Fréttatíminn - 06.01.2017, Side 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017
virðist. Hann reynist þó vera
gagnnjósnari í raun, innanbúðar-
maður sem svíkur heimsveldið,
Edward Snowden sinnar vetrar-
brautar.
En hver er þá veikleiki banda-
ríska heimsveldisins? Gæti það
mögulega verið Hollywood? Menn-
ingin og popplögin, poppkúltúrinn
sem hjálpaði þeim að sigra heim-
inn? Það kom í ljós fyrir ekki svo
löngu að CIA sá hálfpartinn um
listamannalaunin í Bandaríkjun-
um á tímum kalda stríðsins, studdi
(eftir órekjanlegum krókaleiðum,
vissulega) nútímalist eftir lista-
menn sem voru margir hálfgerðir
kommúnistar – af því þeir trúðu því
að þannig ynnu þeir áróðursstríðið
við Sovétmenn. Verk þessara lista-
manna yrðu sönnun þess að frjáls
markaður og amerísk gildi tryggðu
málfrelsi, ólíkt hinni kommúnísku
ritskoðun. Þetta reyndist hárrétt
hjá CIA – en um leið er auðvit-
að spurning hvort listamennirnir
hafi ekki komið fyrir alls kyns veik-
leikum í kerfinu sem hægt væri að
sprengja upp hvenær sem er.
Listamenn eru nefnilega sjaldn-
ast mjög leiðitamir kapítalisman-
um, ekki einu sinni þeir sem eru
næst meginstraumnum. Þeir þurfa
vissulega að semja reglulega við
djöfulinn, Björgólfa og Medici-fjöl-
skyldur allra tíma – en það er oft
tvísýnt um hver fær meira út úr
þeim samningum.
Nú eru örugglega margir byrjað-
ir að hrista hausinn fyrir löngu yfir
öllum þessum oftúlkunum, Star
Wars er jú bara poppkornsskemmt-
un og djúp alvöru pólitísk skilaboð
þurfi að leita uppi í fullorðnisbíó-
myndum handan meginsstraums-
ins, alvarlegum bókmenntum og
spekingslegri gáfumannatónlist.
Það er að vissu leyti alveg rétt – en
að vissu leyti kolrangt líka. Ekki
bara vegna þess að grasrótin nærir
lággróðurinn (hingað til hafa flest-
ir leikstjórar Star Wars verið til-
tölulega nýbúnir að gera hræódýr-
ar, óháðar myndir skömmu fyrir
sitt Stjörnustríð), heldur líka vegna
þess að hápólitískar óháðar bíó-
myndir ná sjaldnast almannahylli
– metsölumyndirnar eru trójuhest-
arnir sem kynna alls kyns heim-
speki og pólitík fyrir fjöldanum.
Vissulega í einfölduðu – eða vand-
lega dulbúnu – formi, enda þarf
þess til þess að komast í gegn, til
að fá myndina frumsýnda í mörg
þúsund bíósölum samtímis.
Þá er alþjóðavæðingin líka að
breyta leikreglunum. Hollywood
hefur drottnað yfir kvikmynda-
markaði heimsins frá seinni heim-
styrjöldinni – en lengst af voru
samt tekjur myndanna að lang-
mestu leyti fengnar heima við. Það
hefur gjörbreyst síðustu tvo áratugi
– svo mjög að ein vinsælasta mynd
síðasta sumars, Warcraft, var risa-
stórt flopp í Bandaríkjunum og
mestöllum hinum vestræna heimi.
En hún sló í gegn í Kína – og það
var nóg. Þetta hefur valdið óvænt-
um breytingum á leikaravali í stór-
myndir – fjölbreytnin þegar kem-
ur að öðrum kynþáttum en þeim
hvíta er, samkvæmt rannsóknum,
töluvert meiri í metsölumyndum
heldur en óháðum. Ekki endilega
til þess að friða bandaríska minni-
hlutahópa, heldur til þess að selja
heiminum öllum myndina. Þannig
er leikaravalið í Rogue One til þess
fallið að selja myndina betur í
Englandi, Mexíkó, Ástralíu, Kína
og Danmörku – svona ef ske kynni
að Star Wars sé ekki nógu vinsælt
fyrir í þessum löndum.
Keisaraveldið snýr aftur
En auðvitað gekk þetta ekki upp,
myndin varð jafn stjarnfræði-
lega vinsæl og allir bjuggust við
og meint sniðganga öfgahægri-
manna virtist ekki hafa nein áhrif.
Enda er nóg fyrir þá í Stjörnustríði
líka. Fegurðin er í auga sjáandans
og mögulega eru illmennin bara
misskilin. Steve Bannon, einn al-
ræmdasti ráðgjafi Donald Trump,
er til dæmis búinn að finna sér sína
hetju í myndunum, en hann sagði
nýlega í viðtali: „Myrkrið er gott.
Dick Cheney. Svarthöfði. Satan.
Það er vald.“ Svo má ekki gleyma
því að fyrir 33 árum viðraði Ronald
Reagan hugmyndir að varnaráætl-
un í geimnum sem samstundis var
uppnefnd Stjörnustríð, eitthvað
sem virtist vera hans varnarsinn-
aða útgáfa af Helstirninu.
Uppreisnarmennirnir gætu líka
alveg verið Trumpistar úr Biblíu-
beltinu. Í upphafsatriði myndar-
Steve Bannon sér Svarthöfða sem hetju – ásamt Dick Cheney og Satan.
Óskarsverðlaunaleikarinn Forest Whitaker leikur uppreisnarforingjann
Saw Gerrera.
Carrie Fisher er nýlátin. En hún lifir
enn – þótt tölvuteiknuð sé. Hún verður
þó í alvöru í næstu mynd, sem var
tekin upp áður en hún lést.
Þá er hin trúarlega hlið
máttarins mun sterkari
hér en í öðrum Stjörnu-
stríðsmyndum. Þar er
alltaf einhver sem býr
yfir þessum mætti – sem
gerir máttinn hluta af
raunveruleikanum,
byggðan á staðreyndum
frekar en trú.
280cm
98cm
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ l ug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vö ur daglega
20% afsláttur
af öllum vör m
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bl húsin F xafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 2-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp ýj r vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp ýj r vörur dagleg
most.c_tiska
o t.tisku ataverslun
Einfaldur og
stílhreinn
Vönduð íslensk framleiðsla síðan 1959.
Stáliðjan er gamalgróið íslenskt fyrirtæki
sem framleiðir vandaða vöru fyrir heimilið
og vinnustaðinn.
Stáliðjan ehf - Smiðjuvegi 5, 200 Kópavogi - Sími 564 5885 - www.stalidjan.is
Verð 27.900 kr.
Fjölbreytt litaúrval.