Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 62
Hringsjá náms- og starfsendurhæfing hefur fyrir löngu sannað mikilvægi sitt í að styðja einstaklinga til
áframhaldandi náms og nýrra tækifæra. Reglulega eru gerðar árangursmælingar þar sem kemur fram að
kringum 80% þeirra sem hafa útskrifast á síðustu árum eru í námi eða starfi að hluta til eða fullu. Í Hringsjá
er fyrir hendi mikil reynsla og þekking á fullorðinsfræðslu og þar starfar fólk með víðtæka reynslu úr skóla-
starfi. Markmið Hringsjár er að veita náms- og starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri, sem
vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra áfalla þurfa á endurhæfingu að halda til að takast á við nám og/
eða að stunda atvinnu á almennum vinnumarkaði. Námið hentar einnig þeim sem hafa litla grunnmenntun
eða sértæka námserfiðleika.
Mikil þekking og reynsla í Hringsjá
Útskriftarárgangur Hringsjár
vorið 2016 til í framtíðina.
6 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2017NÁMSKEIÐ
Hélt að ég myndi
aldrei geta neitt
Fanney Viktoría Kristjánsdóttir hélt, þegar hún var sautján ára,
að hún myndi aldrei geta tekið þátt í samfélaginu.
Unnið í samstarfi við Hringsjá
Eftir að fara í gegnum Hringsjá dúxaði hún á stúdentsprófi og er nú á leið í krefjandi
háskólanám. Fanney segir
hér sögu sína.
„Ég var alltaf lasin þegar
ég var unglingur og mætti
illa í skólann. Enginn
fann neina ástæðu, ég
var bara alltaf þreytt
og illa upplögð. Þegar
kom að því að fara í
framhaldsskóla var
ég harðákveðin í að
standa mig vel enda
vissi ég að þar var
ekki sami slaki og
grunnskólinn býður
upp á, í framhalds-
skólanum verður
þú að mæta, annars
fellurðu bara. Ég
byrjaði vel en
gekk alveg
fram af
mér í
skólanum og fékk í kjölfarið mitt
fyrsta MS kast og flosnaði upp
úr skóla sem var töluvert áfall.
Ég var sautján ára og missti
þennan hvata sem allt ungt fólk
á að hafa. Eftir eitt slæmt MS
kast fór ég á Reykjalund til að
ná upp þrótti. Þar hitti ég sál-
fræðing sem þekkti vel til í Hr-
ingsjá og spurði hvort ég væri
til í að prófa svoleiðis skóla. Ég
hélt ekki, viss um að ég hefði
ekki orku eða getu til að mæta
neinsstaðar. En hann hvatti mig
áfram og ég ákvað að prófa.
Og nýr heimur opnaðist,“ segir
Fanney Viktoría Kristjánsdóttir.
„Námið í Hringsjá eru þrjár
annir og svo fer maður alltaf á
námskeið líka. Það er verið að
gefa fólki annað tækifæri til að
byggja upp grunn svo það er
byrjað alveg frá byrjun, ég byrj-
aði á plús og mínus og grund-
vallarmálfræði í íslensku. Ég
lærði samt mest á sjálfa mig,
fór að trúa að ég gæti eitthvað,
væri kannski bara pínu klár,
gæti kannski mætt og mögulega
staðið mig.
Í Hringsjá fékk ég mýkt og
skilning en líka hvatningu, og
þetta er eiginlega eins verið sé
að kveikja ljós í dimmu her-
bergi. Það er lygilegt hvað þessi
blessaði skóli og allt starfið sem
þar fer fram gerir fyrir fólk. Ég
var komin á stoppistöð, búin
að sætta mig við að ég myndi
aldrei gera neitt, aldrei læra
neitt eða vinna, að þar sem ég
væri með MS væri ég dæmd til
að vera bara heima og stimpla
mig út úr samfélaginu. Ég var
ekki stolt af þessu hlutskipti en
datt ekki í hug að það væri neitt
við því að gera,“ segir hún.
„Ég var í rauninni svo uppn-
umin yfir því að geta lært að ég
var ekkert alveg viss um hvað
ég vildi gera. Ég vissi samt að
það heillaði mig að vera í um-
önnun og aðstoða aðra. Og
mig langaði að prófa að vinna
sem ég sjálf, ekki tala á blaði.
Ég þurfti svo að fara aftur á
Reykjalund og á meðan ég var
þar var hringt frá FB þar sem
ég hafði verið eina önn. Þar
var verið að fylgjast með því
fólki sem hafði verið í skólan-
um, hvað það væri að gera núna
og hvort það vildi koma aftur í
skólann. Ég ákvað að slá til og
skella mér í sjúkraliðanám þar.
Ég byrjaði hægt, tók bara níu
einingar fyrstu önnina, því ég
hélt að ég hefði kannski verið
of vafin í bómull í Hringsjá. En
svo gekk þetta svo vel að ég út-
skrifaðist núna í desember með
stúdentspróf af sjúkraliðapróf
og ég dúxaði! Hver hefði trúað
því að litli krakkinn sem slefaði
á samræmdu og féll meira að
segja í stærðfræði myndi dúxa í
framhaldsskólanum sínum?
Ég þakka Hringsjá alveg klár-
lega fyrir þennan metnað sem
þau kveiktu innra með mér og
stuðninginn sem ég fékk þar. Ég
þarf að hafa fyrir því að læra og
eyði miklum tíma í það. En ég
uppsker algerlega það sem ég
sái af því að í Hringsjá lærði ég
að læra.
Ég stefni á að fara í hjúkr-
unarfræði næsta haust, nokk-
uð sem mér datt aldrei í hug
að ætti eftir að liggja fyrir mér.
En ég bíð spennt og ekkert
stressuð því ég er vel undirbúin.
Ég vil segja við fólk í minni
stöðu sem les þessa grein:
Þetta er hægt! Bara prófa og
halda áfram að reyna því það
má gera mistök og það liggur
ekkert á! Þetta hefst á endan-
um!
Það góða við þetta allt er að
maður finnur sér svo alltaf ný
markmið og eitthvað nýtt að
gera og stefna að. Ég er kom-
in með stefnu og markmið og
leiðin liggur bara upp á við!“
Fanney Viktoría á stúdentsdaginn en hún dúxaði í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þar sem hún
útskrifaðist af sjúkraliðabraut núna í desember. Fanney þakkar Hringsjá árangurinn en hún líkir
náminu þar við að „það hafi verið kveikt ljós í dimmu herbergi.“ Mynd | Þormar Vignir Gunnarsson