Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Hrönn Sveinsdóttir tók við rekstri Bíó Paradís-ar fyrir fimm árum en þá var rekstrargrund-völlur kvikmynda-
hússins í algjörri óvissu. Græjurn-
ar í þessu gamla bíói voru úr sér
gengnar og erfitt var að ná í góðar
myndir. Síðan hefur Hrönn gert
ótal tilraunir til að glæða bíóið lífi.
„Við erum fyrsta og eina menn-
ingarlega kvikmyndahús landsins
og það er langt frá því að vera ein-
faldur rekstur. Sérstaklega vegna
þess að stærstu dreifingaraðilar
kvikmynda reka sín eigin kvik-
myndahús. Dagskrárgerðin hefur
því verið flókin og það reyndist okk-
ur snúið að ná í góðar og spennandi
kvikmyndir. Auk þess þurftum við
að byggja upp kúnnahóp úr engu
því svona bíó hefur aldrei verið til á
Íslandi. Fyrst núna er fólk farið að
átta sig á því hversu mikil vin í eyði-
mörkinni bíóið er.“
Hún segir Bíó Paradís skera sig
úr flóru kvikmyndahúsanna fyrir
margar sakir. „Við erum eina bíó-
ið sem gerir ekki hlé á sýningum.
Við sýnum áhugaverðar kvik-
myndir og efni frá öllum heims-
hornum sem fólk hefur aldrei haft
aðgang að í bíói á Íslandi áður. Það
hafa hingað til aðallega verið þrír
dreifingaraðilar á kvikmyndum hér
á landi. Hvergi í Evrópu er hlutfall
Hollywood-mynda í kvikmynda-
húsum hærra en á Íslandi. Saman-
tekt Hagstofunnar sýnir að rúmlega
90% af öllum kvikmyndum sem
sýndar hafa verið í kvikmynda-
húsum undanfarin 30 ár, eru
Hollywood-myndir.“
Nýjar græjur eins og geimskip
Þegar Hrönn tók við bíóinu þarfn-
aðist aðstaðan víða yfirhalningar.
„Ekki nóg með að við höfðum engar
myndir til að sýna, við áttum engan
búnað heldur. Verkefnið virkaði
óyfirstíganlegt. Við vorum að glíma
við marglaga vandamál sem þurfti
að leysa til að koma þessu bíói á ein-
hvern kjöl.“
Að sögn Hrannar var það engin
ein töfralausn sem sneri rekstri
bíósins. „Þetta gerðist í mörgum
litlum skrefum. Mér leið eins og
ég hefði keypt geimskip þegar við
vorum búnar að endurnýja tækja-
búnaðinn. Þá þurfti að nálgast gott
og fjölbreytt efni. Ekki bara góðar
kvikmyndir heldur vildum við
bjóða upp á beinar útsendingar frá
leiksýningum, óperum og ballettum
líka. Fyrst þurftum við að afla okkur
tengsla í útlöndum og læra á þenn-
an flókna heim dreifingarmála.“
Sjö gestir á Predator
Hrönn hafði trú á því að í menn-
ingarlegu kvikmyndahúsi þyrfti
að sýna sígildar kvikmyndir. Það
reyndist hinsvegar þrautinni
þyngra. „Það var erfitt að fá sýn-
ingarrétt á þessum myndum og oft
enn erfiðara af nálgast sýningarein-
tök. Svo, þegar við vorum loksins
komnar með myndirnar, þá mætti
enginn til að sjá þær. Við sýndum
Predator og það komu sjö! Allt í
mínus og rosalegt tap. Svona gekk
þetta með margar myndir sem við
reyndum að byggja upp stemningu
fyrir. Árið 2012 tók ég fyrir þetta,
því við höfðum ekki efni á að taka
svona sénsa.“
Hún segir bíóið ekki hafa ver-
ið stofnað til að sýna svokallaðar
„blockbuster“ myndir heldur til að
veita aðgengi að listrænum, áhuga-
verðum kvikmyndum sem ekki
voru sýndar annarstaðar. Sígildu
myndunum var þó ekki úthýst; „En
við þurftum að að nálgast þær með
öðrum hætti. Dagskrárhópurinn
Svartir sunnudagar var stofnaður
eftir rifrildi á Facebook þar sem
Sigurjón Kjartansson tuðaði yfir því
að við sýndum aldrei neina klassík.
Upp úr því spruttu reglulegar
sunnudagssýningar á költ-mynd-
um. Aðsóknin var lítil til að byrja
með og við höfðum lítið fjármagn
til kynna myndirnar. Við fórum
þá leið að biðja ólíka listamenn að
hanna ný plaköt fyrir hverja mynd
og reyndum að búa til stemningu á
samfélagsmiðlum. Það gekk prýði-
lega og aðsóknin hefur aukist jafnt
og þétt með hverju ári. Við erum því
mjög stolt af Svörtum sunnudögum
í dag.“
Hallærislegar næntís-myndir
Notendur bíósins eru duglegir að
lýsa skoðunum sínum og óska eft-
ir sýningum á þeirra uppáhalds
költ-myndum. Margir báðu um
Búningabíó og
næntísmyndir
sneru við
rekstrinum
Viðsnúningur hefur orðið á rekstri Bíó
Paradísar eftir nokkurra ára barning
og tilraunastarfsemi. Búningabíó og
myndir frá níunda áratugnum áttu
stóran þátt í að laða fólk á staðinn.
Bíóið hefur aldrei gengið betur.
Hrönn reyndi margt
til að draga ferðamenn
inn í Bíó Paradís. Með-
al annars að setja á sig
víkingahatt og ganga
með skilti á maganum
niður Laugaveginn.
Það virkaði ekkert sér-
staklega vel. Mynd | Hari
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
KOKTEIL
NÁMSKEIÐ
Í vetur heldur APOTEKIÐ skemmtileg
kokteila „workshop“ – þar sem
þátttakendur læra að búa til kokteila
á einfaldan hátt og að para
kokteila með mat.
Námskeiðin eru fullkomin fyrir bæði
einstaklinga og hópa.
Um námskeiðin sjá Jónas Heiðarr og Orri Páll, margverðlaunaðir
kokteilbarþjónar Apoteksins.
Þeir munu kenna réttu handtökin við gerð klassískra kokteila
og leyniblöndurnar bak við verðlaunakokteila Apoteksins.
Kokteilarnir eru smakkaðir með gómsætum réttum frá
Apotekinu og farið yfir galdurinn að para saman kokteil og mat.
Meðal rétta sem verða smakkaðir:
BLEIKJA Á SALTBLOKK FRÁ HIMALAYA
NAUTARIF
KOLKRABBI
LETURHUMAR
LAMBA KÓRÓNA
Námskeiðin verða haldin á fimmtudögum
milli klukkan 16 og 18 og kosta 6.900 kr. á mann