Fréttatíminn - 06.01.2017, Side 40
40 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017
Ásgeir H Ingólfsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Einu sinni fyrir langa, langa löngu
í vetrarbraut langt, langt í burtu.“
Svona byrjaði þetta, svona byrjar
þetta alltaf. Þið þekkið þetta. Þetta
er loforð ævintýrisins, hér getið þið
gleymt ykkur, gleymt samtíman-
um, gleymt grámóskulegum raun-
veruleikanum og upplifað heim
með alvöru hetjum og skúrkum.
En nýlega varð smá truf l-
un í mætti ævintýrisins, sumir
Byltingin verður ekki tölvuteiknuð
Stjörnustríð og heilagt stríð, hryðjuverkamenn og gervileikarar.
harðsvíruðustu stuðningsmenn ný-
kjörins Bandaríkjaforseta fullyrtu
að nýjasta Stjörnustríðsmyndin
væri árás á Trump og kölluðu eftir
að menn sniðgengju myndina. Lof-
orð ævintýrisins hafði verið svikið
og þeir ætluðu sko ekki að taka þátt
í þessu.
Chris Weitz, annar handritshöf-
undur myndarinnar, kynnti bál-
ið þegar hann tísti: „Vinsamlegast
athugið að keisaraveldið er stofnun
sem byggir á hugmyndinni um yfir-
burði hvíta kynstofnsins,“ og Rian
Johnson, leikstjóri Stjörnustríðs-
myndar næsta árs (já, það lítur út
fyrir að nýtt Stjörnustríð verði ár-
legur viðburður í nánustu framtíð),
bætti nýlega um betur þegar hann
varði hinn alræmda forleiks-þrí-
leik Stjörnustríðs-myndanna með
orðunum: „Forleikurinn er 7 tíma
löng barnamynd um hvernig ótt-
inn við missi breytir góðmennum
í fasista.“
Gremja öfgahægrimannana er í
sjálfu sér að einhverju leyti rétt-
mæt – það er alveg skotið á þá í nýj-
ustu myndinni – jafnvel meira en
áður. Enda svíkja ævintýrin alltaf
þessi loforð. Þessi svik eru inn-
byggð í þau, við semjum þessi æv-
intýri. Þetta loforð er bara tróju-
hestur til þess að fá okkur til þess
að hugsa öðruvísi um heiminn. En
það geta ýmsir fengið far með þess-
um trójuhesti.
Jihad-pláneta Che Guevara
Upprunalega var Stjörnustríð
óður til gamalla barnaævintýra í
æsku George Lucasar. En mynd-
irnar sóttu líka í mannkyns-
söguna; myndmálið virtist einfalt
við fyrstu sýn – keisaraveldið sótti
innblástur sinn til nasistanna og
Jedi-riddararnir voru samúræj-
ar himingeimsins. En um leið
viðurkenndi Lucas að hafa
verið undir áhrifum frá stríðs-
myndum æskunnar – um heim-
styrjöldina síðari, síðasta „góða“
stríðið. Það stríð mundi Lucas þó
varla nema í gegnum bíómynd-
ir (hann var eins árs þegar því
lauk) – stríðið sem hann ólst upp
við var Víetnam-stríðið, „vonda“
stríðið sem fylgdi í kjölfarið – fyrir
heimsveldi Bandaríkjanna altént,
sem máttu láta í lægra haldi fyrir
lítilmagnanum, alveg eins og í Star
Wars, þar sem veikleiki risans felst
í grandaleysi hans og hroka.
Þetta hefur vissulega alltaf ver-
ið undirliggjandi í Stjörnustríðs-
myndunum – en aldrei jafn aug-
ljóst og í Rogue One. Orðfærið allt
er kunnuglegt úr fréttatímunum
og uppreisnarmennirnir leynast í
þetta skiptið í hersetinni borg sem
minnir helst á hersetna Bagdad
eða Kabúl.
Leiðtogi herskáustu skærulið-
anna heitir svo Saw Gerrera og
leynist á plánetunni Jedha, við
erum bara örlítilli misheyrn frá
því að heyra Che Guevara og Ji-
had. Pólitíkin er nær Che en
fagurfræðin nær Íslamska ríkinu
eða Al-Kaída. Á meðan ógn-
ar heimsveldið þeim með
dauðageisla sem minnir til skiptis
á kjarnorkusprengjuna sem Banda-
ríkjamenn notuðu til að ljúka síðari
heimstyrjöldinni og ofurnákvæma
drónana sem þeir fjarstýra núorðið
öllum sínum stríðum með. Ofurná-
kvæm drónaárás með kraft kjarn-
orkusprengju.
Sumsé, höfuðandstæðingar
bandaríska heimsveldisins fá hér
að verða hetjur í allra stærstu bíó-
myndum peningamaskínunnar
Hollywood og Kanarnir sjálfir eru
orðnir skúrkarnir – hvað kemur til?
Veikleikinn í vélinni
Myndin snýst um það að uppreisn-
armennirnir komast yfir teikn-
ingarnar af Helstirninu – en þar má
finna veikleikann sem Logi, Leia
og Han Solo áttu eftir að nýta sér í
fyrstu Stjörnustríðsmyndinni (sem
gerist skömmu á eftir þessari).
Þessi veikleiki er ekki þarna óvart,
honum var komið fyrir af pabba
aðalpersónunnar, sem virðist hafa
gengið úr þjónustu keisaraveld-
isins aðeins til þess að svíkja svo
uppreisnarmennina – að því er
Uppreisnar-
mennirnir
áður en
þeir halda í
bardaga við
keisaraveldið.
Aðalpersóna Rogue One er Jyn (Felicy Jones) – dóttir mannsins sem
smíðaði Helstirnið.
Danski stórleikarinn Mads Mikkelsen leikur Galen, vopnasmiðinn sem reynir
fyrir sér við landbúnaðarstörf.
Upprunalega var Stjörnu-
stríð óður til gamalla
barnaævintýra í æsku
George Lucasar. En mynd-
irnar sóttu líka í mann-
kynssöguna; myndmálið
virtist einfalt við fyrstu
sýn – keisaraveldið sótti
innblástur sinn til nasist-
anna og Jedi-riddararnir
voru samúræjar himin-
geimsins.
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu