Fréttatíminn - 06.01.2017, Page 56
Vegan
Linsubaunabolognese
er klassískur vegan-
réttur sem flestir
ættu að prófa. Upp-
skriftin einkar einföld
og ódýr líka. Spagettí, tómatsósa og
linsubaunir í stað hakksins og málið
er leyst. Sælkerar geta síðan bætt
hverju sem er út í sósuna.
Árstíðarbundið
Eftir allt lamba- og svínaátið er kjúklingur
góður í maga í janúar. Með kjúllanum er
gott að hafa rauðrófu-
eða blómkálssalat enda
mánuður þessa græn-
metis.
Ódýrt
Eftir eyðslusem-
ina í desember
er fínt að spara
og borða ódýran
kvöldmat. Stúd-
entakjallarinn býður upp á ódýran mat-
seðil þar sem aðalréttir eru frá 790 kr. til
1690 kr. en þar fer dýrasti borgarinn á
matseðlinum sem er vegan.
GOTT
Í
MATINN
Tölum um…
Áramótaheit
Inga Harðardóttir
Mitt nýrársheit er að vera ekki
með nýársheit, að hætta að setja
sér of há markmið bara taka sér
eins og maður er. Svo kemur eitt-
hvað gott og skemmtilegt út úr því
á endanum. Þá er hægt að líta yfir
öxl og brosa. Maður kemur sér sí-
fellt á óvart.
Bjarki Thorsson
Ég hef ekki lagt það í vana minn að
strengja áramótaheit, en maður er
alltaf að vinna í því að verða betri
manneskja og lifa heilbrigðara lífi,
hreyfa sig meira, borða minna og
hlúa betur að þeim sem maður
elskar.
Sigurbjörg Helga
Ingadóttir
Ég hef ekki sett áramótaheit. Ég
nýti árið sem upphaf til að læra
af því gamla og sjá hvernig ég get
bætt mig. Ég byrjaði 2016 að vinna
í sjálfri mér og að elska mig og
ætla halda því áfram 2017.
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK