
heimsálfum og finna muninn, t.d.
milli kakóbauna frá Madagaskar og
Suður-Ameríku.
Jólasveinarnir
duglegir að kíkja
Fyrir jólin fyllist búðin af jólavörum
í Vínberinu sem og öðrum vörum
sem oft er ekki hægt að nálgast á
öðrum tímum ársins. „Hjá okkur
er mikið úrval af konfektkössum í
öllum stærðum og gerðum, sem er
skemmtilegt að gefa í gjafir, bjóða
gestum upp á, eða gleðja vini og
ættingja með. Konfektborðið okkar
er mjög vinsælt, þar getur maður
valið sér þá mola sem manni líst
best á hvort sem það eru skemmti-
lega skrautlegar handgerðar truffl-
ur, konfekt frá Neuhaus, Gudrun,
eða Hafliða Ragnarssyni. Við erum
alltaf að bæta í tilbúnar gjafapakkn-
ingar sem er auðvelt að grípa með
sér og að sjálfsögðu er hægt að
leggja inn pantanir hjá okkur. Svo
eru jólasveinarnir duglegir að kíkja
til okkar, enda margt skemmtilegt
til sem gleður krakkana.“
Brim á ótrúlega stóran hóp af fastakúnnum á öllum aldri sem kjósa frekar flottar,
vandaðar og þægilegar Element Flex buxur sem eru fáanlegar í um 50 litum.
Yngri töffara deildin sem býður upp á fatnað fyrir 6 til 14 ára og hefur aldrei áður verið eins
yfirfull af nýjum vörum.
Flott snið ásamt miklum gæðum einkenna götu-úlpurnar í Brim og ekki skemmir verðið en þær kosta frá kr. 17.990.- til kr. 24.990.-
Hér hefur ávalt verið lögð rík áhersla
á fallegar skyrtur og peysur.
6 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016MIÐBORGIN
Landsins mesta úrval
af súkkulaðiplötum.
Konfektborðið þar sem hægt er að
handvelja uppáhalds molann eða
prófa eitthvað nýtt. Myndir | Hari
Hefur þú komið
í kjallarann?
Meira en 300 fermetrar
af vönduðum og flottum fatnaði.
Unnið í samstarfi við Brim
Hvort sem þig eða þinn vantar snyrtilegan fatn-að fyrir hátíðarnar eða langar að gefa mjúkan
pakka með fallegu innihaldi þá er
full ástæða til að kíkja í kjallarann
að Laugavegi 71.
Þegar komið er á neðri hæðina í Brim opnast nýr heimur sem er fullur af glæsilegum fatnaði. Myndir | Hari
Brim býður upp á mikið úrval af vönduðum skófatnaði á hagstæðu verði.
Þar finnur þú verslunina Brim
sem hefur verið starfrækt síðan
1998 og enn eru margir sem hafa
ekki uppgötvað 300 fm. kjallara
verslunarinnar.
Hér má finna ótrúlega flott úr-
val af vönduðum fatnaði og fylgi-
hlutum á mjög sanngjörnu verði
en niðurfelling tolla ásamt sterk-
ari krónu hefur verið tekið alla
leið á þessum stað.